29.10.2012 | 18:47
Varað við vonskuveðri///það kemur víðar en í útlandinu!!!!!
Varað við vonskuveðri Innlent | mbl.is | 29.10.2012 | 11:42 Veðurstofan vill vekja athygli á slæmu veðri sem spáð er næstu daga.
Eftir miðjan dag á morgun verður komið norðan vonskuveður um landið norðanvert með vindhraða á bilinu 13-20 m/s.
Með þessu verður snjókoma og él og getur færð og skyggni spillst á skömmum tíma.
Eins ættu menn sem hafa húsdýr úti við að huga að því að koma skepnum í skjól, samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofunni.
Búast við mjög hvössum vindhviðum undir Vatnajökli frá því síðdegis á morgun og fram eftir vikunni.
Ekki er búist við að veður fari að batna fyrr en líður á næstu helgi og eins er að sjá að veður geti orðið enn verra á fimmtudag og föstudag.
Lengst af verður þurrt um landið sunnavert og ætti veðrið ekki að valda vandræðum þar.
Gert er ráð fyrir að hiti verði um og undir frostmarki sunnantil á landinu næstu daga, en annars staðar verður frost 0 til 7 stig, segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.
////////////Það er víðar spáð vondu veðri og allt að fellibyljum víðar en í Bandaríkjun og Asíu,við fáum eina stóra gusu núna næstu daga sennilega alveg að helgi eða svo eftir spánni!!!en við íslendinar eru þessu viðbúnir sennilega meira en Kanar sem er skrítið,ekki eru þeir þessu óvanir!!frekar enn við!!en á Íslandi er menn ennþá víkingar í eðli sínu,og taka þessu betur!!!en semsagt við eigum að taka þetta alvarlega mjög,áróður er þarna af því góða!!T.D.er ég alltaf svolítið veðurhræddur,og það bara gott,ef það væru fleiri,og kæruleysi vegna þessa er ekki gott,hefur leitt af sér mörg slys,sem eru ótímabær!!!!En var að tala við frænku mína Bónda á Strandasýslu,og þau voru að koma öllu fé í hús,og var alsæl með það!!svona hyggju þarf að hafa!!og vonandi að allir geri þetta sem þurfa!!!og veðrið verði betra en spáð er!!!/Halli gamli
![]() |
Varað við vonskuveðri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2012 | 17:59
Súrrealísk stemning í New York//ekki vildi maður vera þarna!!!!
Súrrealísk stemning í New York Innlent | mbl | 29.10.2012 | 16:54 Maður veit eiginlega ekki alveg við hverju á að búast, en ég fór og keypti einhverjar nauðsynjar til vonar og vara.
Ég veit að í sumum búðum var fólk að rífast um vatnsflöskur í gær, segir Þórunn Helga Þórðardóttir laganemi í New York. Fellibylurinn Sandy er sá stærsti á svæðinu síðan 1938./////////
Það er ekkert grín að lenda í svona í stórbogum!!!!allt í rafkerfi og engin miskunn með neitt,myrkur og víða vosbúð,við íslendinar eru við öllu búnir,en ekki kaninn þar vantar mikið á!!!þó þetta ske orðið oft!!!en þessi er þeirra særðstur!!!/Halli gamli
![]() |
Súrrealísk stemning í New York |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2012 | 16:25
Sandy sökkti frægu seglskipi///Þetta fræga skip sokkið,við höfum flest horft á myndina!!!!
Sandy sökkti frægu seglskipi Erlent | mbl.is | 29.10.2012 | 14:27 Fjórtán manns var bjargað af bandarísku strandgæslunni þegar seglskipið HMS Bounty sökk í dag út af strönd Norður-Karólínu í Bandaríkjunum af völdum fellibyljarins Sandy sem gengur nú yfir austurströnd landsins. Ekki er vitað um afdrif tveggja í áhöfninni.
samkvæmt frétt Nbcnews.com en áhöfnin hafði reynt að sigla í kringum storminn.
Skipið var byggt árið 1960 og er eftirlíking af breska herskipinu HMS Bounty sem sent var til Kyrrahafsins árið 1787 til þess að sækja þangað brauðaldin sem flytja átti til Vestur-Indía þar sem til stóð að gera tilraunir með ræktun á honum.
Skipið er þó þekktast fyrir uppreisn sem gerð var um borð í því 1789 undir forystu Fletchers Christian. Bounty II var byggt til þess að nota í kvikmyndinni The Mutiny on the Bountry sem frumsýnd var 1962 með Trevor Howard og Marlon Brando í aðalhlutverki.
Skipið var einnig notað við gerð þríleiksins Pirates of the Caribbea
//////Þá er þessu endanlega fyrir komið blessuðu Seglskipinu Bounty 2 sem ,við sáum flest okkar í Myndinni no. 2 að Bounty og einnig annarri mynd,þetta er auðvitað fræg saga og endaði ílla brann í fyrra skiptið!!en það er önnur saga!!! En fellibyljir eyra engu!!!/Halli gamli
![]() |
Sandy sökkti frægu seglskipi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Óttast að Sandy dragi úr kjörsókn Erlent | mbl.is | 28.10.2012 | 22:59 Stuðningsmenn Baracks Obama, forseta Bandaríkjanna, óttast að fellibylurinn Sandy komi til með að draga úr kjörsókn í forsetakosningunum 6. nóvember og þar með úr sigurlíkum forsetans.
Stuðningsmenn Obama hafa hvatt kjósendur til að kjósa utankjörfundar. Sjálfur er hann búinn að kjósa, en með því er talið að hann hafi viljað hvetja stuðningsmenn sína til að kjósa sem fyrst.
David Axelrod, einn af ráðgjöfum Obama í kosningabaráttunni, segist viss um að Obama muni hagnast á góðri kosningaþátttöku.
Ef fellibylurinn leiði til þess að færri kjósi séu það slæmar fréttir fyrir Obama. Óttast er að mikið tjón verði þegar Sandy gengur yfir ríki á austurströnd Bandaríkjanna.
Líklegt er að áhrifin verði ekki síst röskun á samgöngum og rafmagnsleysi. Þegar Irena gekk yfir austurströndina í fyrra tók marga daga að koma rafmagni aftur á öll heimili.
Ef tjónið verður mikið í óveðrinu er hætt við að margir kjósendur einbeiti sér að öðrum hlutum en að nýta kosningaréttinnNý skoðanakönnun um fylgi forsetaframbjóðenda í Ohio-ríki benda til að fylgi þeirra sé hnífjafnt. Báðir mælast með 49% fylgi.
Forsetakosningar fara fram í Bandaríkjunum eftir níu daga. Úrslit í Ohio koma til með að ráða miklu um hver verður kosinn forseti Bandaríkjanna. Í gegnum árin hafa kjósendur í ríkinu ýmist kosið frambjóðanda demókrata eða repúblikana.
Sigur þar skiptir gríðarlega miklu máli vegna þess að kjörmenn eru þar tiltölulega margir eða 18. Repúblikani hefur aldrei verið kosinn forseti Bandaríkjanna án þess að sigra í Ohio. Barack Obama og Mitt Romney hafa heimsótt Ohio margsinnis á síðustu mánuðum.
Kannanir sem gerðar voru 13.-18. september bentu til þess að Obama væri með 51% fylgi en Romney 46%. Nú virðist fylgi þeirra vera hnífjafnt, en marka má kannanir sem gerðar voru 18.-23. október. Mitt Romney á kosningafundi í Ohio.
EMMANUEL DUNAND Nýjustu kannanir í Ohio sýna eins og áður að Romney er með meira fylgi meðal karla í öllum aldurshópum nema 18-29 ára. Obama er með meira fylgi en Romney meðal kvenna. Kannanirnar benda einnig til þess að fylgi Obama meðal hvítra Bandaríkjamanna hafi verið að dala síðustu vikurnar.//////////////Eins og maður hefur áður sagt!!!! þá vonar maður að Ombama hafi þetta og það er svo að það dregur saman og Romney komin jafnvel yfir? en það sem gæti gerst er að þessi fellibylir gæti gert Obama óleik !!ef kjörsókn verðu ekki nóg vegna veðurs ,og það gæti hjálpað Milljaraðmæringnum,sem mun koma Bandaríkjunum endanlega á hausinn!!!Við bara vonum hið besta sem styðjum núverandi Forseta áfram!!!!/Halli gamli
![]() |
Óttast að Sandy dragi úr kjörsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2012 | 11:38
Chelsea kvartar yfir dónaskap Clattenburg/Dómara skandall og skömm bara!!!!
Chelsea kvartar yfir dónaskap Clattenburg Íþróttir | mbl.is | 28.10.2012 | 20:45 Chelsea hefur formlega kvartað yfir dómaranum Mark Clattenburg sem dæmdi stórleik liðsins gegn Man. United í ensku úrvalsdeildinni í dag en United vann leikinn,
3:2Clattenburg sendi tvo leikmenn Chelsea af velli en forráðamenn liðsins kvörtuðu ekki yfir því heldur meintum dónaskap dómarans í garð tveggja leikmanna liðsins.
Clattenburg talaði á mjög óviðeigandi hátt við tvo leikmenn okkar í leiknum í dag, segir í yfirlýsingu Chelsea en félagið vill ekki gefa út hvað Clattenburg á að hafa sagt.//////////////Þetta var og er Dómaraskandall og ekkert annað,maðurin var ekki hæfurs sem dómari alls ekki þarna alavega annað gula spjaldið var tilbúningur það sáu við öll aftur og aftur,hvar eru aðstoðadómarar þarna,og utanvalladómar,þetta er hvílíkt hneyksli sem alltaf þarf að vara ef M.U:N. er að keppa að það hálfa væri nóg,enda karlinn Ferguson ánægður!!!Ef þetta á að sigra keppnina er boltinn komin á hálan ís,tek það fram að eg er hvorki M.U.N. maður er Chelsea en heldur ekki M.C. en er aðdáandi samt að góðri knattspyrnu hvar sem hún er!!!/Halli gamli
![]() |
Chelsea kvartar yfir dónaskap Clattenburg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2012 | 11:23
Skjálftahrinan heldur áfram// þetta er ekkert láta á þessu
Skjálftahrinan heldur áfram Innlent | mbl.is | 29.10.2012 | 10:47 Jörð skelfur enn um landið norðanvert, en kl. 7.16 í morgun varð skjálfti sem mældist 3,4 stig um 24 km norðnorðaustur af Siglufirði. Jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að búast megi við eftirskjálftum af þessari stærðargráðu í kjölfar stóra jarðskjálftans sem varð um þarsíðustu helgi.
Martin Hensch, eldfjallaskjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir í samtali við mbl.is að enn mælist skjálftavirkni á svæðinu. Hann bendir á að sl. laugardagskvöld hafi mælst skjálfti, sem var 3,3 stig að stærð, á svipuðum slóðum og sá sem varð nú í morgun.
Hann segir að skjálftarnir séu á svipuðum slóðum og komi í kjölfar stóra jarðskjálftans sem varð aðfaranótt sunnudagsins 21. október, en hann var 5,6 stig að stærð. Skjálftahrinan komi mönnum ekkert á óvart.
Þetta er mjög eðlilegt, því 5,6 er frekar stór og þar af leiðandi myndi maður við búast við eftirskjálftum næstu daga eða vikur.
Það er nú í gangi og menn mega búast við áframhaldandi virkni næstu vikur, segir Hensch. Hann tekur fram að ekki sé hægt að útiloka að stærri skjálfta á svæðinu og því fylgist menn grannt með.
Í síðustu viku lýsti ríkislögreglustjóri yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi. Það er enn í gildi.
Óvissustig á við þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða mannavöldum sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað.////////////Þetta er ágætt að að vara fólkið við þessum vágesti og vara við afleiðingum ef einhverjar verða!!! ekki spurning að þetta skilar árangri,og ef þessi stóri skyldi koma að fólk hafi varan á,þetta má bara ekki hræða fólk um of ,það getur gert lífið verra!!! en allur er varin góður og við skulum bara vona hið besta!!!/Halli gamli
![]() |
Skjálftahrinan heldur áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2012 | 09:37
Fermingarbörn ganga í hús///Þetta gott mál og þarf,en ríkisstjórn okkar sér til þess,að íslendingar þurfa svona hjálp,einnig margir!!!
Fermingarbörn ganga í hús Innlent | mbl.is | 29.10.2012 | 8:53 Fermingarbörn úr 65 sóknum í öllum landshlutum ganga í hús á tímabilinu frá og með deginum í dag til 6. nóvember, milli kl. 17.30 og 21 og safna peningum til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í þrem löndum Afríku: Malaví, Úganda og Eþíópíu.
Starfsfólk kirkjunnar fræðir um 3.000 fermingarbörn um aðstæður í löndum Afríku, sérstaklega um skort á hreinu vatni. Mörg þeirra hittu Innocent Kaphinde og Doniu Phiri frá Malaví sem heimsóttu um 2.000 fermingarbörn um allt land og sögðu frá lífi sínu og aðstæðum.
Í fræðslunni heyra börnin um árangur af verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar hvernig hægt er að safna rigningarvatni og grafa brunna sem veita hreint vatn sem gjörbreytir lífinu til hins betra.
Með þessu fá fermingarbörnin tækifæri til að láta til sín taka og gefa Íslendingum tækifæri til að leggja sitt af mörkum til aðstoðar þeim sem ekki hafa aðgang að hreinu vatni. Þetta er í 14. sinn sem söfnunin er haldin.
Í fyrra söfnuðu fermingarbörn 8 milljónum króna. En samtals hafa þau í gegnum árin safnað um 75 milljónum króna til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar, segir í tilkynningu.///////////Ekki gerir maður lítið úr kirkjunni okkar,als ekki,þetta dásamlegt að gera!!en í dag er komið svona fyrir mörgum íslendingum.því miður alla daga er verið að selja ofan af fólki,og það að missa allt sitt, og eiga ekki fyrir mat,og erum með ríkistjórn sem horfir á þetta allt en bara verndar fjármagnið,kemur ekki nema neikvætt að þessum málum,það sáum við í Silfrinu í gær mjög vel!!!/Halli gamli
![]() |
Fermingarbörn ganga í hús |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 29. október 2012
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 1047927
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Erlent
- Sagður hafa svipt sig lífi eftir að Pútín sagði honum upp
- Rússar lýsa yfir hernámi í nýju héraði
- Á flótta frá réttvísinni í sjö ár
- Náðu að bjarga sér með því að klifra upp á þak
- Banaði þremur úr tengdafjölskyldunni með sveppum
- Ísrael gerir árásir á Húta í Jemen
- Dalai Lama níræður: Vill verða 130 ára