11.12.2012 | 23:17
Hættur störfum hjá Heimssýn/Æi var þetta nu nausinlegt,bara spyr??
Hættur störfum hjá Heimssýn Innlent | mbl.is | 11.12.2012 | 22:11 Páll Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Heimssýnar tilkynni á stjórnarfundi samtakanna í kvöld að hann hefði ákveðið að segja upp starfi.
Ákvörðunin er tekin í kjölfar gagnrýni sem hann varð fyrir eftir að hann skrifaði á Heimssýnarblogginu að verkefnið væri að koma VG niður fyrir 5% í næstu kosningum. Páll hefur verið framkvæmdastjóri Heimssýnar í þrjú ár, en samtökin berjast gegn því að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu.
Formaður Heimssýnar sendi frá sér yfirlýsingu í gær vegna skrifa Páls. Páll brást við henni síðar um daginn. Þegar fyrir liggur að fullveldissinnar neita að starfa í Heimssýn vegna þess að ég er þar fyrir á fleti er mér ljúft og skylt að hætta störfum hjá samtökunum sem ég tók þátt í að stofna árið 2002.
Ég hætti störfum hjá Heimssýn í fullri sátt við formann samtakanna, Ásmund Einar Daðason, sem ég styð heilshugar til áframhaldandi formennsku. Ég hef starfað með Ásmundi Einari frá því hann tók við formennsku fyrir þremur árum og aldrei borið skugga þar á - jafnvel ekki síðustu daga þegar við höfum haft í frammi ólíkar áherslur til hlutverks Heimssýnar í opinberri umræðu.
Stjórn Heimssýnar þakkaði ég ánægjulegt samstarf á liðnu ári og óskaði þeim stjórnarmönnum velfarnaðar sem gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu, en aðalfundur Heimssýnar er á morgun.
Ég mun starfa áfram með Heimssýn sem óbreyttur félagsmaður og njóta þess að hafa svigrúm sem almennur borgari að taka þátt í þjóðfélagsumræðunni, segir í yfirlýsingu sem Páll sendi frá sér í kvöld.///////Er nokkur ástæða til mikillar reiði þarna ég hefði sjálfur sem stið heimsýn sagt þetta og mikið verra um V.G.og almennt um þá sem vilja þarna inn í ESB og ég sé ekki ástæðu til annars en að við gerum það auðvitað eru menn sem vilja þarna inn i öllum flokkum en það er ekki stefjan þeirra flokka eini flokkurin sem hefur þessu stefnu er samfylgingin,svo kannski áekki að tala um flokka heldur menn og konur,En þetta er kannski viðkvæmt mál fyrir Formanni því það eru menn í Framsókn en sem vilja þarna inn,einnig í mínum flokki,en Páll talar og má það er ekki málfrelsi í landinu!!/Halli gamli
![]() |
Hættur störfum hjá Heimssýn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Virkjanir geta bætt umhverfið Innlent | mbl.is | 11.12.2012 | 20:01 Sumar virkjanir sem ráðist hefur veriðí á Íslandi hafa bætt umhverfið.
Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, í umræðum um rammaáætlun. Önnur umræða um rammaáætlun hófst á Alþingi í dag.
Sigmundur Davíð sagðist í sinni fyrstu ræðu við þessa umræðu ætla að ræða fyrst og fremst almennt um orkumál á Íslandi.
Sex þingmenn eru á mælendaskrá. Framsóknarmenn vilja að rammaáætlun verði ekki afgreidd á þessu þingi, heldur verði áætluninni vísað aftur til ríkisstjórnarinnar.
Tillagan eins og hún lítur út núna sé ekki í samræmi við tillögu verkefnisstjórnar og geti því ekki verið grunnur að sátt í virkjanamálum.
Sigmundur Davíð nefndi virkjanir í Soginu sem dæmi um virkjanir sem hefðu bætt umhverfið. Þegar Ljósafossvirkjun hefði verið tekin í notkun árið 1937 hefði tekist að útrýma að mestu kolaeldavélum í Reykjavík og dregið hefði úr kolakyndingu. Þetta hefði bætt umhverfið.
Ljósafossvirkjun og Írafossvirkjun væru auk þess fallegar virkjanir sem færu vel í landslagi. Þyrfti 2000 vindmyllur Sigmundur Davíð sagði að stórar virkjanir sem byggðar hefðu verið hér á landi á seinni árum hefðu verið ein meginstoð í uppbyggingu velferðarkerfisins á Íslandi á seinni hluta 20. aldar.
Ef þær hefðu ekki verið byggðar væru kjör almennings verri en ella. Sigmundur Davíð sagði að aðrar leiðir til að framleiða endurnýjanlega orku hefðu ýmsa galla. Sólarrafhlöður í borgum væru alls ekki fallegar. Vindmyllur væru víða erlendis orðnar hrein plága.
Hann sagðist ekki hafa á móti því að gera tilraun með að reisa vindmyllur hér á landi, en benti á að ef ætti að framleiða þá orku sem Kárahnjúkavirkjun framleiðir þyrfti að reisa tæplega 2000 vindmyllur.
Um 2.000 vindmyllur þyrftu landssvæði sem væri um 440 ferkílómetra stórt sem er um 8 sinnum stærra en Hálslón. //////////////Við erum ekki á eitt sátt þarna og verðum aldrei,það er skiljanlegt að vissu marki!!!ef við gætum bara lifað með gamla tímanum og lifistantandið sem var er þetta hægt,en ansi er maður viss um að það vill þorrinn ekki,bara als ekki,og til að afla gjaldseyris til innkaupa als sem okkur vanar,og hvað,eftir því sem komið er fyrir okkur erum við það skuldug að lifa af er ekki nóg,við skuldum 2-4 þus.milljarða og verðum að borga á næstu árum sumt meira að segja mjög fljótt!!og hvað ekki gagnar krónan til þessa ekkert beinharður gjaldeyrir og ekkert annað,og hvernig öflum við hans,með því að fiska og selja út og álverum sem eru svipað í útflutning og fiskurinn,svo tæknigeirinn hann að verða stór,siðast er ferðamennskan,sem er að verða mjög aukandi!!en við eigum mikið af ónotaðri orku í ám og fljótum og jarðvarma,það ber okkur að nýta annars fer illa ekki spurning,það bara verður,ekki bara skoða,það verður!! í krafti þess að borga skuldir okkar!!!öðru vísi verður það ekki get,alveg sama kvað þetta græna fólk segir,við getum þetta með mikið meiri prýði en er þarna í dag,víðast hvar!!!! annað er bara ekki stöðunni!!!///Halli gamli
![]() |
Virkjanir geta bætt umhverfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimm ár fyrir lán yfir helgi Innlent | mbl | 10.12.2012 | 20:40 Lán Glitnis banka til Milestone sem veitt var föstudaginn 8. febrúar 2008 og greitt upp mánudaginn 11. febrúar 2008 gæti orðið til þess að fyrrverandi forstjóri bankans verði dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi.
Í fyrsta stóra máli sérstaks saksóknara skal línan lögð. Aðalmeðferð í málinu lauk síðdegis í dag en hún hófst á mánudag fyrir viku.
Í dag fór fram munnlegur málflutningur og stóð hann frá klukkan níu í morgun til rúmlega fimm síðdegis. Aðilar máls virtust lúnir þegar yfir lauk.
Eins og komið hefur fram er málið höfðað af sérstökum saksóknara á hendur Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, og Guðmundi Hjaltasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs sama banka. Þeim er gefið að sök umboðssvik með því að hafa ákveðið og samþykkt 102 milljóna evra peningamarkaðslán til Milestone föstudaginn 8. febrúar 2008.
Erfitt að finna sönnunargögn Fyrstur til að flytja mál sitt í dag var Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, saksóknari hjá sérstökum saksóknara. Hann byrjaði rólega og fór yfir almennt yfir efnahagsbrot. Benti á að vægi skjallegra gagna væri mikilvægari en þegar um önnur brot á við.
Sagði lítinn hluta slíkra brota tilkynntan lögreglu og enn minni hluta enda fyrir dómi. Guðmundur Hjaltason, Lárus Welding og verjendur í Héraðsdómi Reykjavíkur. Morgunblafdeg;ifdeg;/Styrmir Kfiexcl;ri Hann sagði efnahagsbrot veikja efnahagslíf, gengisfella traust manna á því og minnka vilja manna til að fjárfesta
. Ennfremur sagði Hólmsteinn að það væri ekki séríslenskt að fjármálakrísa geri vart við sig á Íslandi. Aðrar þjóðir hafi gengið í gegnum það sama. Reynsla Norðmanna sé sú að erfitt sé að finna sönnunargögn um efnahagsbrot, sem séu falin, og vitni veiti sjaldnast framburð um brotin.
Að loknum inngangi fór hann stuttlega yfir peningamarkaðslán og þær reglur sem giltu innan Glitnis um þau lán. Hann sagði að samkvæmt þeim reglum lutu lánin almennum lánareglum bankans. Þær reglur kveði á um útlánamörk og heimild til útlánatöku. Mörkin voru 17% af eiginfjárhlutfalli bankans. Peningamarkaðslánið til Milestone, sem ákært er fyrir, taldist hluti af heildar áhættustöðu bankans og urðu að rúmast innan heimildar.
Kannast við að samþykkja útgreiðslu Eins og svo oft hefur verið farið yfir er forsaga málsins sú að félagið Þáttur International var með lán hjá fjárfestingabankanum Morgan Stanley. Að veði voru hlutabréf í Glitni, um 7% þegar Morgan Stanley ákvað að gengisfella lánið yrði það ekki greitt. Og það skyldi greiða 8. febrúar 2008. Þáttur tengdist Milestone en síðarnefnda félagið ábyrgðist fjárhagslegar skuldbindingar þess fyrra.
Óumdeilt er í málinu að Glitnir veitti Milestone 102 milljónir evra um miðjan dag 8. febrúar og var því ráðstafað inn á evrureikning Milestone og í beinu framhaldi var lánið greitt. Saksóknari benti á að Lárus og Guðmund kannist við að hafa samþykkt útgreiðslu lánsins umræddan dag en neiti að hafa gefið leyfi fyrir því að lánið færi til Milestone.
Þeir hafi haldið fram að útgreiðsla lánsins til Milestone hafi verið framkvæmd án þeirra heimildar eða vitneskju. Tilgangurinn skýr Ákæruvaldið telur sönnunargögn sýna að lánið hafi ávallt átt að vera Milestone til framdráttar.
[...] Raunverulegur tilgangur lánveitingarinnar er skýr sama hvaða formflækjur voru undirbúnar á undan, sagði Hólmsteinn Gauti. Hann vísaði til tölvupóstar sem Lárus sendi Guðmundi 31. janúar 2008 sem varðaði gjaldfellingu Morgan Stanley.
Í því kom fram hjá Lárusi að um væri að ræða mál sem bankinn þyrfti að taka þátt í að leysa. Hann velti því upp hvort hægt væri að lána Milestone til styttri tíma og hvort félagið gæti selt fasteignir til að greiða til baka.
Með þessum tölvupósti kemur skýrt fram yfirlýsing Lárusar Welding um að Glitnir muni leysa þetta mál með Milestone og upp frá því var unnið því markmiði innan bankans. Lárus með málið í sínum höndum Hólmsteinn vitnaði svo í annan tölvupóst frá Lárusi til Guðmundar frá 3. febrúar 2008 þar sem hann spurði um stöðu málsins. Lárus er greinilega með málið í sínum höndum, sagði Hólmsteinn.
Starfsmenn á fyrirtækjasviði bankans fengu það hlutverk að undirbúa lánveitinguna. Kynning var haldin fyrir áhættunefnd bankans 5. febrúar 2008 og var þar rætt um tryggingar að leyst verði úr fjármögnun lánsins. Daginn eftir fundaði áhættunefnd bankans á ný og samþykkti að lána 102 milljónir evra til óstofnaðs félags, Vafnings. Inn í það skyldu renna eignir, m.a. skýjakljúfur í Macau.
Saksóknari sagði að yfirlýstur tilgangur þess að lána Vafningi hafi verið að lána félagi utan við Milestone, vegna þess að óheimilt var að lána því félagi án þess að stjórn bankans heimilaði það. Hefði lánið verið veitt Milestone væru útlán til þess komin yfir 17% af eiginfjárhlutfalli bankans, sem var óheimilt.
Ekkert liggur fyrir um að stjórn bankans hafi átt nokkra aðkomu að málinu og ekki að slíkt hafi staðið til. Augljóst var hins vegar að það voru hagsmuni Milestone sem átti að tryggja, sagði Hólmsteinn og bætti síðar við að Milestone hefði átt um 75% hlut í Vafningi, í gegnum beint eða óbeint eignarhald.
Þá reyndar spurði Skúli Magnússon, héraðsdómari, hvers vegna ekki hefði verið ákært fyrir lánið til Vafnings, en fátt var um svör.
Forsendur brostnar fyrir sjö Föstudagurinn 8. febrúar 2008 rann upp. Hólmsteinn Gauti sagði að strax fyrir klukkan sjö um morgun hefði Guðmundi Hjaltasyni verið það ljóst að ekki væri hægt að lána Vafningi þann dag. Það hafi komið fram í tölvupósti sem hann sendi Lárusi kl. 6.59.
Áfram hafi þó verið unnið að lánamáli Vafnings, þó forsendur hafi ekki verið fyrir hendi. Sú staðreynd að haldið var áfram með lánamálið sýnir að áherslan var á að tryggja lánið færi til Morgan Stanley þennan föstudag, óháð því hvernig lánið væri afgreitt, sagði saksóknari.
Hann sagði gögn málsins gefa skýra mynd af því sem gerðist umræddan dag. Forsendur lánsins voru brostnar, fjármögnun þess gekk erfiðlega, erfiðlega gekk að fá undirskriftir á veðskjöl og erfiðlega gekk að færa eignir inn í félagið. Augljós skýring er að þær tafir sem voru á því að færa eignir inn í Vafning urðu til þess að Glitnir treysti sér ekki til að lána félaginu.
Skipti þá engu að Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason voru búnir að undirrita lánasamninginn. Sá samningur var lítils virði á meðan félagið var eignalaust. Engin þörf á undirskriftum Á svonefndu ádráttarskjali lánasamningsins við Vafning voru hripuð niður greiðslufyrirmæli um peningamarkaðslán til Milestone, yfir nótt.
Á sama blað voru undirskriftir Lárusar og Guðmundar. Óumdeilt er í málinu að ákærðu undirrituðu ádráttarskjalið og það kvað á um peningamarkaðslánveitingu til Milestone. [...] Þeir kannast við að hafa greitt út til Morgan Stanley en ekki að lánveitingin hafi farið til Milestone, sagði Hólmsteinn og bætti við þeim rökum Lárusar og Guðmundar að skjalinu hefði verið breytt eftir að þeir skrifuðu undir það. Hann sagði allt benda til þess að skrifað hafi verið undir skjalið á þeim tíma sem lánið var greitt út.
Undirritanirnar hafi ekki getað þjónað öðrum tilgangi en að heimila peningamarkaðslán til Milestone. Það var hvorki þörf á því að útbúa skjalið né undirrita það af þeim Lárusi og Guðmundi, sagði Hólmsteinn og vísaði í að ádráttarskjöl séu fyrir lántakendur og undir þau sé venjulega ekki skrifað. Molnaði undan lánveitingunni Hólmsteinn sagði afar ótrúverðugt að Lárus og Guðmundur hefðu ekki vitað af peningamarkaðsláninu fyrr en við yfirheyrslur hjá sérstökum saksóknara
. Gögn málsins beri með sér að þeir hafi komið að öllum öðrum þáttum málsins, bæði fyrir og eftir lánið til Milestone. Þeir hafi verið að fullu meðvitaðir um þá atburðarrás sem lauk með því að Milestone var veitt peningamarkaðslán, í miklum flýti og með mjög óvenjulegum hætti.
Eftir útgreiðslu lánsins hafi svo verið unnið áfram að lánamáli Vafnings. Lauk því með að Glitnir lánaði Vafningi mánudaginn 11. febrúar 103 milljónir evra. Var þá lán Milestone við Glitni greitt upp að fullu. Saksóknari ber við að Lárus og Guðmundur hafi verið lykilmenn í atburðarrásinni.
Allan föstudaginn hafi verið molna undan lánveitingunni til Vafnings og þeir leitt málið allan þann dag. Ekki hafi verið haldinn fundur í áhættunefnd heldur þeir tekið ákvörðun utan fundar um að lána til Milestone. Alvarlegt trúnaðarbrot Að sögn saksóknara var lánveitingin veitt án heimildar og án trygginga. Ákvörðun sem þessa hefði þurft að bera undir stjórn bankans en það hafi ekki verið gert. Stjórn bankans hefði ábyggilega gert alvarlegar athugasemdir við þetta lán.
[...] Öll atburðarrásin ber það með sér að ákærðu vildu forðast það eins og heitan eldinn að bera þetta undir stjórn heldur keyra þetta í gegn í flýti og stofna fé bankans í stórfellda hættu. Hann sagði þá vörn að komin hefði verið á lánasamningur við Vafning engu breyta enda hafi það verið eignalaust félag á þessum tíma.
Brotið hafi verið fullframið með því að lána Milestone og ekkert hafi verið endurheimt af þeim peningum sem lánaðir voru. Hann sagði allar greiðslur eða endurgreiðslur hafa falist í nýjum lánveitingum frá Glitni. Hólmsteinn sagði sannað að ákærðu hefðu brotið gegn lánareglum bankans með lánveitingunni.
Brotin felist í því að þeir misnotuðu aðstöðu sína innan bankans og væri um alvarlegt trúnaðarbrot að ræða. Heimildarlaus ráðstöfun á gríðarlegum fjármunum hefði leitt til fjártjónshættu fyrir bankann og langstærsti hluti lánsins sé tapaður.
Þó þeir hafi ekki auðgast persónulega sé brot þeirra stórfellt og sakir miklar. Því sé refsing hæfileg fimm og hálfs árs fangelsi yfir Lárusi og fimm ár yfir Guðmundi. Síðar í kvöld verður vikið að málflutningi verjenda Lárusar og Guðmundar. Tengdar fréttir Glitnismenn fyrir dóm/////////////Hvernig sem má þarna fara,verður þetta mjög svo umdeilt mál að mínu mati og margra ábyggilega leikra og lærða!!!en maður verður að lesa þetta til að sjáum hvað málið sníðst,og þegar maður skoðar sé maður ekki annað verjandi hafi rétt fyrir sér,að þetta se bara búið til sem mál sem á að kæra og koma mönnum um koll kvað sem það kostar,!!!ekki er ég að verja þessa útrásarvíkinga als ekki,en lög eru lög og við verum að fara etir þeim er það ekki,ef það er svo tel ég þetta mál mikinn vafa,svo maður tali nú ekki um að hafa þessa menn í fangelsi í 10,5 ár hvað kostar árið okkur,er ekki nær að koma þeim út út landinu ,það legg ég til ef þeir eru sekir,að lostna við þá burt!!!/Halli gamli
![]() |
Fimm ár fyrir lán yfir helgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.12.2012 | 15:29
Ekki hægt að færa skrifstofur þingmanna//nei Alþingi verður að spara einnig sem aðrir!!!
Ekki hægt að færa skrifstofur þingmanna Innlent | mbl.is | 11.12.2012 | 14:12 Öryggismál Alþingis eru í sífelldri athugun hjá skrifstofu þingsins, þar á meðal þeir þættir er snúa að ferðum alþingismanna til og frá skrifstofum sínum í þinghúsið.
Eitt mikilvægasta atriðið í þeim efnum er góð lýsing á Austurvelli og á svæðinu frá Aðalstræti að þinghúsi, bæði fyrir þingmenn sjálfa og fyrir öryggismyndavélar þingsins.
Fundir, sem forseti og starfsmenn hafa haldið með fulltrúum Reykjavíkurborgar til að þrýsta á um viðunandi lýsingu á Austurvelli og í nágrenni Austurvallar, hafa ekki borið árangur enn sem komið er. Lýsing á Austurvelli er á ábyrgð Reykjavíkurborgar.
Þetta segir í svari forseta Alþingis við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, en hún hafði spurt að því í skriflegri fyrirspurn hvers vegna alþingismönnum væri ekki úthlutað þeim skrifstofum sem Alþingi hefði yfir að ráða og stæðu næst Alþingishúsinu og ennfremur hvort tekið hefði verið tillit til tímasparnaðar.
Þá spurði Vigdís einnig að því hvort tekið hefði verið tillit til öryggissjónarmiða þegar þingmönnum hafi verið úthlutað skrifstofum og hvort úttekt hefði verið gerð á öryggismálum þegar kæmi að ferðum þingmanna til og frá skrifstofum sínum.
Vígdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is Þegar skrifstofum alþingismanna er úthlutað, að jafnaði eftir hverjar alþingiskosningar, hefur verið reynt að tryggja að unnt sé að koma hverjum þingflokki, ásamt starfsmönnum hans, auk sameiginlegs fundarrýmis, fyrir í sameiginlegu húsnæði.
Jafnframt hefur þurft að tryggja aðgengi fatlaðra, auk varamannsherbergja á sama svæði. Ekkert húsnæði sem stendur næst Alþingishúsinu uppfyllir þessar kröfur, segir ennfremur í svarinu og að engir útreikningar hefðu verið gerðir á kostnaði við að flytja skrifstofur þingmanna nær þinghúsinu enda væri það ekki framkvæmanlegt.
Í þeim skrifstofuhúsum sem standa á Alþingisreitnum, auk Þórshamars við Templarasund, eru nú tæplega 40 starfsmenn með vinnuaðstöðu
. Í því húsnæði sem ætlað er alþingismönnum, starfsmönnum þingflokka og riturum þingmanna, auk varamanna, eru 73 skrifstofur eða vinnurými. Þar fyrir utan eru svo fundarherbergi hvers þingflokks. Skrifstofu- og vinnurými þingmanna þarf að meðaltali að vera stærra en hjá starfsmönnum, segir að auki í svarinu.////////////Okkur leikmönnum kemur á óvert hversu mikið hefur þara farið fram í framförum vinnuðstöðu Alþingis,getum auðvitað séð það í reikningum ef við höfum áhuga,sem við höfum ,þetta er gífurlegur peningur sem þetta kostar allt!!og eins og er stoppa við þetta nú um sinn,veggna sparnaðar sem verður að fylgja eftir!!Öryggi Alþingismanna er bara ein og margra annarra,ekki nein ásæða til að til þeir sé lagt þarna meira en bara heima hjá þeim ef það reyndist er þa lögreglumál!!!einn og bara með mig og þig!!! ég hefði viljað að þessar tölur væru birtar okkur þessi mikilli kostnaður og úfærsla Alþingis grið þið endilega!!!!///Halli gamli
![]() |
Ekki hægt að færa skrifstofur þingmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.12.2012 | 14:30
Ekki rétt að vera með munnbrúk//segir hver!! methafin í ræðumennsku!!!
Ekki rétt að vera með munnbrúk Innlent | mbl.is | 11.12.2012 | 13:48 Það er fráleitt að halda því fram að Ísland hafi ekki lagt sitt af mörkum, sagði Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, í umræðum á Alþingi í dag í svari við fyrirspurn frá Gunnari Braga Sveinssyni, þingmanni Framsóknarflokksins. Gunnar vakti athygli á því að haft væri eftir Mariu Damanaki, sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins, að Ísland hefði engar tillögur lagt fram um lausn makríldeilunnar á þeim samningafundum sem haldnir hefðu verið.
Sagði hann að skilja mætti ummælin svo að lítill tilgangur væri með því að ræða við Íslendinga. Kallaði hann eftir því að ummælum Damanaki yrði mótmælt og þau leiðrétt.
Steingrímur sagði að ef svara ætti öllum þeim ummælum sem beint væri gegn Íslandi vegna makríldeilunnar, þá ekki síst í skoskum og írskum fjölmiðlum, gerðu íslensk stjórnvöld ekki annað.
Hins vegar væri það öllu alvarlegra þegar slíkt kæmi frá sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins.
Hins vegar hefðu stjórnvöld lagt áherslu á að meta það hverju sinni hvort það þjónaði hagsmunum Íslands að svara slíkum ummælum.
Ekki hefði verið litið svo á að það væri landinu í hag að vera með miklar yfirlýsingar og munnbrúk heldur fremur að koma upplýsingum á framfæri og standa síðan í lappirnar við samningaborðið./////////////það heldur áfarm þessi ólýðræðislega framkvæmd Alþingis!!vaða yfir allt og alla þessir stjórnarsinnar,engin samvinna höfð,þetta eru skipanir þessara þvergirðinga:Jóhönnu forsæisráðherra og Steingrímur fjöldaráhráherra,þau ráða þessu ein,þessir skálkar okkar ísendinga í dag!!!og eftir höfðinu dansa limirnir og allt liðið hlýðir,sem eitt!!!!!þessi mál eru ekkert annað en að setja allt á annan endana!!!og það er unnið beint ð því,að gera Alþingi að leiksvæði,eða hvar er lýðræðið,þeir ættu að tala meia um það stjórnarsinnar!!!!/Halli gamli
![]() |
Ekki rétt að vera með munnbrúk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 11. desember 2012
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1047930
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar