7.3.2012 | 15:58
Segir framsetningu kaupmanna ranga/þetta er ekki nýtt að þetta bílfjandsama fólk láti svona!!!!!
Segir framsetningu kaupmanna ranga Innlent | mbl | 7.3.2012 | 15:05 Varaformaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar segir að upplýsingar í mótmælum kaupmanna vegna fyrirhugaðar lokunar fyrir bílaumferð á Laugavegi í sumar ekki réttar. kjölfar fréttar mbl.is frá því í morgun um óánægju kaupmanna við Laugaveg um fyrirhugaða lokun á götunni í sumar hafði Kristín Soffía Jónsdóttir, varaformaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar samband til að benda á atriði sem hún taldi ástæðu til að leiðrétta. Á lokunarsvæðinu eru 100 rekstraraðilar og í fyrra þegar við prófuðum að gera göngugötu í fyrsta skipti fengum við ríflega 100 undirskriftir, segir Kristín. Listvið

burður á Laugavegi sumarið 2011 þegar hluti götunnar var lokaður. mbl.is/Ómar Óskarsson Hún segir að mjög margir hafi nú skipt um skoðun sem upplifi lokun Laugavegarins sem jákvæðan hlut. Ég er mjög góðu sambandi við kaupmenn á lokaða svæðinu og flestir voru mjög ánægðir með reynslu síðasta sumars, segir Kristín og segir að upplýsingar í fréttinni um að sala hafi dregist saman við lokun séu ekki alveg réttar. Við erum búin að sjá þessar sömu tölur og það er bara ekki rétt, segir hún og bætir við: Ef þú skoðar heildarveltuna þá hefur hún aukist. Ef þú skoðar bari og krár þá hefur veltan þar aukist. Síðan vorum við bara með 11 verslanir sem við gátum borið saman fyrir og eftir og þar er lítillegur samdráttur í smásölu, segir hún og bendir á að fataverslun hafi t.a.m. hrunið um allt land á milli ára og slíkt sé því ekki einsdæmi í miðborginni. 93 rekstraraðilar á lokunarkaflanum Bara á lokunarkaflanum eru 40 verslanir, 25 kaffihús, 23 skrifstofur, 3 hótel og 2 hárgreiðslustofur, segir Kristín og segir því ljóst að minnihluti kaupmanna hafi skrifað undir mótmælin. Samkvæmt upplýsingum frá Jakobi Frímanni Magnússyni, miðborgarstjóra, eru um 150 rekstraraðilar starfandi á öllum Laugavegi. Kristín segir einnig að sú reynsla sem endurspeglist í frétt mbl.is sé ekki hennar upplifun af reynslunni frá því í fyrra. Þá bendir hún á að kaupmenn hafi þá óskað eftir framlengingu á lokun eftir að upphaflegum lokunartíma lauk. Hún segir að umræðan verði að eiga sér stað og að óánægjuraddir eigi að koma fram, en umræðan megi ekki vera skökk. Laugavegur er ekki bara verslunargata Samgönguskrifstofa borgarinnar sendi mbl.is ýmsar tölfræðiupplýsingar frá síðasta sumri. Hluti af þeim er fylgjandi fréttinni hér að neðan. Samkvæmt upplýsingum frá samgönguskrifstofunni fjölgaði fólki í miðborginni síðasta sumar, innstigum í verslanir fjölgaði, mannlíf auðgaðist, heildarvelta á göngugötukaflanum jókst um 20,5%, en um 6,3% ef einungis eru teknir þeir inn í reikninginn sem voru með rekstur bæði árin á svæðinu. Þá segir að veður í júlí í Reykjavík hafi verið verra 2011 en árið á undan, en þrátt fyrir það hafi fólksfjöldi í miðbænum aukist. Einnig kemur fram að hljóðvist hafi batnað, mengun hafi minnkað og að bílaumferð hafi ekki aukist á hliðargötum Laugavegar. Laugavegurinn er ekki bara verslunargata. Einnig íbúðar- menningar- og mannlífsgata. Hjarta borgarinnar, segir í upplýsingum frá samgönguskrifstofunni. Hér að neðan má finna tölfræðilegar upplýsingar frá Reykjavíkurborg um innstig í verslanir og um umferð á svæðinu sumarið 2011.///////þetta er ekki ný bóla að gerast þarna ,þetta vara á fullu þegar ER listin var og hét að allt þetta bílfjandsama fólk flest þarna i 101 var og er þá á móti bílum tekur ekkert tillit til neins nema sínar eigin getu, að engin sem er fatlaður eða eða öryrki eða á bátt með gang megi vera þarna á ferð í rólegheitum á bíl eða faratæki ,þetta er jú verslanir sem þurfa að bera sig og allir vilja komast i,eða á þetta fólk bara að fara í Kringlur og Smáran???Skoðanir eru auðvitða margar á þessu!!! en eigum við ekki að lofa öllum að versla þarna!!!/Halli gamli
![]() |
Segir framsetningu kaupmanna ranga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.3.2012 | 15:41
Öxnadalsheiði ófær/Veturinn er ekki búinn :als ekki!!!!!!
Öxnadalsheiði ófær Innlent | mbl.is | 7.3.2012 | 9:33 Öxnadalsheiði er ófær en víða um land er snjór á vegum og hálka. Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og hálka og éljagangur á Suðurnesjunum. Hálka og

snjór er á flestum leiðum á Vesturlandi. Hálka og éljagangur er á Vatnaleið. Á Vestfjörðum er hálka, snjór og hálkublettir á láglendi. Snjór er á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum, þæfingsfærð er á Klettshálsi. Á Norðurlandi vestra er hálka, ófært er á Öxnadalsheiði en hálka á Vatnsskarði, Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi. Á Norðausturlandi er hálka, snjór og skafrenningur. Hálka er á Víkurskarði en þæfingsfærð er á Hólasandi og í Jökuldal. Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði, Fagradal og Oddsskarði. Þæfingur er á Breiðdalsheiði og Öxi. Á Suðausturlandi er hálka, hálkublettir og éljagangur.//////////þetta synir okkur að veturinn er ekki aldeilis að kveðja!! það er svo að vetrardekkin gilda enn áfullu og eins gott að vera vel áverði með færð og veður!!!enda þessu vön ,en það verður bara að fara hægar i hlutina/Halli gamli
![]() |
Öxnadalsheiði ófær |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.3.2012 | 12:48
Bónuskerfi bílatrygginga afnumið////Bæði gott og slæmt,er þetta ekki bara samráð????
Bónuskerfi bílatrygginga afnumið Innlent | Morgunblaðið | 7.3.2012 | 5:30 Tryggingafélögin hafa á undanförnum árum lagt niður bónuskerfi ökutækjatrygginga og nú hefur Vátryggingafélag Íslands (VÍS) lagt það niður síðast félaga. Í staðinn hafa félögin komið sér upp margs konar afsláttarkjörum um leið

og álag hefur aukist á þá hópa ökumanna sem valda hvað mestu tjóni. Hefur markmiðið með þessu verið að veita bestu viðskiptavinunum bestu kjörin, eins og talsmaður Sjóvár orðaði það. Friðrik Bragason, framkvæmdastjóri vátryggingasviðs VÍS, segir að bónuskerfið hafi verið orðið úr sér gengið og ekki fylgt lengur þeirri hugmyndafræði sem lagt var af stað með í upphafi; að umbuna tjónlausum ökumönnum. Í staðinn hefði félagið lækkað grunniðgjöldin. Heildariðgjöld ökutækjatrygginga hafa eftir sem áður hækkað um 5% undanfarið ár, til samræmis við hækkun neysluvísitölunnar.//////Þetta er og verður umdeilt!!! og svo auðvitað betra fyrir tryggingafélögin ekki spurning, samráð getur aukist og samkeppni minkað??en þetta er og verður skoðað vel og ef ekki reynist hentugt ,verður það ljóst fjótt,ég vona bara að allar tryggingar séu okkur hagstæðar og sniðar að okkar hag ekki bara gróðafyrtæki einokunar sem vil oft verða þvi miður/Halli gamli P/S var i gamlu Samvinnutryggingum þeim tóks að eyða öllum sjóðnum aldrei fengum við neitt þar???? sami!!!
![]() |
Bónuskerfi bílatrygginga afnumið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 7. mars 2012
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.7.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 1047931
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar