1.12.2012 | 18:03
Þyrfti jafnvel fjóra flokka/þetta er svo að margt er í spilunum,en hvað vill fólkið??
Þyrfti jafnvel fjóra flokka Innlent | mbl | 1.12.2012 | 17:01 Verði niðurstöður þingkosninganna í vor á hliðstæðum nótum og skoðanakannanir hafa bent til undanfarna mánuði er útilokað að hægt verði að mynda ríkisstjórn án þátttöku Sjálfstæðisflokksins með færri en þremur flokkum.
Hins vegar er allt eins líklegt að fjóra flokka þyrfti til ef mynda ætti stjórn án sjálfstæðismanna. Eins og mbl.is greindi frá í morgun mælist Sjálfstæðisflokkurinn með tæplega 36% fylgi samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Capacent Gallup en það er svipað og hann hefur mælst með undanfarin tvö ár.
Mest hefur fylgi flokksins farið í 39% á kjörtímabilinu sem gerðist síðastliðið vor en minnst fór það í 25% í maí 2009. Flokkurinn fékk 23,7% í síðustu þingkosningum í apríl sama ár. Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir forstumenn ríkisstjórnarinnar en hún nýtur stuðnings um þriðjungs kjósenda.
mbl.is/Golli Framsóknarflokkurinn er með 12,7% fylgi nú samkvæmt þjóðarpúlsinum sem er með því minnsta sem flokkurinn hefur mælst með á kjörtímabilinu.
Mest fór fylgið í 18% í september 2009 og 17,6% í júní 2011 en minnst mældist það í september 2010 eða 11,8%. Fylgi flokksins var 14,8% í þingkosningunum 2009. Þriðjungur styður ríkisstjórnina Samfylkingin mælist nú með 22,5% fylgi sem er hliðstætt og flokkurinn hefur fengið í mörgum skoðanakönnunum undanfarin tvö og hálft ár.
Lægst hefur fylgi Samfylkingarinnar farið í 17,5% á kjörtímabilinu sem gerðist síðast í mars á þessu ári en mest í 27% í ágúst 2009 en fylgi flokksins í síðustu kosningum var 29,8%. Vinstrihreyfingin - grænt framboð mælist nú með 10,6% og hefur ekki mælst minna síðan í maí á þessu ári þegar það var 10,4% en þá mældist það minnst á kjörtímabilinu.
Mest var fylgi VG í apríl 2010 þegar það var 28%. Flokkurinn fékk um 21,7% síðustu þingkosningum. Samanlagt hafa stjórnarflokkarnir nú 33,1% fylgi en fylgi við ríkisstjórnina mælist 35%. Björt framtíð er eini flokkurinn sem mælist með meira en það 5% fylgi sem þarf til þess að fá fulltrúa á þing. Flokkurinn mælist nú með 8,1% og hefur fylgið vaxið talsvert undanfarna mánuði. Önnur framboð fá minna en 5% sem er óbreytt staða frá fyrri mánuðum.
Dögun mælist með 3,8%, Hægri grænir með 3,3% og Samstaða með 1,9%. Fengju samanlagt 45,8% fylgi Ef miðað er við þjóðarpúls Capacent Gallup nú fengju Samfylkingin, VG og Framsóknarflokkurinn þannig samanlagt 45,8% fylgi ef vilji væri fyrir því að mynda slíka ríkisstjórn án þátttöku Sjálfstæðisflokksins. Slík ríkisstjórn gæti þó hugsanlega fengið meirihluta á þingi ef nógu mörg atkvæði dyttu dauð niður vegna þess að minni framboð næðu ekki 5% lágmarkinu og því enga þingmenn.
Hins vegar gæti slík ríkisstjórn haft mjög nauman meirihluta og verið þannig bæði mjög brothætt samstarf í ljósi þess sem og fjölda flokka svo ekki sé minnst á mögulegan málefnaágreining.
Sú ríkisstjórn sem starfað hefur á þessu kjörtímabili hefur þannig einungis haft innanborðs tvo af áðurnefndum flokkum en engu að síður þótt brothætt.
Hugsanlega gæti þó þurft við þessar aðstæður að bæta við fjórða flokknum verði niðurstöður kosninganna í vor á svipuðum nótum og þjóðarpúlsinn.
Nái fleiri minni framboð en Björt framtíð fulltrúum á þing, verði sú raunin, gæti möguleikinn á að mynda ríkisstjórn án þátttöku Sjálfstæðisflokksins síðan minnkað enn frekar þar sem þeir eru líklegri til þess að taka fylgi frá vinstriflokkunum miðað við áherslur sínar en sjálfstæðismönnum.
En hvað sem því annars líður eru nú tæpir fimm mánuðir fram að næstu þingkosningum og ljóst að ýmislegt getur gerst á þeim tíma./////////////Það er mikið spöklerað núna þegar svona skoðunarkannanir koma sem gætu ber verið nokkuð sannar eða svo!! en það er ekki heiglum hægt að segja svona að þetta fari svo og hinsegin,en samt gaman að segja hvað mani finnst ,og .að er ekki sama útkoma hjá okkur öllum með það,ég segi að okkar flokkur sjálfstæðismanna,verði með næstu ríkisstjórn og það byggi ég á því að fólk sé undir niðri orðið mjög þreytt á þessari hreinu vinstri stjórn ,og vilji breyta aftur og reyna annað sem von er,annað er eiginlega ekki i stöðunni/Halli gamli
![]() |
Þyrfti jafnvel fjóra flokka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.12.2012 | 15:41
Björt framtíð með 8,1%/þetta gæti breyst,en áróðurin á 4 flokkin,skrítin mjög 2 menn þaðan þar efstir!!!
Björt framtíð með 8,1% Innlent | mbl.is | 1.12.2012 | 13:43 Björt framtíð mælist með yfir 8% fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup
. Framboðið er eina nýja stjórnmálaaflið sem nær manni á þing samkvæmt könnuninni
Greint var frá þessu í hádegisfréttum RÚV og á vef RÚV.
Sjálfstæðiflokkurinn mælist með 35,9 prósenta fylgi. Fylgi ríkisstjórnarinnar breytist lítið á milli mánaða og mælist nú nálægt 35 prósentum.
Fylgi Samfylkingarinnar eykst örlítið milli mánaða og mælist 22,5 prósent.
Fylgi Vinstri grænna mælist 10,6 prósent en VG hefur aðeins einu sinni mælst með minna fylgi á þessu kjörtímabili.
Það var í maí þegar flokkurinn mældist með 10,4 prósent. Fylgi Framsóknarflokksins mælist 12,7 prósent sem er svipað því sem flokkurinn hefur mælst með í síðustu könnunum.
Björt framtíð mælist nú með 8,1 prósents fylgi og hefur bætt nokkru við sig frá fyrri könnunum.
Í september mældist flokkurinn með undir fimm prósenta fylgi.
Fylgi hinna nýju stjórnmálaaflanna breytist lítið á milli mánaða. Dögun mælist með 3,8 prósent, Hægri grænir með 3,3 prósent og Samstaða með 1,9 prósent.
Könnunin var gerð 1.-29. nóvember. 5.759 voru í úrtakinu og var svarhlutfallið 60 prósent. 73,1 prósent tók afstöðu til flokka.
Rúm 12 prósent ætla ekki að kjósa eða ætla að skila auðu en tæp 15 prósent gáfu ekki upp afstöðu sína.//////////////Þetta eru jú fréttir og að mér finnst ótrúverðar en könnunin lýgur ekki!! en annað svona eftir bókinni nema að Samfylking er aðeins að bæta við sig,sem kemur manni á óvart,en samt meira á óvart,ein og 4 flokknum er bölvað og sagður í alla staði óhæfur,eru þessir fremstu menn þar komnir úr honum,og hvað eru þeir betri þarna í öðrum flokki ??þessi pólitík er skrítin mjög!!það hefur orðið miklar breyting í sjálfstæðisflokki og Framsókn !!en sáral´til sem engin hjá V.G. og Samfylkingu,samt er talað um sama liðið í þessum flokkum,það er bara áróður og ekkert og ekkert annað,en af hverju geta menn og flokkar ekki breyst og tekið sig á??þessi áróður á 4 flokkinn er bara fólk sem vill eitthvað sem heitir bylting ,og kannski líkt Besta flokksins,vill það virkilega láta það koma upp að það fólk stjórni landinu??Þetta á ekki að vera illa meint ,en samt veður þetta að segjast,það eru erfiðir tímar framundan og stórar ,ákvarðanatökur fyrir næstu Ríkisstjórn,og við vonandi berum gæfu til að breyta frá því sem nú er!!ekki meiri hreina vinstri stjórn!!!við viljum framfarir og hagvöxt,og það skal takast ef vilji er fyrir hendi!!!!/Halli gamli
![]() |
Björt framtíð með 8,1% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 1. desember 2012
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1047930
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar