Sjötíu milljarðar í sjúkrahús///Þessi kastali þarf að mynka um helming!!!

Sjötíu milLandspítali.ljarðar í sjúkrahús Innlent | mbl.is | 18.12.2012 | 18:44 Áætlaður heildarkostnaður íslenska ríkisins við fyrirhugaða uppbyggingu Landspítala nemur 72 milljörðum króna.

Er þá litið til stofnkostnaðar, kostnaðar við endurbætur á eldra húsnæði og kostnaðar við tækjakaup. Áfallinn kostnaður er 2,7 milljarðar króna. Þetta kemur fram í svari Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra við fyrirspurn Birnu Lárusdóttur, varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins.

Í svarinu segir að forhönnun nýrra bygginga Landspítala við Hringbraut liggi fyrir. Kostnaðaráætlun vegna nýbyggingarinnar hefur verið uppfærð af SPITAL-ráðgjafateyminu til samræmis við forhönnunina sem liggur fyrir til verðlags í október 2012.

Þá hefur kostnaðaráætlun verið rýnd af VSÓ-ráðgjöf og danska ráðgjafarfyrirtækinu NIRÁS. Stofnkostnaður vegna nýbygginga meðferðarkjarna, rannsóknarhúss og sjúkrahótels, samtals um 77 þúsund fermetrar er um 41,1 mia.kr.

Kostnaður vegna bílastæðahúss, tæknihúss, tengiganga og tengibrúa ásamt kostnaði við gatnagerð, veitur, lóð og bílastæði er samtals um 3,2 mia.kr. Rekstur verkkaupa á hönnunar- og framkvæmdatíma, aðkeypt ráðgjöf á hönnunar- og framkvæmdatíma og framkvæmdaeftirlit er um 2,8 mia.kr. Samtals er áætlaður kostnaður við nýframkvæmdir um 47,1 mia.kr.

Áfallinn kostnaður frá 2010 við samkeppni og forhönnun er 1,4 mia.kr. Kostnaður við endurbætur á eldra húsnæði var áætlaður um 11 mia.kr. í apríl 2009. Framreiknað með byggingarvísitölu til verðlags í október 2012 er áætlaður kostnaður við endurbætur um 12,9 mia.kr.

Rétt er að benda á að endurbæturnar eru tímasettar í tveimur áföngum eftir að nýbyggingum er lokið. Kostnaður við lausar innréttingar, húsgögn og tækjabúnað er áætlaður um 12 mia.kr.

Þessi upphæð fer mikið eftir því hvert ástand tækjabúnaðar verður þegar flutt verður í nýbyggingarnar þar sem hluti búnaðar verður fluttur yfir í þær nýju.

Gert er ráð fyrir að búnaðurinn þurfi ekki að koma allur á sama tíma og er miðað við að um 7 mia.kr. þurfi í upphafi og það sem eftir verður dreifist á allt að sjö ár.////////////////Er þetta virkilega það sem á að gera,er ekki hægt að koma með aðrar áætlanir til sparnaðar,og byggja bara part af þessu og sjá svo til,við einfaldlega höfum ekki efni á þessu,þegar allt er í sparnaði og hneisugæslufólkið flýr landið,vega samdráttar og sparnaðar og þrældóms!!!á kvaða lyfjum er þetta fólk,maður bara spyr,svo segja þeir að þetta fé sé ekki tekið frá öðru!!!hvað meina menn,þetta var einnig sagt um Hörpuna hver borgar hana við á næstu 30 árum,eins verður með þennan ekki bara spítala heldur Borg í Borginni svo stórt að það hálfa væri nóg!!!þetta er eitt af stórmenskubrjálæði þessara fínu sem allt vilja betra en venjulegt fólk,það er snobbið sem þarna ræður,ekkert annað,komið niður á jörðina og endurskoðið þetta///Halli gamli


mbl.is Sjötíu milljarðar í sjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvíst með kostnað vegna fullgildingar


Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.óvíst með kostnað vegna fullgildingar Innlent | mbl.is | 18.12.2012 | 21:32 Heildarmat á kostnaði vegna fullgildingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks liggur ekki fyrir. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði innanríkisráðherra út árlegan kostnað vegna fullgildingarinnar.

Í svari ráðherra segir að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hafi verið undirritaður fyrir Íslands hönd árið 2007.

„Á grundvelli þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks sem samþykkt var á Alþingi 11. júní sl. var innanríkisráðuneytinu falið að stýra vinnu fulltrúa allra ráðuneyta við greiningu regluverks með hliðsjón af þeim breytingum sem kann að þurfa að ráðast í svo að fullgilda megi samninginn og í framhaldinu leggja frumvarp fyrir Alþingi um fullgildingu samningsins

.“ Þá kemur fram að ekki hafi verið tekin ákvörðun um að lögfesta samninginn eins og gert hafi verið með mannréttindasáttmála Evrópu heldur lagt upp með að samningurinn verði fullgiltur í samræmi við það sem tíðkast með mannréttindasamninga almennt í íslenskum rétti.

Kostnaður við vinnu vegna þessa var áætlaður 10 milljónir króna í þingsályktuninni, og samkvæmt verkefnalýsingu hennar var fjármunum ætlað að standa undir kostnaði við að þýða samninginn og greiða starfsmanni laun í eitt ár til þess að sinna undirbúningi lagabreytinga.

„Með fullgildingu samningsins verður íslenskt regluverk í samræmi við ákvæði hans. Hvað varðar áhrif á útgjöld ríkis og sveitarfélaga í því sambandi mun það verða metið í tengslum við vinnslu fyrirhugaðs frumvarps.

Ekki er hægt á þessu stigi að leggja mat á heildarkostnað vegna fyrirhugaðrar fullgildingar.“///////////Er ekki komin nógur kostnaður í bili til að tala um eigum við ekki að salta þetta í bili og taka það upp eftir kosningar,þetta er komið nóg af málum til að ræða í þessa þingdaga sem eftir eru!!mikið meira en nóg,þetta liggur fyrir næstu stjórn eins og fleira//Halli gamli


mbl.is Óvíst með kostnað vegna fullgildingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Füle: Talsverður árangur///það hlaut að vera að þetta tæki við sér,! þegar við ættlum að hætta við!!

Füle:Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, sést hér til vinstri á myndinni. Talsverður árangur Innlent | AFP | 18.12.2012 | 17:50 Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segir að talsverður árangur hafi náðst í dag þegar þegar viðræður hófust um sex málaflokka í aðildarviðræðum Íslands og ESB á ríkjaráðstefnu sem fram fór í Brussel. Hann segir að enn eigi þó eftir að ná lendingu hvað varðar sjávarútvegsmál.

„Árangurinn sem við höfum náð í dag er talsvert afrek og á sama tíma er þetta mikil hvatning varðandi þau krefjandi málefni sem við eigum enn eftir að komast að samkomulagi um,“ sagði Füle.

Viðræður eru nú hafnar um 27 af þeim 33 samningsköflum sem fjallað er um.

Kaflarnir sem opnaðir voru í morgun varða efnahags- og peningamál, byggðastefnu og samræmingu uppbyggingarsjóða, umhverfismál, utanríkistengsl, skattamál og frjálsa vöruflutninga.//////////////þetta var viðbúið að þeir tækju við sér snökt ,       þegar þeir sjá alvöru okkar að hætta við allavega í bili!!!!!!!!!!!!!! og taka ekki þátt aftur nema að undatekinni þjóðaratkvæðagreiðslu!!!!!!!!!!sem alltaf hefði átt að vera í upphafi!!!  en svona er þetta og Össur Jóhanna og c/o eru í miklu uppnámi núna og við skulum vona að þau skilji lýðræðið,meirihlutin er að stórum hluta á móti þessu!!!///Halli gamli


mbl.is Füle: Talsverður árangur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tillagan vekur athygli erlendis//það er engin furða,heilindindi hefur ekki verið fyrir hendi!!!!

 

Mynd 629912

Tillagan vekur athygli erlendis Innlent | mbl.is | 18.12.2012 | 16:54 Fréttavefur breska dagblaðsins Daily Telegraph fjallar í dag um þingsályktunartillögu meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis um að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verði sett til hliðar og málið ekki tekið upp aftur nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.

„Ríkisstjórn Íslands er klofin í afstöðu sinni til aðildar að Evrópusambandinu á sama tíma og hún færist nær inngöngu í sambandið,“ segir í fréttinni og ennfremur að utanríkismálanefnd þingsins hafi lagt til að frekari viðræðum verði hætt þvert á afstöðu ríkisstjórnarinnar sem vilji halda áfram ferðinni inn í Evrópusambandið.

Fram kemur að andstaða við inngöngu í Evrópusambandið hafi vaxið á meðal Íslendinga sem hafi upplifað öflugan efnahagsbata í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 á sama tíma og evrusvæðið standi áfram höllum fæti. Vitnað er að lokum í nýlega skoðanakönnun Capacent um að 53,5% vilji draga umsóknina um aðild að Evrópusambandinu til baka en 36,4% vilji halda henni til streitu.

Fréttavefurinn Euobserver.com greinir einnig frá þingsályktunartillögu meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis í dag samhliða því sem fjallað er um það að Evrópusambandið hafi opnað sex nýja kafla „í umdeildum stækkunarviðræðum við Íslands./////////////////Það er svo að eins og Jóhanna samfylgingarmenn og utanríkisráðherrana Össur hafa talað hefur þetta bara verið handan við hornið,og allt að gerast!!!en svo er aldeilis ekki,það hefur svo margt breyst hjá Evrópu og okkur kreppan hefur þar ollið miklu,en þarf ekki til,þetta var gjört á Alþingi með naumum meirihluta að fara í viðræður,en er svo sagt seinna aðlögun og við værum bara með umsókn að fara þarna inn og ekkert annað,en þetta hefur verið umbrot innan ríkisstjórnar einnig og annar flokkurinn klofin þarna og svo aftur og aftur  í skoðunum við í meirihluta sem ekki vilja þarna inn að meðaltali um 67% á móti svo þetta á ekki að koma á óvart,en aðrar þjóðir hafa verið sama sinnis Bretar og einnig Svíar og fl.en þetta vonandi nær fram að ganga ,ef okkur sníðst hugur þá þjóðarathvæði um það!!!!//Halli gamli


mbl.is Tillagan vekur athygli erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvessir af austri í nótt//Við förum bara varlega ,og forðumst slysin,um jólin!!!

HvessiÍ nótt hvessir af austri syðst á landinu.r af austri í nótt Innlent | mbl.is | 18.12.2012 | 16:32 Sunnan- og suðvestanlands, og ef til vill víðar, má áfram gera ráð fyrir hélumyndun á vegum fram á kvöld á meðan helst hægviðri og loftið er jafn rakt og raun ber vitni.

Í nótt hvessir af austri syðst á landinu og reiknað er með hviðum 30-40 metrum á sekúndu undir Eyjafjöllum frá því seint í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Færð og aðstæður Hálka er á Sandskeiði en hálkublettir í Þrengslum og á Hellisheiði.

Hálka eða hálkublettir eru víða bæði á Suður- og Vesturlandi. Á Vestfjörðum er hálka og hálkublettir. Þæfingur er norðan Bjarnarfjarðar á Ströndum og ófært er yfir Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði. Á Norðurlandi vestra er hálka.

Á Norðausturlandi er flughált á Breknaheiði. Hálka eða snjóþekja eru mjög víða en þungfært á Dettifossvegi. Á Austurlandi er víða hálka eða snjóþekja.

Á Suðausturlandi eru hálkublettir nokkuð víða. Lokun Vattarnesvegur (vegur 955-05) verður lokaður í dag 18.12 og á morgun rétt utan við Fáskrúðsfjörð, vegna lagningarvinnu í gegnum vegin við bræðsluna á Fáskrúðsfirði.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá staðsetningu hreindýra hér.///////////////Það er eins gott ef slaknar á frostinu og hvessir mikið sem á að gera,að fara með mikilli gát,og vera vel búinn með  bíl og sjálfur í góðu lagi!!auðvitað er fólk á faldsfæti og menn á sjó fram að jólum og það hvessir einnig á sjó en menn eru því vanir og fari í var eða sigla í land!!!en við bara vonum að allir komist heilir til síns heima,og gleðjist saman um jólin!!!!/Halli gamli 


mbl.is Hvessir af austri í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþingi náði sakomulagi um þinglok fyrir Jól sennilega á Laugard.kemur aftur 14 janúar!!!!

ÞETTA ER GOTT OG VEL AÐ ÞETTA TEKST!!EINNIG AÐ ÞAÐ ER
 
KOMIN NÝR MEIRIHLUTI Í UTANRÍKISMÁLANEFND !!!!!ER AÐ
 
UMSÓKN TIL ESB VERÐI FRESTAÐ,ÞAÐ GOTT MÁL ,OG
 
UMRÆÐA VERUR UM ATKVÆÐAGREIÐSLU FARI FRAM!!!!!!!!,
 
FLJÓTLEGA!!!!!SVO Á AÐ KLÁRA UMRÆÐU UM RAMMAÁÆTLUN
 
OG KJÓSA 14 JAN.
ÞEGAR ÞING KEMUR SAMAN!!!
 
ÖNNUR MÁL VERÐI RÆDD BARA!!!
 
ÞETTA GÓÐUR ENDIR!!!/HALLI GAMLI

Bloggfærslur 18. desember 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband