Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Þorsteinn mótfallinn ráðningu Guðjóns/Hár rétt hjá Þorsteini að hætta !!! en Guðjón er góður þjálfari !!!

Þorsteinn mótfallinn ráðningu Guðjóns
Íþróttir | mbl.is | 24.10.2011 | 11:48
Þorsteinn Gunnarsson formaður knattspyrnudeildar ásamt Jamie McCunnie. Þorsteinn Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, hefur ákveðið að hætta sem formaður deildarinnar. Ástæðan að sögn Þorsteins er stefna félagsins í þjálfaramálum en samþykkt var á stjórnarfundi í gær að ganga til viðræðna við Guðjón Þórðarson um að hann verði næsti þjálfari liðsins.

,,Ég er ósáttur við hvaða stefnu þjálfaramálin hafa tekið hjá félaginu. Ég er mótfallinn ráðningu Guðjóns og í ljósi þess tel ég eðlilegt að stíga til hliðar sem formaður, boða strax til aðalfundar og láta nýja stórn taka við ráðningaferlinu,“ sagði Þorsteinn Gunnarsson við mbl.is

Þorsteinn vildi fá Lárus Orra Sigurðsson, fyrrum þjálfara Þórs, í þjálfarastarfið en ekki að fara í viðræður við Guðjón en formaðurinn varð undir. Meirihluti í stjórn knattspyrnudeildarinnar vill fá Guðjón sem næsta þjálfara.///þetta er hár rétt ákvörðun hjá Þorsteini að hætta,það er ekki gott ef Formanni og Þjálfar semst ekki!!! En það er ekki spurning að Guðjón er góður þjálfari þó umdeildur sé,en það er Þorsteinn okkar góði sjónvarpsfréttamaður einnig,en óþarfi að búa til ágreining fyrirfram/Halli gamli


mbl.is Þorsteinn mótfallinn ráðningu Guðjóns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framarar enduðu í 9. sæti/það sýnir andan að gefat ekki upp áfram Fram!!!!

Framarar enduðu í 9. sæti
Íþróttir | mbl | 1.10.2011 | 15:56
Steven Lennon úr Fram og Halldór Smári Sigurðsson úr...Fram vann 2:1 sigur á Víkingi R. í lokaumferð Pepsideildar karla í knattspyrnu í dag og tryggði sér þar með endanlega áframhaldandi veru á meðal þeirra bestu. Fram hafnaði í 9. sæti með 24 stig en Víkingar ,sem voru fallnir,enduðu meðp 15 stig í botnsætinu:

Steven Lennon kom Fram yfir snemma leiks en Björgólfur Takefusa jafnaði metin seint í fyrri hálfleik. Það var svo Arnar Gunnlaugsson sem skoraði sigurmarkið um miðjan seinni hálfleik úr vítaspyrnu en hann hafði klúðrað víti í fyrri hálfleiknum.

Lið Fram:Ögmundur Kristinsson - Almarr Ormarsson, Hlynur Atli Magnússon, Alan Lowing, Samuel Tillen, Kristinn Ingi Halldórsson, Jón Gunnar Eysteinsson, Halldór Hermann Jónsson, Samuel Hewson, Arnar Gunnlaugsson, Steven Lennon.
Varamenn:Denis Cardaklija, Kristján Hauksson, Daði Guðmundsson, Hjálmar Þórarinsson, Andri Júlíusson, Hólmbert Aron Friðjónsson, Jón ólafsson.

  • Úrslit
  •   LUJTMörkStig
    1KR22138144:2247
    2FH22135448:3144
    3ÍBV22124637:2740
    4Stjarnan22107551:3537
    5Valur22106628:2336
    6Breiðablik2276934:4227
    7Fylkir22741134:4425
    8Keflavík22731227:3224
    9Fram22661020:2824
    10Grindavík2258926:3723
    11Þór Akureyri22631328:4121
    12Víkingur22361324:3915
    ///auvitað er maður ánægður með sina menn að falla ekki ,er ekki nýtt hjá mínu liði,og það er svo að í þessu liði er sterkur kjarni og sýndi það að Þorvaldur er stafi sínu vaxin að gefast ekki upp og við skulum vona að þetta verði okkur til framdráttar næst og þá keppum við um bikar!!! en það er sárt að þessi 2 ágætu lið falla í 1 deild en þau taka sig á/Halli gamli

mbl.is Framarar enduðu í 9. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fram úr fallsæti með sigri í Grindavík/Gott það,en til hamingju K.R. með Ísandsmeistartitilin!!!

Fram úr fallsæti með sigri í Grindavík
Íþróttir | mbl | 25.9.2011 | 17:56
Scott Ramsay og Jón Orri Ólafsson eigast við í fyrri...Grindavík og Fram mættust í 21. og næstsíðustu umferð úrvalsdeildar karla, Pepsi-deildinni, á Grindavíkurvelli klukkan 16.00. Fram sigraði 2:1 og komst þar með upp fyrir Grindavík og úr fallsæti. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Byrjunarlið Grindavíkur:Óskar Pétursson - Jamie Patrick McCunnie,  Jóhann Helgason, Scott Ramsey, Orri Freyr Hjaltalín, Ólafur Örn Bjarnason, Magnús Björgvinsson, Óli Baldur Bjarnason, Jósef kristinn Jósefsson, Alexander Magnússon, Haukur Ingi Guðnason.
Varamenn: Elías Fannar Stefnisson (M) - Ray Anthony Jónsson, Michal Pospisil, Hákon Ívar Ólafsson, Guðmundur Andri Bjarnason, Guðmundur Egill Bergsteinsson, Daníel Leó Grétarsson.

Byrjunarlið Fram:Ögmundur Kristinsson - Kristinn ingi Halldórsson, Daði Guðmundsson, Jón Gunnar Eysteinsson, Samuel Lee Tillen, Almarr Ormarsson, Hlynur Atli Magnússon, Samuel Hewson, Steven Lennon, Hólmbert Aron Friðjónsson, Orri Gunnarsson.
Varamenn: Denis Cardaklija (M) - Kristján Hauksson, Hjálmar Þórarinsson, Andri Júlíusson, Jón orri Ólafsson, Davíð Sigurðsson, Stefán Birgir Jóhannesson.////við verðum að óska K.R. með íslandsmeistaratitilinn,þeir eiga hann skilið!! en það er einnig gaman að Framar skuli komnir frá falli i bili,og mínir menn halda sig sennilega i deildinni,alavega spái ég því og stend við það??? en gleðin er mikil/Halli gamli


mbl.is Fram úr fallsæti með sigri í Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dramatískur sigur Framara/ þetta bjargar deginum,en við eigum brekku eftir!!!!

Dramatískur sigur Framara
Íþróttir | mbl | 19.9.2011 | 21:07

Viktor Smári Hafsteinsson úr Keflavík og Kristinn Ingi... Framarar eru aðeins tveimur stigum frá því að komast úr fallsæti eftir dramatískan 1:0 sigur á Keflavík á Laugardalsvelli í kvöld. Kristinn Ingi Halldórsson skoraði sigurmarkið snemma í seinni hálfleik.///þó í sveit séum núna ,fylgdist maður með sinu liði í Mogga,og það er gott að við tökum okkur á Framarar ekki veitir af,en liðið hefur ekki spilað illa en langt undir getu!!en þetta er ekki búið brekka eftir,en vinnanleg samt!!!Halli Gamli


Heil umferð í Pepsi-deild karla í dag/bæí um efstu sætin og fallið,vona að minir menn Framara detti ekki!!!

Heil umferð í Pepsi-deild karla í dag
Íþróttir | mbl.is | 11.9.2011 | 11:07
Matthías Vilhjálmsson í leik gegn KR síðasta sumar.Heil umferð fer fram í Pepsi-deild karla í knattspyrnu14.00 Fram - Breiðablik
16.00 ÍBV - Þór
17.00 FH - KR
17.00 Valur - Keflavík
17.00 Grindavík - Stjarnan
 í dag. Stórleikur umferðarinnar sem er númer 18 í röðinni er á efa viðureign FH og bikarmeistara KR sem eigast við í Kaplakrika. Takist KR-ingum að vinna stíga þeir stórt skref í átt að titlinum en hafi FH-ingar betur eygja þeir möguleika á að blanda sér að ráði í titilbaráttuna. 

 

Leikirnir í Pepsi-deildinni:

14.00 Fram - Breiðablik
16.00 ÍBV - Þór
17.00 FH - KR

1KR16115035:1438
2ÍBV17113329:1636
3FH1794433:2331
4Valur1785425:1629
5Stjarnan1776435:2527
6Fylkir1764725:3022
7Breiðablik1755725:3020
8Þór1753922:3218
9Grindavík1746719:2918
10Keflavík1652920:2417
11Fram17251013:2511
12Víkingur R.17161014:319
,0
17.00 Valur - Keflavík
17.00 Grindavík - Stjarnan17.00 Fylkir - Víkingur//// þetta verður fjör 3 leikir eftir og fjörrið i  hámarki ekki spurning,en mapður bara vonar að lið mitt Framarar haldi sér uppi/Halli gamli P/s ég held að K.R. taki þetta næst verðu Vestmannaeyringar svo F.H. 
1KR16115035:1438
2ÍBV17113329:1636
3FH1794433:2331
4Valur1785425:1629
5Stjarnan1776435:2527
6Fylkir1764725:3022
7Breiðablik1755725:3020
8Þór1753922:3218
9Grindavík1746719:2918
10Keflavík1652920:2417
11Fram17251013:2511
12Víkingur R.17161014:319


mbl.is Heil umferð í Pepsi-deild karla í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

„Fyrstir til að vinna KR“/auðvitað eiga menn að vera kokhraustir og meira en það!!!

Fyrstir til að vinna KR“
Íþróttir | Morgunblaðið | 18.8.2011 | 11:30

Sveinn Elías Jónsson í baráttu við Jordao Diogo.„Við erum svona nokkurn veginn búnir að jafna okkur og gerum það alveg eftir sigurinn á KR,“ sagði Þórsarinn Sveinn Elías Jónsson við Morgunblaðið í gær en Þórsarar taka á móti KR-ingum í lokaleik 15. umferðar Pepsi-deildarinnar í knattspyrnu í kvöld.

Sem kunnugt er tapaði Þór fyrir KR í bikarúrslitunum á Laugardalsvelli um síðustu helgi í hreint ótrúlegum leik en norðanmenn voru betri aðilinn lengst af leik en á hreint óskiljanlegan hátt tókst þeim ekki að koma tuðrunni í netið. Fimm sinnum skutu þeir boltanum í þverslá KR-marksins.

„Okkur þyrstir í að ná fram hefndum. Við vorum rændir sigrinum í bikarleiknum. Það eru flestir sammála því að við vorum miklu betra liðið og þó svo að við höfum tapað þá vorum við ánægðir með spilamennskuna. Umfjöllunin í sumar um okkar lið hefur oftar en ekki verið á þá leið að við séum ruddar og spilum gróft en ég held að við höfum náð að sýna fram á við getum svo sannarlega spilað góðan fótbolta,“ sagði Sveinn Elías, sem hefur leikið afar vel með Þórsliðinu í sumar.

„Það hefur reynst erfitt fyrir önnur lið að taka stig af okkur á Þórsvellinum og við ætlum ekkert að breyta því. Það er klárt í huga okkar að við ætlum okkur að verða fyrstir til að vinna KR-inga í sumar,“ sagði Sveinn, sem vonar að KR-ingar hampi Íslandsmeistaratitlinum í haust því það myndi tryggja Þórsurum sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.

„KR-ingar mega verða meistarar en þeir fá ekki stig á móti okkur.“

Spurður hvort hann og samherjar hans hafi ekki verið á skotæfingum í vikunni í ljósi allra skotanna sem fóru í álverkið á Laugardalsvellinum sagði Sveinn Elías; „Það er sekt fyrir að skjóta boltanum í slána á æfingunum og þannig verður það áfram. Ég held svei mér þá að mörkin fyrir sunnan hafi verið eitthvað minni en hér fyrir norðan,“ sagði Sveinn.

Takist Þór að innbyrða sigur á meistaraefnunum í KR í kvöld fara norðanmenn upp fyrir Fylki í sjötta sæti deildarinnar en fari KR með sigur af hólmi ná þeir fjögurra stiga forskoti á toppnum. „Nú horfum við upp töfluna en ekki niður. Við getum komið okkur vel fyrir um miðja deild með sigri og það ætlum við okkur,“ sagði Sveinn Elías.///Auðvitað eiga menn að vera kokhraustir og meira en það og bara vinna leikin !! en Sveinn á ekki langt að sækja það Afi  hans Sveinn Elías Jónsson trésmiðameistari bóndi og framkvæmdamaður,var ekki að tala yfirleitt neitt tæpitungumál ,gaf út Bók ágæta, um það fyrir nokkrum árum,en þetta var útidúr en ég er sammála Sveini yngri að Þór átti að vinna bikarleikin og nú kemur að hefndum og þeir vonandi vinna hið sterka lið K.R,/Halli gamli


mbl.is „Fyrstir til að vinna KR“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þór - Fram, staðan er 3:0//mínir menn lúta í grasi fyrir Norðanmönnum Þór!!!!!!

Nú er þetta bara búið hjá mínum mönnum  Fram ,ef eitthvað rettar hlutum ,ber það að skipta um þjálfara ekkert annað það virðist ekkert annað eftir eða hvað finnst ykkur,eða detta niður/Við sætum okkar ekki við það Framarar/Halli gamli
mbl.is Enn syrtir í álinn hjá Fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðjón: Betra liðið vann/samt fábær árangur BÍ/Bolungarvikur ekki taka það af þeim blessuðum!!!

Guðjón: Betra liðið vann
Íþróttir | mbl.is | 31.7.2011 | 18:02

Guðjón Þórðarson þjálfari Vestfirðinga. Guðjón Þórðarson, þjálfari BÍ/Bolungarvíkur, sagði í viðtali við Stöð2 Sport að loknum undanúrslitaleik félagsins á móti KR að betra liðið hafi unnið en KR vann 4:1.

Guðjón sagðist hafa verið nokkuð sáttur við hvernig leikurinn þróaðist og KR hafi ekki fengið mörg færi framan af í síðari hálfleik. Hann sagði hins vegar að einbeitingarleysi hafi gert vart við sig hjá hans mönnum og KR hafi refsað fyrir það. Guðjón sagði KR-liðið vera vel skipulagt og vel mannað og þeir nýti sér tækifærin sem bjóðast. 

Guðjón sagði jafnframt að KR hafi skorað þriðja markið á meðan hann var að undirbúa skiptingu til að freista þess að sækja í stöðunni 1:2. ////auðvitað vann betra liðið ,en samt er þetta frábær árangur þessara pilta þarna meiri háttar árangur,og lofar góðu,svo auðvitað Guðjón sem er þjálfarinn einnig!!!/Halli gamli


mbl.is Guðjón: Betra liðið vann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Man. Utd-maðurinn samdi við Fram/vonandi góð frétt fyrir okkur Framara !!!!!!

Man. Utd-maðurinn samdi við Fram
Íþróttir | mbl.is | 29.7.2011 | 14:25

Sam Hewson, nýi leikmaður Fram.Miðvallarleikmaðurinn Sam Hewson er genginn í raðir Fram en hann hefur verið til reynslu hjá Safamýrarliðinu síðustu daga. Framarar vænta mikils af kappanum sem hefur meðal annars borið fyrirliðabandið fyrir varalið Manchester United.

Hewson er 22 ára gamall og lék síðast með enska neðrideildarliðinu Altringham. Hann var hins vegar á mála hjá Manchester United þar til í fyrravor þegar samningur hans við Englandsmeistarana rann út.

Hewson var meðal annars fyrirliði U18-liðs og varaliðs United, þar sem hann lék undir stjórn Brian McClair og Ole Gunnar Solskjær, og sat á varamannabekk United þegar liðið lék gegn Roma í Meistaradeildinni árið 2007. Myndband af kappanum má sjá hér að neðan.

Fram er sem stendur í neðsta sæti Pepsideildarinnar.///////Við Framarar erum þessu kannski vanir, i nokkur skipti verið við að detta og dottið niður,og orðið nú að lúta i grasi eiginlega alla leiki nema einn,erum neðstir og mótið meira en hálfnað,en kraftaverkin gersat og við erum núna vongóðir að halda okkur uppí,þetta er flott að fá þarna góðan mann að mínu mati og fl. við segjum bara áfram Fram!!!!!


mbl.is Man. Utd-maðurinn samdi við Fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Keflavík aftur á sigurbraut/en mínir menn heillum horfnir, og tapa Framarar!!!;,maður er hættur að skilja þetta!!!

Keflavík aftur á sigurbraut
Íþróttir | mbl | 6.7.2011 | 21:11

Brynjar Örn Guðmundsson úr Keflavík og Almarr Ormarsson úr Fram.Keflavík sigraði Fram, 1:0, í 9. umferð úrvalsdeildar karla í fótbolta, Pepsi-deildarinnar, á Nettóvellinum í Reykjanesbæ í kvöld.///manni er bara ekki sama og það ekki gaman að sjá að þetta er ekki að koma hjá mínu liði Fram og þeir voru árið áður i efsta sæti eftir þetta marga leiki!! en það er eitthvað mikið að þarna ekki spurning!!! en F.H. og Valur og auðvitað K.R. og Vestmannaeyðingar einnig i góðu formi eins og er Valur komi i efsta sæti,en K.R, a´leik til góða/Halli gamli
mbl.is Keflavík aftur á sigurbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 1045669

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband