Þarf að greiða upp 15 milljarða í ár//Þetta er að sliga okkur allt,en hverjum að kenna???

ÞarBjarni Benediktssonf að greiða upp 15 milljarða í ár Innlent | mbl.is | 6.12.2012 | 16:47 Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að horfur séu á að uppgreiðslur lána hjá Íbúðalánasjóði á þessu ári verði um 15 milljarðar, en talsvert hefur verið um að fólk taki lán á lægri vöxtum hjá bönkunum til að greiða upp lán Íbúðalánasjóðs.

Vandi Íbúðalánasjóðs var ræddur á Alþingi í dag að frumkvæði Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Bjarni sagði að vandi sjóðsins væri af tvennum toga, annars vegar afskriftaþörf vegna fjárhagsvanda þeirra sem tekið hafa lán hjá sjóðnum og hins vegar vegna uppgreiðsluvanda.

Hann sagði að þessi uppgreiðsluvandi hefði lengi verið fyrirsjáanlegur, en hann er til kominn vegna þess að árið 2004 var gerð sú kerfisbreyting að lántakar gátu greitt upp lán sjóðsins, en sjóðurinn gat hins vegar ekki greitt upp þau skuldabréf sem fjármögnun hans byggðist á.

Bjarni minnti á að árið 2010 hefði þáverandi félagsmálaráðherra sagt að eigið fé sjóðsins myndi halda áfram að lækka ef ekkert yrði gert. Það vantaði 22 milljarða til að koma eigið fénu upp í 5%. Og tvo milljarða til viðbótar til að viðhalda því.

Á daginn hefði komið að um mikið vanmat væri að ræða því að það vantaði 22 milljarða til viðbótar til að koma eigið fé sjóðsins upp í 3%. Bjarni sagði að markaðsvirði krafna Íbúðalánasjóðs út á markaði væru um 200 milljörðum lægri en bókfært er í bókhaldi Íbúðalánasjóðs.

Íbúðalánasjóður situr uppi með áhættuna Guðbjartur Hannesson sagði að rekja mætti vanda Íbúðalánasjóðs til kerfisbreytinga frá árinu 2004.

Ákvarðanir sem þá voru teknar sýndu að stjórnmálamenn þyrftu að vanda sig. Lántakendum gætu greitt upp lán en Íbúðalánasjóður gæti ekki gert það og sæti uppi með alla áhættuna. Guðbjartur sagði að nú væri mikilvægast að menn tækju sameiginlega á vanda sjóðsins. Ríkisstjórnin hefði sett fram tillögur sem ætti eftir að vinna betur úr.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði að þetta mál sýndi hvers konar mistök hefðu verið gerð við stofnun nýju bankanna. Þá hefði átt að flytja öll íbúðalán bankanna yfir til Íbúðalánasjóð, en lánin fengust þá með miklum afslætti.

Björn Valur Gíslason sagði sérkennilegt að af Sigmundi Davíð að setja málið þannig upp að vandinn hefði átt sér stað eftir hrun. Vandi sjóðsins væri allur kominn til fyrir árið 2009. Þór Sari gagnrýndi harðlega pólitísk afskipti af Íbúðalánasjóði.

Fulltrúar flokkanna hefðu setið í stjórn sjóðsins. Forstjórinn hefði verið pólitískt skipaður og það sama hefði átt við forstjóra Fjármálaeftirlitsins.

Stjórnendur sjóðsins hefðu gert mikil mistök og áhættustýring sjóðsins hefði verið slæm. Vandi Íbúðalánasjóðs vanmetinn Pétur H. Blöndal sagðist telja að vandi Íbúðalánasjóðs vera vanmetinn. Það væri ekki um annað að ræða en að skipta sjóðnum upp og láta kröfuhafa fá núverandi sjóð og stofna síðan nýjan sjóð sem lánaði efnalitlu fólki og fólki á landsbyggðinni þar sem markaðsvirði eigna væri lægra.

Þessi sjóður yrði miklu minni en núverandi sjóður. Pétur sagði að það ætti ekki að vera ríkisábyrgð á lánum til húsnæðiskaupa. Við værum of viljug að veita ríkisábyrgðir.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir tók undir þetta með Pétri. Hún minnti einnig á að Alþingi hefði samþykkt tillögu um rannsókn á starfsemi Íbúðalánasjóðs.

Von væri á niðurstöðum þessarar rannsóknar í upphafi næsta árs. Gunnar Bragi Sveinsson varði ákvarðanir Framsóknarflokksins frá árinu 2004. Hann sagði að á þessum tíma hefði verkamannabústaðakerfið verið komið í þrot og húsbréfakerfið hefði ekki gengið upp og þess vegna hefði verið gerðar breytingar á kerfinu. Hann sagði vissulega rétt að ýmsir hefðu varað við þessari breytingu.

Hann sagði að þeir pappírar sem voru gefnir út á þessum tíma hefðu verið betri söluvara, en það sem hefði hins vegar gerst var að bankarnir lögðu stuttu síðar til atlögu við sjóðinn. Uppgreiðslur lána á þessum tíma hefðu numið um 300 milljörðum og nú væri það sama að gerast aftur vegna lækkunar vaxta.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG, sagði að þessi saga væri sorgarsaga. Vandi Íbúðalánasjóðs hafði hafist með yfirboðum Framsóknarflokksins fyrir kosningarnar árið 2003. Seðlabankinn hefði varaði við þessu eins og kæmi fram í rannsóknarskýrslu Alþingis. Þennan vanda mætti skrifast á Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk.

Vill leggja á uppgreiðslugjald Bjarni minnti á að Samfylkingin hefði farið með þennan málaflokk frá árinu 2007. Lausn á uppgreiðsluvanda sjóðsins hefði legði fyrir allan þennan tíma.

Hún fælist í því að nýta heimild sjóðsins til að leggja á uppgreiðslugjald. Bjarni benti á að sjóðurinn hefði lánað 527 milljarða út á skuldabréf sem gerðu ráð fyrir heimild til að leggja á uppgreiðslugjald. 140 milljarðar hefðu verið lánaðir út á skuldabréf sem ekki væru með slíkt ákvæði

. Þetta fólk hefði tekið lán á hærri vöxtum vegna þess að það vildi eiga möguleika á að greiða lánin upp, en það skipti hins vegar engu máli því þeir sem hefðu tekið hin lánin væru í sömu stöðu. Bjarni spurði hvers vegna ekki væri lagt á uppgreiðslugjald./////////////Ég verð að viðurkenna að þetta mál er erfitt mjög,og engin af því öfundsverður,en það verður að leysa,og orð Bjarna Ben.eru þó raunverleg að menn eru þarna á tvennum kjörum sem ekki eru gott,og það er svo að þessu verður að bjarga á einhvern hátt,ekki að vera ð kenna bara öðrum um,það var svona að Bankarnir okkur vildu hann feigan ,þeir buðu lengri og betri lán og teigðu sjóðinn sem lánaði út á landsbyggðina sem Bankarnir vildu ekki lána til var ekki nógu gott öryggi til endurgreiðslu og svo fór sem fór að þetta gekk eftir að við hrunið kom þetta þeim í koll hjá Sjóðnum þar liggur einnig hundurinn grafin!!ég bar spyr er það þá skömm að gjaldfella eitthvað hjá þessu fólki heldur en miljarðfyrirtækjum sem fóru fram úr sér??? það ber að halda þessum sjóð áfram og hafan fyrir þá sem ekki fá lán í Bönkunum þeir eru margir út á Landbyggðinni og einnig i stóru kaupstöðunum og Borginni okkar einnig,!!Þetta ber okkur að leysa ekki spurning!!/Halli gamli


mbl.is Þarf að greiða upp 15 milljarða í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárlög samþykkt eftir aðra umræðu//Segja þetta bestu fjálög sem haf verið gerð!!Guð hjálpi voru ættarlandi segir maður bara!!

FjárlFjárlagafrumvarp næsta árs.ög samþykkt eftir aðra umræðu Innlent | mbl.is | 6.12.2012 | 15:00 Fjárlagafrumvarp næsta árs hefur verið samþykkt í atkvæðagreiðslu á Alþingi að lokinni annarri umræðu.

Málið fer nú til nefndar fyrir þriðju og síðustu umræðuna. Annarri umræðu um fjárlög 2013 lauk í gærkvöldi og hófst atkvæðagreiðsla um þau á ellefta tímanum í dag.

Atkvæðagreiðslunni lauk kl. 15, en hún stóð um einum og hálfum tíma lengur en reiknað var með. Greidd voru atkvæði um hvern kafla frumvarpsins og tóku fjölmargir þingmenn til máls um atkvæðagreiðsluna, en forseta bárust margar beiðnir um að greidd yrðu atkvæði sérstaklega við ákveðna liði frumvarpsins.

Sýn stjórnarliða og stjórnarandstæðinga á frumvarpið er gjörólík. Oddný Harðardóttir, þáverandi fjármálaráðherra, kynnti fjárlagafrumvarpið í Þjóðmenningarhúsinu í haust. mbl.is

Í framhaldinu hefst sérstök umræða um málefni Íbúðalánasjóðs á Alþingi og þá heldur umræða um ráðstafanir í ríkisfjármálum, eða bandorminn svokallaða, áfram í dag.

Við upphaf þingfundar í morgun var samþykkt í atkvæðagreiðslu að fundurinn muni standa lengur yfir en þingsköp kveða á um.//////////////Í öll þau ár sem ég hefi fylgst með pólitík,eru þetta þau verstu ég hefi séð um alla mína daga og engin vill það heyra að þessi naumi meirihluti skuli leifa sér nokkrum vikum fyrir nýja ríkisstjórn að láta þetta frá sér er bara að mínu mátu sakanæmt ekkert annað að lofa þessu og hinu fram i tíman og taka það jafnvel tvöfalt aftur er ekki í lagi þetta er bara hættulegur leikur að okkur öllum ,sér i lagi þeim sem ekki hafa neitt til að bæta á sig ,og eru blankir eiga valla til nauðþurftar þeir eru margir,mikið fleiri en menn þarna halda!!Að horfa á Alþingi í dag var hræðilegt,það vara farið í að greiða atkvæði um allt í smá greinum og tók langan tíma,og viðhöfð m-örg og leiðinleg orð um að Sjálfstæðismenn og Framsókn ættu ekki að segja mikið allt væri þeim að kenna!!Og þetta á að ganga í fólkið!!! ekki reiknisdæmið um að þetta gengur ekki upp??? það er auka atriði,við erum bara peð sem má fara með eins og skepnur!!!/Halli gamli


mbl.is Fjárlög samþykkt eftir aðra umræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heiðurslaunin stórhækka í kreppunni///Eg mundi lækka þau tímabundið ekki spurning!!!!

Nokkur deilumál fæðast og deyja en ganga stöðugt aftur og eitt þeirra er fjárstuðningur ríkisins við listamenn. Að þessu sinni hefur vakið athygli breytingatillaga við fjárlög en þar er m.a. kveðið á um að heiðurslaun verði nær tvöfölduð (og reyndar ríflega það til þeirra fáu á listanum sem eru undir sjötugu). Þessi hækkun er hins vegar bein afleiðing af nýjum lögum um heiðurslaun sem samþykkt voru samhljóða og með litlum umræðum í vor. Þar er tilgreint að heiðurslaun skuli vera jafn há starfslaunum. „Meginástæðan fyrir því að miða heiðurslaunin við starfslaun listamanna var að fólk á listanum getur ekki líka fengið starfslaun, þetta kom út eins og mismunun gagnvart þeim, þau fengu mun minna en starfslaun,“ segir Björgvin G. Sigurðsson, fyrsti flutningsmaður frumvarpsins um heiðurslaun. Matthías Johannessen fær heiðurslaun listamanna. mbl.is/Kristinn Ingvarsson Listafólk hefur oft ótryggar tekjur og lítil lífeyrisréttindi. En gagnrýnt er að á tímum niðurskurðar og skattpíningar skuli samt vera til nær 40 milljónir aukalega til þessarar viðurkenningar. Og hugsunin að baki heiðurslaunum er býsna þokukennd. Frægð og vinsældir virðast ekki ráða ferðinni þegar verið er að velja: Björk er ekki á listanum, ekki heldur Arnaldur. Hvað er það sem ræður? Heimildarmenn segja að þótt aðallega sé um heiður að ræða sé þögult samkomulag um að viðtakandi skuli yfirleitt vera kominn a.m.k. vel yfir miðjan aldur og peningarnir skipti hann eða hana einhverju máli. Undantekningar hafa þó verið gerðar frá þessum viðmiðum. Pólitík og lifibrauð Oft hafa pólitískar skoðanir haft áhrif þegar listamenn hafa hlotið eða ekki hlotið heiður, á sínum tíma náðist ekki samstaða í borgarráði um að gera sjálfstæðismanninn Tómas Guðmundsson að heiðursborgara Reykjavíkur! Innbyrðis togstreita milli listgreina og einstaklinga í Bandalagi íslenskra listamanna, BÍL, birtist líka í valinu. „Þar tíðkast oft hin breiðu spjótin og gæfustu karlar og konur fyllast trylltum vígamóði enda mikið í húfi, sjálft lifibrauðið,“ segir einn viðmælandinn. BÍL hefur lagt til að úthlutun heiðurslaunanna sé á hendi „faglega skipaðrar nefndar“ en þá myndu þingmenn aðeins ákveða heildarfjárhæðina. Og missa völd. Megas fær heiðurslaun listamanna mbl.is/Einar Falur Ingólfsson En eining náðist á Alþingi í vor um að setja loks lög um heiðurslaun listamanna og tóku þau gildi í september en þingið hafði frá 1991 ávallt gert sérstaka samþykkt um þessi laun þar sem lagarammann skorti. Í nýju lögunum er sett þak á fjöldann, 25 listamenn fá árlega heiðurslaun sem skuli vera jafnhá starfslaunum listamanna og veitt að fullu til 70 ára aldurs en eftir það séu þau 80% af starfslaunum. Fimm af þeim sem gert er ráð fyrir að fái nú heiðurslaun eru undir sjötugu, hinir eru eldri. Starfslaun listamanna eru nú tæp 300 þúsund krónur á mánuði, heiðurslaun voru áður liðlega helmingur þeirra fjárhæðar. Alls er gert ráð fyrir að framlögin verði liðlega 500 milljónir króna á næsta ári. Flokkarnir vilja yfirleitt að sátt ríki um þessi mál en framsóknarmenn vilja þó leggja heiðurslaunin af og veita peningana fremur til að styrkja unga listamenn. Aðrir benda á að heiðurslaun eru ekki tekjutengd þótt öllum sé ljóst að aðstæður séu mjög mismunandi hjá þeim sem sæmdina hljóta. En þess bera að geta að jafnt starfslaun sem heiðurslaun eru skattskyld.//////////////////Þetta er ekki í lagi als ekki!!!við bara mótmælum þessi skilarðslaust,þetta er bruðl ofaná bruðl og við bara mómælum,þetta bara á að nota öðruvísi í að bjarga mannlífum!!!!/Halli gamli

Villandi fréttaflutningur //Það er gróa á leyti víða,og rætið fólk sem að þessu snír!!!

Villandi fréttaflutningur Innlent | Morgunblaðið - greinar | 6.12.2012 | 10:01 „Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar, álitsgjafar á þeirra bandi og ríkisfréttamenn leggjast nú á eitt við að reyna að þrýsta stjórnarandstöðunni til uppgjafar á alþingi“ segir Bergþór Ólason, fjármálastjóri, í grein í Morgunblaðinu í dag.

Segir hann öll verstu og minnst undirbúnu mál ríkisstjórnarinnar eiga víst að renna baráttulaust í gegn. Í þessu skyni séu nú sagðar látlausar fréttir af því að stjórnarandstaðan stundi „málþóf“ á alþingi. Bergþór lýkur grein sinni með þessum orðum:

„Ef menn vilja í raun segja fréttir af því hvað umræða um eitt mál hafi tekið langan tíma frá öðrum, þá eiga þeir að horfa til þess hversu mikið af áætluðum fundatíma hefur farið í málið, ekki hversu lengi hefur verið talað á aukafundum sem ella hefðu aldrei verið haldnir.

En af einhverjum ástæðum gera fréttamenn það ekki.“///////////Það er svona,ef allt til þrýtur,þá bara að segja ósatt eða ekki allan sannleikan!!svona hefur þetta verið,í 4 ár og þarf ekki að fara lengra,auðvirðilegra er hægt að  koma fram í fréttamesku og lítið betri er þau sem þessu stjórna,það er að segja meirihlutin sem á að vera,en oft tæpur!!!/Halli gamli


mbl.is Villandi fréttaflutningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útgjöldin 443 þúsund á mánuði//En hvað á að laga þetta eða hvað,þetta hafi ekki nema sumir als ekki???

ÚtgjöldiMynd 590418n 443 þúsund á mánuði Innlent | mbl.is | 6.12.2012 | 9:01 Neysluútgjöld á heimili árin 2009–2011 voru 443 þúsund krónur á mánuði og hafa aukist um 0,4% frá tímabilinu 2008–2010.

Ráðstöfunartekjur meðalheimilis voru rúmar 514 þúsund krónur á mánuðiNeysluútgjöld á heimili árin 2009–2011 voru 443 þúsund krónur á mánuði og hafa aukist um 0,4% frá tímabilinu 2008–2010. Vísitala neysluverðs hækkaði um 4,0% frá 2010 til 2011 og hafa heimilisútgjöldin dregist saman um 3,5% að teknu tilliti til verðbreytinga.

Á heimili búa að meðaltali 2,4 einstaklingar. Þetta kemur fram í rannsókn Hagstofunnar á útgjöldum heimilanna á árunum 2009-2011.

Ráðstöfunartekjur meðalheimilisins í rannsókninni voru 514 þúsund krónur á mánuði. Ráðstöfunartekjur flestra hópa voru hærri en útgjöld þeirra en neysluútgjöldin voru að meðaltali 86% af ráðstöfunartekjum.

Tekjur heimila, sem þátt tóku í rannsókninni 2009–2011, voru 1,1% hærri en tekjur heimila í rannsókninni 2008–2010. Ráðstöfunartekjur á heimili hækkuðu um 0,7% umfram útgjöld.

Í rannsókninni nú eru neysluútgjöld að meðaltali 86% af tekjunum en voru 87% á tímabilinu 2008–2010. Tekjur þess fjórðungs heimila sem hæstar tekjur hafði voru að jafnaði 147% hærri en þess fjórðungs sem lægstar tekjur hafði.

Útgjöld þeirra tekjuhæstu voru 63% hærri en tekjuminnsta fjórðungsins. Sá fjórðungur heimila sem mest útgjöld hafði eyddi 148% meira en sá fjórðungur sem hafði minnstu útgjöldin.

Tekjur þeirra útgjaldahæstu voru 30% hærri en tekjur heimilanna í útgjaldalægsta fjórðungnum. Í úrtaki voru 3.471 heimili, 1.799 þeirra tók þátt í rannsókninni og var svörun 51,8%.///////////////Þetta eigum við að gleypa sem meðaltal,það er bara ekki svona als ekki,þetta synir ekki hópinn sem býr viðsultarkjör og það er villan við þessi meðaltöl sem alltaf er verið að birta ,nei takið þetta öðruvísi svo rétt útkomi komi fram//Halli gamli


mbl.is Útgjöldin 443 þúsund á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krefjast skýrra svara//Ekki bara þessi hópur bara allir!!!!!!

KrefjasMynd 566434t skýrra svara Innlent | mbl.is | 5.12.2012 | 23:23 „Við erum búin að biðja ríkisstjórnina um að gefa skýr svör: ætlið þið að klára þessa 110% leið eða skilja okkur eftir með þyngri bakpoka en aðra?“ segir Eva H. Baldursdóttir, ein forsvarsmanna Lánsveðshópsins svokallaða.

Það er hópur þeirra sem fengu lánað veð í húseign annarra, t.d. foreldra. Það er hópur þeirra sem fengu lánað veð í húseign annarra, t.d. foreldra, en greiðslan er á nafni og í höndum lántakenda. Með 110% leiðinni er átt við það samkomulag sem gert var á milli stjórnvalda, lífeyrissjóða og fjármálafyrirtækja um að þeir sem skulduðu meira en 110% af verðmæti húsnæðis síns fengju mismuninn felldan niður. Þeir sem fengu lánað veð í húseign annarra áttu ekki kost á þessari leið.

4.000 heimili eru í þessum sporum Að sögn Evu er um að ræða 4.000 heimili sem fengu lán hjá stærstu lífeyrissjóðum landsins. Hún segir að þeir sem voru að kaupa sig inn á fasteignamarkaðinn á árunum 2004-2008 hafi orðið verst úti.

Eva H. Baldursdóttir, ein forsvarsmanna Lánsveðshópsins. mbl.is „Það er klárlega verið að mismuna fólki með því að bjóða þeim, sem tóku annars konar lán en við, upp á 110% leiðina. Í febrúar var stofnaður hópur fjögurra ráðherra, svokölluð sérstök ráðherranefnd, sem átti að útfæra tillögur til að mæta þörf þessa hóps, en ekkert bólar á þeim tillögum,“ segir Eva.

„Það er ólíðandi að það sé verið að mismuna fólki eftir því hvernig það fjármagnaði húsnæðiskaup sín,“ segir Eva og segist vita til þess að fólk sem fékk lánað veð skuldi allt að 150% af andvirði húsnæðis síns.

„Þessi hópur hefur orðið eftir. Við viljum njóta sama réttar og aðrir.“ Það hefur ekkert gerst Hópurinn heldur opinn fund annað kvöld klukkan 20:00 í Odda í Háskóla Íslands.

Þangað hefur forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar og lífeyrissjóðanna, auk þingmanna verið boðið og hafa nokkrir þegar tilkynnt komu sína. „Við viljum fá skýr svör

. Satt best að segja erum við orðin vonlítil um niðurstöðu, stjórnvöld sköpuðu væntingar um að það væri hægt að finna lausnir fyrir þennan hóp með því að skipa ráðherranefndina, en það hefur ekkert gerst.“///////////Er þetta virkilega hægt að ger þetta svona að taka þennan hóp bara út það eru mjög mikið fleiri þarna illa úti mjög,og á láta þá missa sitt/Halli gamli


mbl.is Krefjast skýrra svara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. desember 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1047930

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband