Alþingi kemur ekki saman fyrr en á Miðvikudag 29/11,er þetta hægt,nei það er verið með eina mínótu á manní alvarlegum málum,en 4 daga frí út á það!!!

Við leikmenn eru ekki að skilja!!, þennan forgang á málum, þarna á Alþingi,við sem horfum og fylgjumst með erum klumsa!!Talað frm á nætur með takmörkuðum tíma í hinum alvarlegustu málum sem verið er að fjalla um,Stjórnarskrána Rammaáættlun og svo útgerð og fikveiðar!!!þessu á að koma í verk fyrir þinglok!!!!en hvernig veit maður ekki??svo mál sem hvíla á þúndum manna sem ekki grtað borgað okurlánin sem á þeim hvíla!!það er auka atriði eða er það ekki,þetta vonandi breytist um kosningar eða fyrr//Halli gamli


Vill færa 8 virkjanakosti í biðflokk//Friðarsinnar njóta hvers,:að vera frekari???

ViAtli Gíslason vill að Bjarnarflag verði sett í biðflokk, en...ll færa 8 virkjanakosti í biðflokk Innlent | mbl.is | 23.11.2012 | 18:44 Atli Gíslason alþingismaður hefur lagt fram breytingartillögu á Alþingi við tillögu um rammaáætlun.

Tillagan gerir ráð fyrir að átta skilgreindir virkjanakostir verði færðir úr orkunýtingarflokki í biðflokk.

Tillaga Atla gerir ráð fyrir að eftirtaldir virkjanakostir verði færðir í biðflokk: a. „Reykjanesskagi, Reykjanessvæði, 62 Stóra-Sandvík“, b. „Reykjanesskagi, Svartsengissvæði, 63 Eldvörp“, c. „Reykjanesskagi, Krýsuvíkursvæði, 64 Sandfell“, d. „Reykjanesskagi, Krýsuvíkursvæði, 66 Sveifluháls“, e. „Reykjanesskagi, Hengilssvæði, 69 Meitillinn“, f. „Reykjanesskagi, Hengilssvæði, 70 Gráuhnúkar“, g. „Reykjanesskagi, Hengilssvæði, 71 Hverahlíð“, h. „Norðausturland, Námafjallssvæði, 97 Bjarnarflag“

Sjálfstæðismenn leggjast gegn tillögu stjórnarflokkanna Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgöngunefndar, Birgir Ármannsson og Árni Johnsen, leggjast gegn því að tillaga til þingsályktunar um vernd og orkunýtingu landsvæða nái fram að ganga óbreytt.

„Tillagan í þeirri mynd sem umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra gengu frá í vor og meiri hluti nefndarinnar leggur nú til að verði samþykkt óbreytt getur ekki orðið sá grundvöllur að víðtækri sátt um langtímaáætlun á þessu sviði sem að var stefnt í upphafi.

Annar minni hluti lítur ekki svo á að með samþykkt rammaáætlunar verði með öllu komið í veg fyrir ágreining um einstakar virkjunarframkvæmdir eða togstreitu milli nýtingar- og verndarsjónarmiða almennt.

Engu að síður getur rammaáætlun sem byggist á faglegum vinnubrögðum sem sátt er um orðið til þess að draga verulega úr deilum og auðvelda áætlanagerð bæði opinberra aðila og einkaaðila til lengri tíma.

Rammaáætlun þar sem vikið er frá faglegum niðurstöðum á pólitískum eða hugmyndafræðilegum forsendum nær ekki þeim tilgangi og verður fyrir vikið skammlífari en ella,“ segir í nefndaráliti Birgis og Árna.///////////////Það er svo að við verðum að nota auðlindir okkar,ekki spurning,eða hvað þessir umhverfissnar segja bara nátturan á að njóta vafans,hvar er vafin,er það svo að fiskurinn eigi að gera það??eða eins og með tófuna hún á gera það,og drepa svo alla fuglana!!það er endilaust hægtað hártoga hlutina sér í vil !! svo með árnar sem á virkja,er það ekki svo að við eigum það kannski ekki eftir 20-30 ár ef jökklarnir bráðna,svo er einnig með heitavattnið,það getur breyst í jaðhræringum og fleiru!!alt þetta er mögulegt,og því ekki að nota þetta meðn hægt er og raðvirkjnir eru hagkvæmastar og fallegar virkjanir slá út flest bíli á landinu,og vegir og allt í kring flottir,og svo heitavatnið það er auðlind sem bíður við hornið og við eigum að nota,en selja rafmagnið bara innanlands ekki flytja það út til annarra landa nota það sjálf í arðbæra atvinnu////Halli gamli


mbl.is Vill færa 8 virkjanakosti í biðflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefnt að langtímasamningi//Aðförini reddað,það átti að eyðileggja þetta ferli af velferðaráðherra!!

Stefnt 
Slökkviliðsmenn að störfum.Stefnt að langtímasamningi Innlent | mbl.is | 23.11.2012 | 17:01 Staðfestur hefur verið sameiginlegur vilji velferðarráðuneytisins og stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) um að slökkviliðið sinni áfram sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu.

Samstarfshópi verður falið að undirbúa grundvöll langtímasamnings um þjónustuna og er honum ætlað að skila tillögum sínum fyrir 15. desember næstkomandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá velferðarráðuneytinu og Reykjavíkurborg.

Þar segir að Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík og formaður stjórnar SHS, hafi í morgun lagt fram sameiginlega tillögu um form og meginmarkmið samningaviðræðna sem stjórn SHS hafi samþykkt.

Samningur við SHS um sjúkraflutninga rann út um síðustu áramót og er ágreiningur um hve mikið þarf að hækka heildargreiðslur fyrir þjónustuna.

Fram kemur, að ánægja ríki með þá þjónustu sem SHS hafi veitt og er sterkur vilji aðila til þess að ná samkomulagi um framhald sjúkraflutninga á vegum SHS með samningi til fimm ára að lágmarki.

„Stofnendur og eigendur SHS eru sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarneskaupstaður og Sveitarfélagið Álftanes. Samkomulag er um kostnaðarskiptingu sveitarfélaga og ríkisins vegna sjúkraflutninganna miðað við núverandi rekstrarfyrirkomulag.

Í samræmi við tillögu velferðarráðherra og borgarstjóra verður skipaður fjögurra manna starfshópur með tveimur fulltrúum frá hvorum samningsaðila; SHS og ríkinu, en Sjúkratryggingar Íslands fara með samningsumboðið fyrir hönd hins opinbera. Verkefni hópsins verður að gera kostnaðargreiningu og leggja fram drög að nýjum samningi fyrir 15. desember næstkomandi,“ segir í tilkynningu.///////////Við skulum bara vona að þetta gangi upp!!Þá er þessari sparnaðaragerð velferðaráðhrra lokið í byli allavega,það er einnig hrundið þeirri áráttu ,þessar ríkisstjórnar að bylta öllu!!jafnvel bara til að bylta!!og engin hagnaður sennilega bara dýrara þegar upp var staðið!!ég hefi ekki hælt Borgarstóra okkar en verð að gera það í þessu tilviki!! en það er fleira sem eftir er en þetta sem þessi blessaður ráðherra hefur til að redda þar eru mál Lansdspítala,þar er allt í uppnámi,hjúkkur að segja upp,og eiginlega allt í upplausnn!!!/Halli gamli


mbl.is Stefnt að langtímasamningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sendir frekari gögn um áform sín///þeir gefast ekki upp:,kannski skoðandi???

Sendir Grímsstaðir á Fjöllum. frekari gögn um áform sín Innlent | mbl.is | 23.11.2012 | 16:35 Zhongkun Grímsstaðir ehf., sem sótthefur um leyfi til að reisa hótel á leigulóð í landi Grímsstaða á Fjöllum, hefur tilkynnt nefnd fjögurra ráðherra að félagið hyggist leggja fram frekari gögn vegna umsóknar sinnar.

Í bréfi félagsins til Steingríms J. Sigfússonar atvinnuvegaráðherra segir að um leið hafi verið óskað eftir því að ráðherranefndin taki ekki afstöðu til fyrirhugaðs fjárfestingarsamnings milli Zhongkun og íslenskra yfirvalda fyrr en þau hafa verið lögð fram.

„Í ljósi umræðu og ábendinga, sem fram hafa komið á þeim tíma sem viðræður hafa staðið yfir, vill Zhongkun leitast við að skýra áform sín frekar og kynna ítarlegar þegar framangreind gögn vegna áforma félagsins um fjárfestingu í íslenskri ferðaþjónustu liggja fyrir.

Zhongkun heldur áfram að vinna að verkefninu í sátt og samvinnu við hlutaðeigandi yfirvöld, þakkar fram komnar ábendingar og mun skýra áætlanir sínar með ítarlegri gögnum á næstunni,“ segir í fréttatilkynningu sem Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri Zhongkun, sendi fjölmiðlum.

„Félagið ítrekar að það telur verkefnið afskaplega gott verkefni fyrir atvinnuuppbyggingu á norð-austurlandi sem og íslenskan ferðamannaiðnað í heild, sem og að sjálfsögðu fyrir félagið sjálft,“ segir í bréfi Halldórs til ráðherra.////////////Auðvitað má skoða þetta betur ef tilboðið breytist og leigan á landinu hækkar,við gefum þetta ekki,en ef það verður gert ábyggilegt allt með framkvæmdir og ferlið allt ,og ef ekki stenst fellur samningurinn,þá má skoða þetta ef atvinna er okkar,ekki veitir okkur af,þvi ekkert er gert í þá átt þarna,jú skoðum málin,og svo tekið eða hafnað!!!/Halli gamli 


mbl.is Sendir frekari gögn um áform sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálka um allt land//okkur ber að fara varlega mjög keyrandi og gangandi!!!

Hálka um allt land InMynd 593518nlent | mbl.is | 23.11.2012 | 9:45 Hálkublettir eru nú á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi, Hellisheiði og í Þrengslum.+Flughált er á Nesjavallaleið.

Hálka eða hálkublettir eru einnig mjög víða á Suðurlandi. Um vestanvert landið er hálka á Fróðárheiði, Vatnaleið, Bröttubrekku og Holtavörðuheiði og hálkublettir á Laxárdalsheiði.

Á Vestfjörðum er hálka á flestum vegum.

Snjóþekja er á Steingrímsfjarðarheiði, hálka og éljagangur á Gemlufallsheiði og krapi og éljagangur í Ísafjarðardjúpi. Á Norðurlandi er víðast hvar hálka eða hálkublettir á vegum en snjóþekja á Hólasandi.

Á Norðaustur- og Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum en þó er vegurinn frá Reyðarfirði og suður með ströndinni greiðfær.///////// Í öllu falli ber fólki að fara varlega mjög,bæði akandi og gangandi,það er ekki gott að ferðast í flughálku,og helst að vera vel búin til dekkja og skófattaðar,en við bara skoðum málið vel!!!/Halli gamli


mbl.is Hálka um allt land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæti orðið mikilvæg tekjulind fyrir OR/Algjörlega ósammála þessu!!!!!!

Gæti Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.orðið mikilvæg tekjulind fyrir OR Innlent | mbl | 22.11.2012 | 23:42 „Við sitjum hjá vegna þess að samkvæmt tillögunni er verið að ganga til samninga.

Það er svosem ekki eitthvað sem maður þarf að setja í hælana þó svo að farið sé að leita eftir samningum vegna þess að slíkir samningar koma aftur fyrir borgarráð,“ segir Júlíus Vífil Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. og bætir við að þegar að þar að kemur muni borgarfulltrúar flokksins sjá hvernig þessi samningur líti út varðandi leiguna á húsnæðinu.

Eins og mbl.is greindi frá í dag þá samþykkti borgarráð á fundi sínum í morgun að borgin gangi til samninga við Orkuveitu Reykjavíkur um kaup á Perlunni í Öskjuhlíð.

Þá mun borgin ganga til samninga við ríkið um að það leigi húsið í allt að 15 ár og komi þar upp náttúruminjasýningu. Þá bendir Júlíus Vífill á að auðvitað muni sjálfstæðismenn fagna því ef Orkuveita Reykjavíkur hefur af þessu hag.

Þá segir hann það jákvætt ef rekstrargrundvöllur Perlunnar styrkist með leigu til ríkisins og ef Náttúruminjasafnið verður sett þarna upp. „Hvort Reykjavíkurborg eigi að kaupa fasteign sem er í eigu fyrirtækis sem er í eigu borgarinnar, það er svo annað mál sem að við verðum að taka afstöðu til þegar að það kemur inn í borgarráð og mér finnst það á engan hátt tengjast því hvort það takist að ná samningum um leigu á Perlunni,“ segir Júlíus Vífill en hann leggur áherslu á að samningar um leigu á Perlunni séu raunverulega það verkefni borgarráð hefur falið borgarstjóra að annast.

Að sögn Júlíusar Vífils er það grundvallaratriði að ef góðir samningar nást á milli Reykjavíkurborgar og ríkisins um húsaleigu vegna Perlunnar, og fyrir Náttúruminjasafnið, til næstu 15 ára, þá gæti það orðið að mjög mikilvægri tekjulind fyrir Orkuveitu Reykjavíkur sem menn sáu ekki fyrir.

Aðspurður hvort ekki sé einkennilegt að borgin sé að kaupa fasteign af fyrirtæki sem er nær algjörlega í eigu hennar segir Júlíus Vífill: „Það er náttúrlega þetta sem maður hnýtur um, að Reykjavíkurborg skuli vera að kaupa eign sem að hún raunverulega á með óbeinum hætti í gegnum fyrirtæki sem er nánast alfarið í eigu borgarinnar.

Það er þess vegna sem við sitjum hjá og viljum sjá þessa samninga þegar að þeir koma til baka og þess vegna greiðum við ekki atkvæði gegn þessu vegna þess að ef það nást góðir samningar við ríkið þá fögnum við náttúrlega því.“Þetta er ekki spenandi ,als ekki að setja þarna Núturgripasafn ,er ekki það almenningur vill,það ber að hafa alskona sýningar þarna og veitingar þetta er einn besti úsynistaður í R.vík.og ber að hafa hann sem hann hefur verið áfram,og láta hann skila aðrði ekki spurning að það gerir hann bara borga þarna inn!!!!!,og vera með allskonar sýningar þarna,en ekki nátúrgripasafn!!!Þetta er bara feigaðarflan!!!!!!!!/Halli gamli


mbl.is Gæti orðið mikilvæg tekjulind fyrir OR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. nóvember 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047927

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband