Danskir vextir lækka enn/Getum við ekki lært þetta af frændum vorum???

DansDanski seðlabankinn.kir vextir lækka enn Viðskipti | mbl.is | 31.5.2012 | 14:42 Danski seðlabankinn hefur enn á ný lækkað stýrivexti, nú um 0,15 prósentur en bankinn lækkaði síðast vexti sína fyrir réttri viku. Innlánsvextir danska seðlabankans eru nú 0,05% og útlánsvextir 0,45%. Vaxtalækkunin í dag kom á óvart en talið var að peningastefnunefnd danska bankans myndi bíða eftir fundi stjórnar Seðlabanka Evrópu í næstu viku. Danski seðlabankinn hefur síðustu daga keypt gjaldeyri á gjaldeyrismarkaði til að reyna að stemma stigu við gengishækkun dönsku krónunnar en án árangurs.//////Kannski getum við lært eitthvað af frændum vorum og lækkað vexti eða hvað er þetta bara grín!!!Íslenski seðlabankin sem er ríki í Ríkinu gerir allt öfugt við aðra,hvað segir það okkur að allt sé hérna,bara í plati!!!!/Halli gamli


mbl.is Danskir vextir lækka enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæstiréttur hafnaði kröfum Samherja/Aðför Ríkisins að vel reknum fyirtækjum!! en kemst ekkert með áfram með útrásarvíkigana!!!

Hæstiréttur hafnaði kröfum Samherja Innlent | mbl | 31.5.2012 | 14:18 Hæstiréttur hefur vísað frá dómi kröfu Samherja um að húsleit og haldlagning gagna á vegum Seðlabanka Íslands á tveimur starfstöðvum Samherja yrðu dæmdar ólögmætar. Þá hafnaði Hæstiréttur kröfum Samherja um að Seðlabankanum yrði gert að afhenda öll haldlögð og afrituð gögn og eyða öllum afritum haldlagðra gagna, en auk þess að Seðlabankanum yrði, að því frágengnu, gert að skila tilteknum gögnum sem hald var lagt á við húsleitina. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður hafnað þessum kröfum Samherja. „Niðurstaðan kemur náttúrlega á óvart. Það virðist vera alveg sama hvernig málatilbúnaðurinn er, ef aðgerðirnar eru afstaðnar þá virðist ekki vera hægt að bera þær undir dómstóla sem slíkar,“ segir Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður hjá LEX og lögmaður Samherja í málinu. Helgi bætir við að þetta þýði í raun og veru að það sé ómögulegt að bera neitt undir dómstóla í þessu sambandi vegna þess að eðli málsins samkvæmt taki húsleitir jafnan mun skemmri tíma heldur en það tekur að koma málinu fyrir dómstóla. Að sögn Helga vekur það athygli að Hæstiréttur skuli ekki tjá sig um ýmis mikilvæg atriði sem Samherji byggði á. „Hæstiréttur virðist ekki tjá sig mikið um það að gögn sem Seðlabankinn lagði fram í upphafi hafi verið bæði villandi og röng,“ segir Helgi. Helgi gagnrýnir sérstaklega afstöðu dómsins varðandi það atriði að Samherja var ekki gefinn kostur til að tjá sig fyrir héraðsdómi þegar málið var tekið þar fyrir. „Í dóminum er einnig talað um það að það hafi að vísu verið brot á réttindum Samherja að vera ekki boðaðir til þinghaldsins, þegar þetta var tekið fyrir, en það er samt ekki talið það merkilegt að það breyti neinu, þannig að maður spyr sig hvort það megi gefa slíka afslætti af mannréttindum.“/////Þetta mál er að verða opinbert hneyksli og ekkert annað,það er verið að ráðast á vel rekið fyirtæki í sjafarútvegi,hvað segir það okkur,að þeir ættla ð koma höggi á útgerðina,en sleppa úrásarbvikingum ekki spurning,svona lítu þetta út fyrir mér allavega!!!!! það eru ólög i þessa landi að menn geti ekki borið hönd fyrir höfuð sér,hver var að tala um Rúsland!!!!/Halli gamli
mbl.is Hæstiréttur hafnaði kröfum Samherja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðbólguhorfur hafa versnað/Hvað segir þetta fyrir skuldara???Takið bara Verðtrygginguna af!!

Verðbólguhorfur hafa versnað Viðskipti | mbl.is | 31.5.2012 | 13:21 Verðbólguhorfur hafa versnað í uppfærðri þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans miðað við spá sem gefin var út í nóvember í fyrra. Miklar verðbólguvæntingar, veik viðbrögð peningastefnunefndar og útlit fyrir áframhaldandi veikingu krónunnar á tímabilinu gerir það að verkum að reiknað er með því að verðbólgan verði vel yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Seðlabankinn búinn að missa tökin Verðbólguvæntingar hafa nú um langt skeið verið umtalsvert yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans og hafa þær farið hækkandi undanfarna mánuði. Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur reynt að hafa áhrif á verðbólguvæntingarnar með ítrekuðum yfirlýsingum um að ef verðbólgan lækki ekki á komandi mánuðum (fram að næsta fundi) muni nefndin bregðast við með hækkun stýrivaxta. Efndir á þessum yfirlýsingum peningastefnunefndar hafa ekki alltaf verið í takt við loforð, segir í Vegvísi Landsbankans. Takmarkað aðgengi að erlendu lánsfjármagni gerir það að verkum að erfitt er fyrir fyrirtæki og stofnanir að endurfjármagna erlend lán mbl.is/reuters Afleiðingin er sú að nú veitir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans og stjórnvalda verðbólguvæntingum heimila, fyrirtækja og fjárfesta litla sem enga kjölfestu. Verðbólguþróunin og stighækkandi langtíma-verðbólguvæntingar allt frá upphafi árs 2011 eru afar sterk vísbending um að Seðlabankinn sé búinn að missa tökin á verðbólgunni. Þegar það er raunin öðlast verðbólgan sjálfstætt líf sem nærist á háum verðbólguvæntingum og víxlhækkunum verðlags og launa. Það getur tekið langan tíma fyrir Seðlabankann að vinna upp þann trúverðugleika sem tapast hefur og herkostnaðurinn, í formi hárra stýrivaxta, verður mun meiri en ef brugðist hefði verið við tímanlega. Búist er við því að atvinnuleysi lækki á spátímabilinu samfara auknum umsvifum í efnahagslífinu. mbl.is/Ómar Óskarsson „Peningastefnunefndin hefur ítrekað leyft sér þann munað að bíða, vona og sjá hver þróunin verður fram að næsta fundi í stað þess að bregðast við þeim hagvísum sem liggja fyrir hverju sinni. Þess ber þó að geta að veikburða vaxtahækkanir nefndarinnar hafa mætt mikilli andstöðu hjá fyrirferðamiklum aðilum í opinberri umræðu, svo sem talsmönnum launþegahreyfinga og hagsmunasamtökum atvinnurekenda. Tilgangurinn með sjálfstæðum Seðlabanka og peningastefnunefnd er hinsvegar sá að peningastefnan taki mið af lögbundnu verðbólgumarkmiði en ekki því hversu vinsælar nauðsynlegar ákvarðanir kunni að verða,“ segir í Vegvísi hagfræðideildar Landsbankans. Hagvaxtarhorfurnar næstu 3 árin eru í stórum dráttum svipaðar og reiknað var með í þjóðhagsspá hagfræðideildar Landsbankans í nóvember. Gert er ráð fyrir heldur meiri hagvexti á þessu ári, eða um 3%, sem einkum skýrist af áframhaldandi krafti í vexti einkaneyslu og fjármunamyndunar. Á næsta ári er útlit fyrir að hagvöxtur hægist niður í 2% en aukist á ný í 3% 2014. Einkaneyslan eykst Gert er ráð fyrir að vöxtur einkaneyslunnar á þessu ári verði meiri en áður var reiknað með en að verulega dragi úr vextinum 2013 og 2014 eftir því sem gengur á sparnað landsmanna enda muni kaupmáttur lítið aukast þessi tvö ár. Spá um þróun samneyslunnar er nánast óbreytt frá því í nóvember en reiknað er með 1-1,5% árlegri aukningu. Útlit er fyrir minni opinbera fjárfestingu í ár eða aðeins um 2% vexti milli ára en meiri aukningu 2013 og 2014. Einnig er nú spáð talsvert minni vexti atvinnuvega- og íbúðafjárfestingar en í nóvember. Krónan veikist Takmarkað aðgengi að erlendu lánsfjármagni gerir það að verkum að erfitt er fyrir fyrirtæki og stofnanir að endurfjármagna erlend lán, segir í Vegvísi Landsbankans. Þetta veldur vaxandi þrýstingi á gengi krónunnar þar sem eftirspurn eftir gjaldeyri er einfaldlega mun meiri en framboðið. Reiknað er með því að gengi krónunnar veikist um 3% árlega á spátímanum, þrátt fyrir áframhaldandi afgang af vöru og þjónustuviðskiptum við útlönd. Búist er við því að atvinnuleysi minnki á spátímabilinu samfara auknum umsvifum í efnahagslífinu. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysið verði 6% að meðaltali árið 2012, 5% árið 2013 og 4,7% árið 2014.//////það er ekkert annað í stöðuni en að taka verðtryggina af og það strax!!!Ef ekki hrinur þetta kerfi allt,og svo bara borga fólkinu sem vill spara,jákvæða vexti ,það er bara hætt að tala um sparnað!!!þetta þjoðfélag er á þvi að gera okkur að aumingjum og nenna ekki að vinna!!þar endar það með 7-9% atvinnuleysi sem er viðvernadi,ef ekki verður tekið á þessu fljótt,endar þetta með hörmungum ekki spurning!!!Halli gamli
mbl.is Verðbólguhorfur hafa versnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn með 43,7%//Þetta er samt afgerandi þó 40% svari ekki!!!

Sjálfstæðisflokkurinn með 43,7% Innlent | mbl.is | 30.5.2012 | 21:16 Samkvæmt niðurstöðu nýrrar könnunar á vegum Stöðvar 2 á fylgi stjórnmálaflokkanna mælist Sjálfstæðisflokkurinn með langmest fylgi eða Alþingishúsið
43,7%. Fjörutíu prósent þjóðarinnar vill ekki taka afstöðu til þeirra flokka sem hyggjast bjóða fram til næstu alþingiskosninga. Var greint frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Samkvæmt þessari könnun hefur fylgi flokkanna tekið umtalsverðum breytingum frá niðurstöðu síðustu kosninga og mælast stjórnarandstöðuflokkarnir nú með mesta fylgið. Framsóknarflokkurinn mælist með 15,8% fylgi á meðan Sjálfstæðisflokkurinn er með 43,7%. Einungis um 23% þeirra sem taka afstöðu styðja ríkisstjórnarflokkana en t.a.m. mælast þeir báðir með minna fylgi en Framsóknarflokkurinn. Samfylkingin er með 13,6% fylgi og Vinstri græn 9,2%. Björt framtíð mælist með 5,3% fylgi og Samstaða með 5,1%. Þá tóku nærri 40% þeirra sem rætt var við ekki afstöðu./////Þetta er samt marktækt að mörgu leyti þó svo 40% svari ekki það væri T.D í kosningum 75% almenn þáttaka þá gæti þetta farið langt,auðvitað ekki alveg svona en næstum því,það er svo að maður skilur þetta á fólki sem var hart og ættlaði ekki að kjósa,vondu flokkana Sjáfstæðisfl.og Framókn,að það er búið að fá mikið meira en nóg af hinni Norrænu Vinstri stjórn og kís hana ekki meira ,en við bara skoðum þetta og spyrjum að leikslokum,Þessi erfiðu mál sem eru nú að gerjast innan þessarar Ríkisstjórnar atvinnuleysið og framkvæmdaleysið segir sitt/Halli gamli

mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn með 43,7%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Bloggfærslur 31. maí 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband