Herdís fer í forsetann/þetta er hennar réttur ekki spurning!!!

Herdís fer í forsetann Innlent | mbl.is | 30.3.2012 | 15:05 Herdís Þorgeirsdóttir tilkynnti á blaðamannafundi í Listasafni Reykjavíkur í dag að hún ætlaði að gefa kost á sér til embættis forseta 
Herdís Þorgeirsdóttir í Listasafninu.
  Íslands.Hún sagðist leggja áherslu á virkara lýðræði í framboði sínu og aukin mannréttindi. Hún sagði að framboð hennar væri ákveðin lýðræðistilraun til þess að kanna hvort fólkið í landinu væri reiðubúið að styðja framboð gegn sitjandi forseta. Hún sagði meðal annars að málskotsréttinum þyrfti að beita af varfærni en þjóðin þyrfti að vita að forsetinn hefði burði til þess að beita honum ef á þurfi að halda. Aðspurð um hvort hún hefði reiknað saman hvað framboðið kynni að kosta sagðist Herdís ætla að reka framboðið með lágmarkstilkostnaði. Heimasíða tengd framboðinu verður opnuð að hennar sögn á næstunni á léninu www.herdis.is.


///////////Þetta er mjög gott að svona frambærileg kona skuli gefa kost á sér í þetta embætti !!Hálærð og mentuð er hún ekki bara Doktor í Lögfræði sem er gott,ég þekki hennar fólk margt bara af góðu einu,það kom til að ég vann í slippélagi í Rvík og Siðar malingarverksmiðjunni,og þar var Afi hennar Tryggvi Ófeigssson stór eigandi og svo niðjar hans urðu stjórnarformenn ,og margir unnu þarna hjá mér af þeirra fólki!!! það eru fleiri að íhuga framboð og það bara gott,en það tek ég persónulega og mikið að fólki sem ég þekki að ekki viljum við Forseta sem vill ganga þarna í ESB og framselja frelsi okkar/En það vill Ó.R.G. ekki svo skoðast hinir//Halli gamli

mbl.is Herdís fer í forsetann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opnaði á breytingar á frumvarpinu///Ekki heyrði ég hann segja það,en vonandi verður það!!!

Opnaði á breytingar á frumvarpinu Innlent | mbl | 30.3.2012 | 11:37 Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra sagði þegar hann mælti fyrir frumvarpi um veiðigjöld að ef veiðigjöldin hefðu verið lögð á árið 2010 hefðu gjöldin skilað 12,5 milljörðum í ríkissjóð. Hann sagðist vera tilbúinn til að ræða um málefnalegar ábendingar um efnisbreytingar á frumvarpinu. Frumvarpið byggir á því að lagt verði 
Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
annars vegar á almennt veiðigjald sem reiknað er með að skili um 4 milljörðum í ríkissjóð á ári. Hins vegar gerir frumvarpið ráð fyrir að lagt verði á sérstakt veiðigjald sem verði háð afkomu greinarinnar. Steingrímur sagði að miðað við þetta frumvarp hefði sjávarútvegurinn greitt um 12,5 milljarða í veiðigjald árið 2010. Gjaldið er mismunandi eftir greinum og sagði Steingrímur að miðað við síðustu 10 ár hefðu uppsjávargreinar greitt veiðigjald í fimm ár af síðustu 10 árum. Botnsjávarveiðar hefðu greitt veiðigjald öll árin nema árið 2004. Það ár hefði veiðigjaldið engu skilað í ríkissjóð vegna lélegrar afkomu sjávarútvegsins. Steingrímur sagði að í tengslum við álagningu veiðigjalda áformaði ríkisstjórnin að gera breytingu á lögum um tekjuskatt þannig að útgerðin gæti fært kostnað við keyptar veiðiheimildir niður í bókhaldi. Þetta myndi ekki síst nýtast útgerðum sem hefðu skuldsett sig til að kaupa veiðiheimildir. Þetta myndi leiða til lækkunar á tekjuskatti útgerðarfyrirtækja umfram það sem leiddi af álagningu veiðigjaldsins. „Ég er móttækilegur fyrir öllum málefnalegum rökum og sjónarmiðum og vil taka þau til greina. Ég vil eiga samstarf við greinina um að skoða það vel, m.a. á grundvelli upplýsinga frá greininni sjálfri, þ.e.a.s. úr bókhaldi einstakra fyrirtækja sem er erfitt fyrir stjórnvöld að nálgast nema þá í samstarfi við slíka aðila. Á hinn bóginn er ég ekki sérlega móttækilegur fyrir stóryrðum eða hræðsluáróðri og hrekk skammt undan slíku,“ sagði Steingrímur undir lok framsöguræðu sinnar. Í greinargerð með frumvarpinu segir að miðað við meðaltal alls tímabilsins 2001–2010 yrðu tekjur að jafnaði 11,8 milljarðar á ári. Það eru nánast jafn miklar tekjur og reiknað er með að veiðigjald muni skila frá og með árinu 2013 í ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2012–2015, sem fjármálaráðuneytið lagði fram sl. haust, en þar er reiknað með 11 milljarða tekjum af veiðigjaldi.////////////Við skulum vona að það verðir gertað breyta þessu til batnaðar eða sníða gallana  af þessu ,það væri góð lausn og öllum til framdráttar,ég segir fyrir mig og hefi ég mikinn áhuga allatíð á útgerð og hefi fylgst með henni alla mína tíð,fékk meir að segja frí frá Slippélganinu í Rvík h/f til að fara til sjós á togurum til að eignast meiri pening!!!hafði allan tíman i vinnu minni hja´slipp mikið af samtölum við skipstjóra og útgerðamenn á öllum  mínum 46 árum i slipp!!!svo maður er ekki bara að tala útí loftið,en samt hefi ég haft skömm á ýmsu þarna i gamla kvótakerfinu þar hefur verið margt misgert,og ber að viðurkenna það,en að þjóðnýta einnig útgerðirnar eins og við eigum fiskin öll,er kol rangt,þessir menn eru að mestu,dugnaðarforgkar og kunn að reka þetta,en það er alltaf einhver sauður i mörgu fé ,bæði til sjós og lands,og við viljum þá ekki,ef þeir ekki eru menn til þessa!!! En svona i rest sjómenn og útgerðamenn eru i heildina afburðafólk,og  ekki gaman að horfa á Alþingismenn tala þá niður,hvernig væri að þeir færu einn og einn  túr til að skoða hlutina,þetta gerðu Jón Baldvin og Ellert Schram,hinir mættu gera það einnig!!!!/Halli gamli

mbl.is Opnaði á breytingar á frumvarpinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við gefumst ekki upp//Nei heldur skal íll gera en ekki neitt!!!!!

„Við gefumst ekki upp“ Innlent | mbl | 30.3.2012 | 0:34 „Við gefumst ekki upp. Við munum halda áfram að vinna að gerð stjórnarskrárinnar í samvinnu og samráði við fólkið í landinu en ekki í bakherbergjum með einhverjum útvöldum. Sjálfstæðismenn stoppa okkur ekki í því,“ sagði Valgerður í ræðu sinni á Alþingi rétt fyrir miðnætti. Valgerður sagði að þingflokki Sjálfstæðisflokksins hafi tekist að koma í veg fyrir að vilji meirihluta Alþingis næði fram að ganga. Hún sakaði þingflokkinn um málþóf og sagði þá  
Valgerður Bjarnadóttir sagði stjórnarmeirihlutann ekki ætla...
hafa talað í 10 klukkutíma í dag. Hún sagði þá hafa komið í veg fyrir að fólkið í landinu fengi að lýsa vilja sínum til þess hvort ný stjórnarskrá yrði samin á grundvelli tillagna Stjórnlagaráðs. Magnús Orri Schram og Helgi Hjörvar á Alþingi í kvöld. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson Málþófið heppnaðast Hún sagði málþóf Sjálfstæðisflokksins hafa heppnast. Hún sagði sjálfstæðismenn kæra sig kollótta um það fjölmarga fólk í landinu sem nú vildi segja hug sinn í því efni hvernig Stjórnarskráin liti út og sagði þá nota gömlu aðferðirnar við gerð nýrrar stjórnarskrár. Valgerður fagnaði þeirri yfirlýsingu forseta Alþingis um að fresta umræðunni um miðnætti og slíta þingfundi. „Hún mun engu skila hér í kvöld,“ sagði Valgerður um umræðuna um málið. Lýðræði skal víkja fyrir kommúnisma Jón Gunnarsson veitti andsvar við ræðu Valgerðar og spurði stjórnarliða hvort þeir væru nú hættir við þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Hann sagði málinu ekki ljúka þó svo að ekki yrðu greidd atkvæði um það í júní og sagði að þegar lýðræði væri annarsvegar skiptu peningar ekki öllu máli. Jón var harðorður í garð stjórnarmeirihlutans og sagði: „Þegar lýðræði og kommúnismi mætast þá skal lýðræðið víkja.“ Hann sakaði „kommana“ í ríkisstjórn um að koma illa fram í umræðum um Stjórnarskrá landsins og sagði slíkt ekki til sóma fyrir neinn. Hann hvatti til þess að umræðan yrði látin fara fram málefnalega og að svo verði boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Vill finna leið til að hægt verði að kjósa 30. júní Helgi Hjörvar veitti einnig andsvar við ræðu Valgerðar og sagði sjálfstæðismenn hrædda við að almenningur fái að láta í ljós álit sitt á málinu. „Með klækjabrögðum hafa þeir komið í veg fyrir, að þeir halda, að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram samhliða forsetakosningum í júní,“ sagði Helgi og hvatti þingið til að leita leið til þess að atkvæðagreiðslan geti farið fram samhliða forsetakosningum, þrátt fyrir núverandi lagaákvæði um að slíkt sé ekki heimilt þannig að sjálfstæðismönnum takist ekki ætlunarverk sitt. Að loknu andsvari Helga Hjörvar frestaði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis umræðunni og sleit þingfundi á miðnætti.//////////Verð að segja að eftir að hafa horft á þetta í dag á Alþingi er maður agndofa,algjörlega þetta er svo alvarlegt mál stjórnarskráinn,að það er ekki tekið svona ferli á það ummræða 1 og engin breyting eða nefnd svo -önnur og það skal klárast og athvæði um að það fari í þjóðaratkvæði án umræðu og svo í nefnd og þar kallaðir fyrir ímsir aðilar,nei þetta ofríki að vera bara áfram og koma þessu frá í atkvæði þjóðarinnar,varð að vera,fundi slitið i reyði þegar það náði ekki fram að ganga,af sagt málþófi sjálfstæðismanna,ekki er borin meiri virðing fyrir Alþingi þarna,það hefur auðvitað siðasta or'i' og þar á að ræða það áfram/Halli gamli

mbl.is „Við gefumst ekki upp“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Iðnaðurinn á móti aðild að ESB/Við eigum ekkert erindi þarna inn!!!!

Iðnaðurinn á móti aðild að ESB Innlent | mbl.is | 29.3.2012 | 10:53 68,8% fyrirtækja innan Samtaka iðnaðarins segjast vera á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu eða sennilega á móti aðild. Veruleg 
Mynd 605614
andstaða er líka við að Ísland taki upp evru. Góður stuðningur hefur að jafnaði verið innan Samtaka iðnaðarins við aðild Íslands að ESB. Andstaðan hefur hins vegar aukist og hefur aldrei verið meiri. Nú segjast 58,7% vera á móti aðild að ESB en 27,4% segjast vera henni fylgjandi. Í könnun sem gerð var fyrir samtökin árið 2007 sögðust 39,4% verið hlynnt aðild og 43,4% vera andvíg aðild. Þegar spurt er hvort Ísland eigi að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu segja 44,4% að við eigum að halda viðræðum áfram, en 43,5% segja að við eigum að hætta þeim. 45% svarenda sögðust á móti því að Ísland tæki upp evru, en 36,5% sögðust vilja að Ísland tæki upp evru. Könnunin var gerð meðal félagsmanna í Samtökum iðnaðarins dagana 12. janúar - 7. febrúar. Könnunin var net- og símakönnun. Úrtakið var 593. 374 svöruðu og var svarhlutfall því 63,1%
 
.//////////Er ekki í raun fokið í flest skjól Efrópusina,það er eiginlega ekki spurning??og hvað svo?? á að halda þessu til streitu,er ekki betra að hætta þvi strax.kosnaðrmynnst og einfaldast,samfylking er að bíða afhroð og minkar daglega,sem er bara gott,en nýju framboðin fá þá óánægðu og það eru bara systurflokkar að mínu áliti,svo þetta stjórnarfar verður bara áfram!!!og aftur,nema fólk kjósi Sjalfstæðisflokk,það kom manni á óvart að Framsókn er ennþá opinn i báða enda!!Hún sannaði að i kvöld stóð með stjórnarflokkunum///Halli gamli

mbl.is Iðnaðurinn á móti aðild að ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. mars 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband