Vill að fulltrúaráð Eirar verði endurskipað//auðvitað verður að gera það,einnig óháða úttekt!!!

Vill Magnús L. Sveinsson.að fulltrúaráð Eirar verði endurskipað Innlent | mbl.is | 22.11.2012 | 20:36 Magnús L. Sveinsson, stjórnarformaður hjúkrunarheimilisins Eirar, segir að hann fagni áformum eigenda Eirar um að endurskipa í fulltrúaráð Eirar, enda sé það í samræmi við tillögu sem hann lagði fram á síðasta stjórnarfundi.

Bæði VR og Reykjavíkurborg hafa þrýst á um að breytingar verði gerðar á fulltrúaráði Eirar, en í því sitja 37 menn, sem eru fulltrúar eigenda hjúkrunarheimilisins. Stofnaðilar Eirar eru Reykjavíkurborg, VR, Seltjarnarneskaupstaður, Blindrafélagið og Blindravinafélag Íslands, Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra minnissjúkra, Sjómannadagurinn í Reykjavík og Hafnarfirði, Umönnunar- og hjúkrunarheimilið Skjól, Hússjóður Öryrkjabandalags Íslands, Efling stéttarfélag, SÍBS og Mosfellsbær.

Það er fulltrúaráð Eirar sem kýs stjórn félagsins. Magnús segist hafa flutt tillögu í stjórn Eirar um að stjórn Eirar beini því til þeirra sem standa að stofnuninni, að þeir óski eftir því við fulltrúa sem þeir tilnefndu í fulltrúaráð Eirar fyrir árin 2011 til 2015, að þeir segi af sér í fulltrúaráðinu.

Magnús segir að Stefán Benediktsson, stjórnarmaður í Eir, hafi beðið um frestun á tillögunni og hann hafi orðið við því.

„Ég fagna því að málið er komið í þennan farveg eins og mín tillaga stefnir að,“ segir Magnús. Tillagan sem Magnús lagði fram í stjórn Eirar á þriðjudaginn var eftirfarandi: „Með vísan til þeirra erfiðleika sem komnir eru upp í rekstri Eirar og til að auðvelda vinnu við lausn á þeim vanda, beinir stjórn Eirar því til þeirra sem standa að stofnuninni, að þeir óski eftir því við fulltrúa sem þeir tilnefndu í fulltrúaráð Eirar (aðalmenn og varamenn) fyrir árin 2011 til 2015, að þeir segi af sér í fulltrúaráðinu.

Aðilar að stofnuninni tilnefni síðan nýja fulltrúa í fulltrúaráðið til loka kjörtímabilsins árið 2015, samkvæmt 4. gr. skipulagsskrár Eirar, sem kýs síðan nýja stjórn samkv. 7. gr. skipulagsskrárinnar.“ Stefán Benediktsson, sem situr í stjórn Eirar fyrir hönd Reykjavíkurborg, sagði í fréttum RÚV í kvöld að hann ætlaði ekki að segja sig úr stjórn Eirar.////////////Það er náturlega ekki spurning,að þetta veður að ske,og það strax,jafnframt þvi að óháðir taki þetta í gegn,svo að hið sanna komi í ljós og það er aðalariðið svo saklaust fólk sé ekki ásakað eða undir grun!! Jafnframt mynduð ný stórn sem nýtur trausts,þetta er það eina sem hægt er að gera  og svo auðvitað að vinna hratt að ná samningum um framhald heimilisins og aðkylja  húkrun og sjáfseignir,þetta verður að ske,og engin miskunn,nema á gamlingjum sem þarna dvelja og eiga!!!Halli gamli

 


mbl.is Vill að fulltrúaráð Eirar verði endurskipað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wenger: Walcott þarf að klára sín mál/satt :Það er okkur vonbrygði ef hann hættir!!!

WeTheo Walcott hefur ekki enn skrifað undir nýjan samning við Arsenal.nger: Walcott þarf að klára sín mál Íþróttir | mbl.is | 22.11.2012 | 15:10 Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal hefur hvatt Theo Walcott til að ná samkomulagi við félagið um nýjan samning sem fyrst. Óvissan sé engum til góða en núgildandi samningur Walcotts við Arsenal rennur út í sumar.

„Það er mjög mikilvægt í okkar íþrótt að menn geti sýnt sínu félagi fullkomna tryggð, því ef menn gera það ekki þá eru þeir órólegir. Það er líka mikilvægt fyrir leikmannahópinn okkar að hann sýni hollustu.

Ég efast ekki um að hann geri það en það kemur að því að hann þurfi að sýna það svart á hvítu,“ sagði Wenger./////////Vonum bara að hann  haldi áfram!!! þetta góður maður ,og við viljum ekki missann,og veitir ekki af svona og fleirum !!vona bara að karlinn opni kaup aftur um áramót!!!!//Halli gamli


mbl.is Wenger: Walcott þarf að klára sín mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umræða á villigötum/Hún kann þetta en Forsætisráðherran,að segja ósatt!!!

Umræða áJóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
 villigötum Innlent | mbl.is | 22.11.2012 | 16:07 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að umræða um fyrirhugaða nauðasamninga við gömlu bankana sé á nokkrum villigötum. Málið sé þó eitt af stóru málunum á borðum ríkisstjórnar, Seðlabanka Íslands og Alþingis. Þetta er meðal þess sem fram kom í ræðu forsætisráðherra í sérstökum umræðum á Alþingi í dag um stöðu þjóðarbúsins, en málshefjandi var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Greint er frá þessu á vef stjórnarráðsins. Jóhanna sagði einnig að staða heimila og fyrirtækja héldi áfram að batna og eignir umfram skuldir hefðu aukist um 17% í fyrra frá árinu áður. Skuldir fyrirtækja og heimila væru nú um 280% af landsframleiðslu en hefðu verið 510% þegar þær náðu hámarki haustið 2008. „Umræðan um fyrirhugaða nauðasamninga gömlu bankana er á nokkrum villigötum. Við skulum ekki fara í neinar grafgötur um að þetta mál er og verður eitt af stóru málunum á borði þessarar ríkisstjórnar, Seðlabankans og Alþingis. Það er hins vegar alveg ljóst að Seðlabankinn fékk yfirráð yfir útgreiðsluferlinu með lögunum frá 12. mars sem er afar mikilvægt. Seðlabankinn hefur því regluvaldið þegar kemur að útstreymi gjaldeyris og hann mun ekki setja neinar reglur sem gætu ógnað hér lífskjörum eða markmiðum um fjármálastöðugleika eða þjóðhagsvarúð. Mikilvægt er að vinna málið áfram í sátt og senda erlendum kröfuhöfum þau skýru skilaboð að pólitísk staða á Íslandi breyti engu um meðhöndlun þeirra því einhugur sé um að ganga eins langt í vörn fyrir íslenska hagsmuni og lög og þjóðréttarlegar skuldbindingar leyfa. Aukinn hagvöxtur, minna atvinnuleysi, lægri skuldir, minnkandi verðbólga, jafnari lífskjör og meiri bjartsýni á meðal heimila og fyrirtækja eru allt merki að við séum á réttri leið. Auðvitað er margt enn óunnið en allir helstu hagvísar sýna merki um batnandi hag,“ sagði Jóhanna á Alþingi í dag.////////Það er skömm af þvi!!, að fara á svig við sannleikan, alltaf eins og þetta fólk kemst upp með það!!!,og það Forsætisráðherra núna,og að segja þetta framan í okkur sem vitum annnað!!!það er ekkert gert í þessum málum,og verður ekki ,ef hún og Steingrímur ráða það er allt lýgi þarna sem hún segir  ekki spurning!!Og kemst upp með  það og við eigum bara að þeigja/Halli gamli

mbl.is Umræða á villigötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gengu út af fundi starfshópsins////Þetta er og verður deilumál,hvort eð er ,því við göngum ekki í ESB Það er nokkurð víst!!!

GengMynd 638975u út af fundi starfshópsins Innlent | mbl.is | 22.11.2012 | 10:29 Nýlega gengu fulltrúar bænda út af fundi starfshóps sem er að móta samningsafstöðu Íslands í aðildarviðræðum við ESB um landbúnaðarmál.

Ástæðan er sú að formaður starfshópsins upplýsti að í samningsafstöðu Íslands verði ekki krafist áframhaldandi tollverndar fyrir landbúnaðarvörur frá ESB-löndum.

„Það er öllum ljóst sem hafa tekið hafa þátt í þessari vinnu að krafa um áframhaldandi tollvernd landbúnaðarvara er með öllu óraunhæf. Finnar settu þetta inn í kröfugerð á sínum tíma en ekki kom til greina af hálfu ESB að fallast á þá kröfu þar sem hún gengur gegn grundvallarhugmyndum um tollabandalag ESB.

Finnum var hinsvegar heimilað að styrkja landbúnað sem stundaður er norðan 62. breiddargráðu með eigin framlögum, auk stuðnings úr landbúnaðarsjóði ESB. Minnt er á að Ísland liggur allt norðan þessarar breiddargráðu,“ segir í fréttinni.

Í drögum að kröfum Íslendinga varðandi landbúnaðarmál er farið fram á að fjárframlag úr landbúnaðarsjóði ESB taki tillit til þeirra sérstöku aðstæðna sem íslenskur landbúnaður býr við og að niðurfelling tolla verði bætt með beinum stuðningi úr sjóðum ESB.

Þess er einnig krafist að Ísland fái heimild til að greiða viðbótarstuðning til landbúnaðarins úr eigin sjóðum að því marki að stöðu og kjörum bænda verði ekki raskað.

Með þessu verður tryggt að samkeppnisstaða íslensks landbúnaðar mun ekki raskast en á það var lögð áhersla í fyrirvörum Alþingis þegar samþykkt var að sækja um aðild að ESB, að því er fram kemur í frétt Neytendasamtakanna.

„Bændasamtökin verða að gera sér grein fyrir því að þau eru ekki einráð þegar kemur að samningsafstöðu Íslands í landbúnaðarmálum,“ segir í fréttinni.

Neytendur sem eiga mikilla hagsmuna að gæta eiga sína talsmenn í hópnum sem og aðrir hagsmunaaðilar.

„Það er vissulega mikilvægt að samningurinn verði hagstæður bændum og að tekið verði tillit til krafna um áframhaldandi opinberan stuðning sem teljast sjálfsagðar og raktar eru hér að ofan.

Það eru hins vegar líka ríkir hagsmunir í húfi fyrir neytendur sem hafa alla tíð búið við ríka verndar- og haftastefnu. Þeirra hagsmunir eru að verð á landbúnaðarafurðum lækki og úrvalið aukist.

Þá er rétt að minna á að tollabandalag eins og ESB opnar markaði fyrir íslenska framleiðendur sem eru þá ekki háðir kvótum eins og nú er. Það ætti því ekki síður að vera kappsmál bænda að fá aðgengi að þeim stóra markaði sem ESB er,“ segir í fréttinni.////////////Þetta er deilumál þrátt fyrir að við göngum ekki í ESB og verðufr það áfram,það ber að semja við bændur um að fella þessa styrki niður í áföngum og það sem fyrst ekki geyma það endalaust,það er nú búið að semja til 2 ára og svo næst verður að koma nýr samningur um að hætta þessu á nokkrum árum!!Við sjáum að það minkar sala á Lambakjöti og samt er það niðurgreitt og mjólkurvörur eiga ekki að vara niðurgreiddar,þessu verður að breyta það sjá allir sem vilja!!!Bændur verða að fa´hagstæð lán til að stækka búin og vinna meira saman með dýrari vélar með heyskapinn!! þetta er allt hægt og þá tekur þetta par nokkur ár að breytast!!!,ekki fá Svín og kjúklingabændur nokkur styrk,og kjúgglingakjöt er selt mikið meira en lambakjöt,þá er sagt að þetta sé verksmiðjuframleiðsla?? en það er sama góða kjötið,einnig með Svínin!! en samsagt það er ekki hægt að taka um þetta bara út frá ESB!!það förum við ekkert inn,en þetta er og verður að gerst á í áföngum samt,við neitendur viljum það,við erum ekki að tala bara út í loftið,allavega ekki hann ég þeskki þetta vel og er mikill bændavinur,og vill þeim ekkert nema vel//Halli gamli


mbl.is Gengu út af fundi starfshópsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reyna að negla Annþór og Börk//Ef þetta er rétt: er það bara skömm að gera þetta svona!!!

ReynLögreglumenn í Héraðsdómi Reykjaness.a að „negla“ Annþór og Börk Innlent | mbl | 22.11.2012 | 12:02 Verjandi Annþórs Kristjáns Karlssonar sagði í Héraðsdómi Reykjaness í dag að vinnubrögð lögreglu bentu til þess að markmiðið hefði verið að „negla“ þá Annþór og Börk.

Ekkert hefði verið spurt út í þátt annarra við skýrslutökur heldur einblínt á þá tvo. Saksóknari fer fram á átta ára fangelsi yfir Annþóri vegna aðildar hans að fimm líkamsárásum, frelsissviptingu, ólögmætri nauðung og tilraunum til fjárkúgana.

„Fyrir hvaða sakir? Hvaða sakir eru sannaðar? Fyrir hvaða áverka? Það er allt ósannað í þessu máli og ég lýsi eftir sönnunum og gögnum.

“ Þá gagnrýndi Guðmundur fjölmiðlabann sem sett var á umfjöllunina.

„Það virðist vera að þar sem Annþór og Börkur koma við sögu, þar er gripið til aukaráðstafana.

Hverju sætir þetta? Þeir virðast settir í þá stöðu að þurfa að sanna sakleysi sitt í stað þess að ákæruvaldið þurfi að sanna sekt þeirra.

“ Aðalmeðferðin heldur áfram en gert er ráð fyrir að henni ljúki síðdegis.//////Það er svo að þessir menn sem eru kannski hættulegir!!! En eiga sama rétt gagnvart réttarkerfini okkar,ég er ekki að mæla þeim bót !!,en það er talað um um að með lögum skal land byggja, og á Lögregla ekki að hafa það að fyrirmynd!!!!, en eftir að hafa hlustað á fréttir af þessum málum mánuðum og vikum saman,og svo í verjendum þeira er það eitthvað afbryðilegt sem þarna fer fram!!!Lögregla er að færa sig mjög svo uppá skaptið með að geta þetta og hitt,en ég er ekki viss um að svona vinnubrögð viljum við almenningur á Íslandi,hvað ef við lentum i svona erum við ekki bara undir sömu sök,ég mótmæli svona aðferðum,að dæma men eftir líkum var gert í Geirfinnsmálinu,og er verið að gera Það þarna að hluta!!!: spyr bara ??!!!!/Halli gamli


mbl.is Reyna að „negla“ Annþór og Börk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Asahláka á Siglufirð/Þetta er svona þarna Austurúr og Austfjörðum og Suðaustulandi!!

AsahlákFrá Siglufirði í morgun.a á Siglufirði Innlent | mbl.is | 22.11.2012 | 9:25 Asahláka er nú á Siglufirði og afar hvasst var þar í morgun.

Götur eru þar víða umflotnar vatni, svo gangandi vegfarendur eiga erfitt með að komast leiðar sinnar.

Mikið snjóaði þar bæði í gær og í fyrradag og nú er þar um 6 stiga hiti.

Í þessari vindátt, austnorðaustan, verða hviðurnar svo svakalegar og það ræðst ekki við eitt eða neitt,“ segir Ómar Geirsson, sem er í svæðisstjórn björgunarsveitarinnar Stráka á Siglufirði.

„Nú er austanátt og blankalogn, en allt er á floti

.“ Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út um sexleytið í morgun vegna foks á þakplötum, en plötur fuku af þaki bílaverkstæðis í bænum

. „Svo þurftum við að hemja járnplötur sem fuku út um allan bæ, En þetta var svo snemma að það var lítið um gangandi fólk, sem betur fer,“ segir Ómar. Frá Siglufirði í morgun. mbl.is/ Sigurður Ægisson//////Þetta var viðbúið að gerðist!! þessu var spáð bæði hvassviðri og rigningu en kannski ekki að hiti yrði 6´C en svona aðstæður skapa ásahláku það sem mikill snjór er fyrir,vonandi að þetta varið ekki til að skemma mikið og hjálp fáist við að veita vatninu frá húsunum,rokið er mikið þarna og í hviðum ræður engin  við neitt////Halli gamli


mbl.is Asahláka á Siglufirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. nóvember 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047927

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband