Moody's: Neikvæðar horfur í Þýskalandi//Skal fólk vilja trúa þessu sem þarna vill ganga inn???

Moody's: Neikvæðar horfur í Þýskalandi Viðskipti | AFP | 23.7.2012 | 21:32 Matsfyrirtækið Moody's varar viðMynd 617397  neikvæðum efnahagshorfum í Þýskalandi, Hollandi og Lúxemborg. Slíkt mat fyrirtækisins er fyrsta skref í hugsanlegri lækkun á lánshæfiseinkunn landanna. Moody's segir að löndin, sem öll eru í efsta þrepi einkunnastigans, séu í hættu á að verða fyrir áhrifum af vanda sem steðjar að evrusvæðinu, m.a. vegna þess að Grikklandi ætli hugsanlega að kasta evrunni.//////Svona lesningu er ekki hægt láta fram hjá sér fara,þetta vekur okkur upp með að innganga í ESB er ekki fyrir okkur þetta hlýtur allt að vetra á niðurleið fyrst Þyskaland er komið þarna í lista sem fellur og við sjáum það betur og betur að þarna höfum við ekkert að sækja,nema venjuleg viðskipti!!!/Halli gamli
mbl.is Moody's: Neikvæðar horfur í Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorvaldur: Lennon áfram meðan ég er þjálfari/Loks er Fram að komast á skrið,okkur hlynar um hjartarætur!!!

Þorvaldur: Lennon áfram meðan ég er þjálfari Íþróttir | mbl.is | 23.7.2012 | 21:23 „Er ekki búið að ræða nóg umSteven Lennon.
 Steven Lennon í vikunni,“ spurði Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fram á móti þegar mbl.is spurði hann um stöðu skoska framherjans hjá félaginu eftir sigurinn á Val á Hlíðarenda í kvöld, 2:0, í Pepsi-deildinni í fótbolta. Lennon skoraði síðara mark Fram í leiknum og átti góðan leik en mikil umræða hefur verið um það síðustu daga að hann væri væntanlega á förum frá Safamýrarliðinu. „Lennon er leikmaður Fram í dag og ég er þjálfari liðsins. Hann verður áfram leikmaður Fram á meðan ég er þjálfari,“ sagði Þorvaldur. Aðspurður hvort hann væri ekki ánægður með frammistöðu Skotans í kvöld, eftir allt umtalið að undanförnu, svaraði Þorvaldur: „Já, Lennon er heiðarlegur strákur sem hefur staðið sig vel með okkur og hann spilaði vel í kvöld.“/////Æi það var svo ,því miður að maður var búin að afskrifa Fram!! mitt uppáhaldslið frá barnæsku!!En þeir hafa nú unnið 2 leiki af síðusti 3 ,og það sýnir að þarna er þetta að koma vonandi,þessu liði okkar var spáð ofarlega en það brást en við bara vonum að þetta sé komið til að vera/Halli gamli

mbl.is Þorvaldur: Lennon áfram meðan ég er þjálfari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hneikslin halda áfram,þessa grein Kritsþórs Gunnarssonar Framkv.st. Ísafoldar verða menn að lesa!!!

Aðsendar greinar 23. júlí 2012 06:00 Tweet SendaPrenta Kristþór Gunnarsson framkvæmdastjóri Ísafoldar- prentsmiðju ehf.

Ég ætlaði hreinlega ekki að trúa mínum eigin eyrum, þegar mér var sagt að Framtakssjóður Íslands hefði selt Plastprent ehf. til Kvosar hf., móðurfélags Prentsmiðjunnar Odda. Fyrir örfáum mánuðum afskrifuðu Landsbankinn og Arion banki 5 milljarða af Kvos.

Fyrrum eigendur fengu að halda fyrirtækinu, með því að leggja fram 500 milljónir. Þ.e. fyrir hverja krónu sem eigendur lögðu fram voru 10 afskrifaðar. Er Landsbankinn ekki stærsti eigandi Framtakssjóðsins á móti lífeyrissjóðunum?

Ég veit að þeir sem fengu að bjóða í Plastprent þurftu að sýna fram á 250 milljóna króna fjárfestingargetu. Hvernig gat Kvos hf. sýnt fram á slíka getu? Fyrirtæki sem var nýbúið að fá 5 milljarða niðurfellingu skulda? Þarfnast þetta ekki nánari skoðunar? Gagnsæi verður að vera til staðar, þannig að við sem skiljum ekki, sjáum hvernig töfrabrögðin eru framkvæmd. Kvos var hluthafi í Plastprenti til ársins 2009, þegar Landsbankinn leysti félagið til sín. Þá var Þorgeir Baldursson, forstjóri Kvosar, búinn að vera í stjórn Plastprents í áraraðir.

Heldur Framtakssjóðurinn að eigendur Kvosar séu betur í stakk búnir til að reka Plastprent í dag en þeir voru, þegar þeir ásamt öðrum sigldu því í strand? Annað dæmi er Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, og dótturfélag þess, Landsprent. Árið 2009 komu nýir eigendur inn í félagið með 300 milljónir í nýtt hlutafé og Íslandsbanki lækkaði á móti skuldir félagsins um 4,6 milljarða. Aftur árið 2011, voru skuldir félagsins lækkaðar enn meira eða um 600 milljónir til viðbótar.

Ég er framkvæmdastjóri og einn af eigandum Ísafoldarprentsmiðju. Starfsmenn eiga 85% hlutafjár í fyrirtækinu. Ofangreind tvö fyrirtæki eru okkar stærstu keppinautar. Í dag er búið að afskrifa af þeim 10 milljarða. Hvernig eigum við að bregðast við? Ísafoldarprentsmiðja fékk á sig gengishögg eins og svo mörg önnur íslensk fyrirtæki.

Skuldir okkar tvöfölduðust. Greiðslufrestir okkar hjá erlendum birgjum hurfu. Við brugðumst strax við með ýmsum hagræðingaraðgerðum. Starfsfólkið tók á sig tímabundnar launalækkanir, sem vöruðu sem betur fer ekki í langan tíma og allir settu undir sig hausinn.

Við munum borga allar okkar skuldir. Núna þegar við erum að sjá fyrir endann á erfiðleikunum, komin yfir erfiðasta hjallann, hvað mætir okkur þá? Keppinautar okkar sprækir og léttir á fæti, tilbúnir í slaginn við okkur.

Búnir að losna við allar byrðarnar og tilbúnir í undirboð. Ekki þurfa þeir að gera ráð fyrir afskrifuðu milljörðunum í sínum útreikningum. Þær afskriftir hefur almenningur á Íslandi kokgleypt og allir halda að þetta sé bara „allt í lagi“. Hvað ætlar Samkeppniseftirlitið að gera? Hvað ætlar viðskiptabanki okkar, Landsbankinn, að gera? Er þetta réttlæti? Eru þetta skilaboðin? Er þetta hinn nýi raunveruleiki?////Svo er hneykslast á landleigu Kínverjans,meðan þesssu er hadið áfram kinnroðalaust og öllum til skammar Ríkissstjórn okkar Landsbankanum sem eru í eigu okkar að stórum hluta og svo öllum nýju eftirlitunum með samkeppni og heiðarleika,þetta bókstaflega bítur hausinn af skömmini,að þetta skuli ver að gerast fyrir framan nefið á okkur landanum er svo viðbjóðslegt að það er vart til orð yfir það!!!!þetta hlýtur að vera stoppað!!!!!/Halli gamli


Nýtt lágþrýstimet í júlí/ENGIN SPURNING MERKILEG VEÐURBREYTING!!

Nýtt lágþrýstimet í júlí Innlent | mbl.is | 23.7.2012 | 13:38 Trausti Jónsson veðurfræðingur segir ljóst að gamalt lágþrýstimet júlímánaðar á Íslandi hafi verið slegið í gær. Gamla metið, sem var sett í StyMynd 622271
kkishólmi árið 1901, var 974,1 hPa en nýja hafi verið á bilinu 972-973 hPa. „Ekki er munurinn mikill - en samt,“ skrifar Trausti á bloggsíðu sína. „En í framhaldi af þessu vaknar sú spurning hversu langt niður loftþrýstingur getur farið niður í júlímánuði. Greiningar reiknimiðstöðva benda til þess að þrýstingur í þessari lægð hafi lægstur orðið um 966 hPa - en hún er nú farin að grynnast. Hún hefði auðvitað getað orðið svona djúp yfir íslenskri veðurstöð,“ skrifar Trausti ennfremur.///////Þetta eru í raun merkilegar fréttir sem við ættum að skoða!!!þetta sannar veðpurbreytingar ekki spurning!! en við skulum bara vona að þetta verði ekki mikið framhald á,því nú koma lægðirnar óhindrað yfir okkur á næstunni/Halli gamli

mbl.is Nýtt lágþrýstimet í júlí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagan um niðurskurðin sett á hvolf,öfugmæli á öllu :það er hægt að skera niður svo víða,en bæta við í heilsbryggiskerfið!!!

pressan.is
eyjan.is
FORSÍÐAFRÉTTIREYJANBLEIKTMENN
Fréttasarpur Fréttatenglar Viðskipti Pennar Orðið Silfrið Baksíðan Veðrið
Stefán Ólafsson
ForsíðaNánar um höfund
Laugardagur 21.07.2012 - 13:37 - FB ummæli (21)
Velferðarstefna Sjálfstæðisflokks – Niðurskurður alla leið!
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fór mikinn í fjölmiðlum í gær. Sagði að stjórnvöld verði að skera miklu meira niður… “Við eigum ekkert val”, sagði hann.

Bjarni sagði velferðarráðherrann “veruleikafirrtan” að vilja frekar verja heilbrigðis- og velferðarkerfið en skera meira niður.

Tilefnið var að ríkisvaldinu hafði borist eingreiðslu bakreikningur, einkum vegna Sparisjóðs Keflavíkur (SpKef), sem gerði hallann á ríkissjóði á síðasta ári meiri en áætlað hafði verið.

Bjarni vill mæta þessu, eins og öllum öðrum kostnaði við hrunið, með niðurskurði velferðarmálanna, sem eru stærstu útgjaldaliðir hins opinbera.

Þessi stóri bakreikningur er þó kominn frá Sjálfstæðismönnum í Reykjanesbæ! Beinlínis frá sumum forystumönnum flokksins í bænum og sparisjóðsstjórninni, sem breyttu þessari áður traustu fjármálastofnun í braskbanka og tóku þátt í því sem hefur verið kallað “að tæma bankann innanfrá”. Núverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins kom þar við sögu.

Halló! Tókuð þið eftir þessu?

Sjálfur framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins í Valhöll er í miðju málinu!

Það er kanski þess vegna sem Sjálfstæðismenn hafa alla jafna mjög hátt um meint mistök Steingríms J. Sigfússonar, þegar kostnað við hrun SpKef ber á góma?

Samt voru það Sjálfstæðismennirnir Geir Haarde og Árni Matthiesen, þáverandi fjármálaráðherra, sem lofuðu að ríkið myndi tryggja allar innistæður í bönkum og sparisjóðum, alveg upp í top. Á kostnað skattborgara.

Steingrímur varð einfaldlega að efna það loforð, hvort sem hann léti SpKef fara á hausinn eða ekki.

Sjálfstæðismenn, sem stýrðu okkur inn í stærsta bóluhagkerfi sögunnar og þaðan inn í hrunið, vilja nota “tækifærið” í fjármálakreppunni til að skera velferðarkerfið niður – svo um munar.

Það hefur verið lína þeirra út í gegnum kreppuna. Engar skattahækkanir á þá sem aflögufærir eru, heldur laga fjármál ríkisins með því einu að skera niður opinber útgjöld.

Ragnar Árnason, sem ásamt Hannesi Hólmsteini er helsti hugmyndafræðingur frjálshyggjunnar í flokknum, sagði á fundi hjá Samtökum atvinnulífsins í janúar 2010, að við Íslendingar hefðum ekki efni á að reka velferðarkerfi af svipuðum gæðum og á hinum Norðurlöndunum. “Velferðarkerfið er að drepa okkur”, sagði Ragnar og bætti við, “við verðum að skera það niður”. Samt er velferðarkerfið hér minna en í Skandinavíu!

Þetta fékk góðan hljómgrunn í flokknum, Mogganum og hjá samtökum atvinnurekenda og fjárfesta. Þó var það brask auðmanna sem setti þjóðina á hausinn, en ekki velferðarkerfið!

Tvær meginstefnur eru nú uppi í viðbrögðum við fjármálakreppunni á Vesturlöndum: NIÐURSKURÐUR í anda frjálshyggju eða VELFERÐAR- og ÖRVUNARSTEFNA í anda John M. Keynes og Franklin D. Roosevelts.

Niðurskurður (austerity measures) miðar að því að minnka skuldir ríkisins strax, með miklum niðurskurði útgjalda. Það þýðir alla jafna miklar uppsagnir, mikið atvinnuleysi og mikla lækkun velferðarbóta og lífeyris. Heilbrigðiskerfi, almannatryggingar og skólar verða helst fyrir barðinu, því þar eru útgjöldin mest. Niðurskurðinum fylgir svo samdráttur efnahagslífs og dýpri kreppa.

Velferðarstefnan (stimulus and social protection) miðar að því að vernda velferðarkerfið og beita því til að verja lágtekjufólk og millitekjufólk við afleiðingum kreppunnar. Þegar hún er tengd skattahækkunum hjá tekjuhærri hópum felur þessi stefna í sér að atvinnuleysi verður minna og lífeyrisþegar og bótaþegar þurfa ekki að bera bagga kreppunnar í meiri mæli en aðrir.

Hér var þeim tekjulægstu reyndar hlíft. Neyslustig hélst hærra en ella og auðveldara var að koma hagkerfinu aftur af stað.

Evrópa og Bandaríkin eru nú á kafi í niðurskurðarstefnunni og það er einmitt hún sem er að dýpka kreppuna og magna upp hörmungar – ekki síst í Suður-Evrópu.

Á Íslandi var velferðarstefnunni beitt með miklum árangri. Við erum nú á leiðinni upp, langt á undan öðrum kreppuþjóðum. En þetta hefur vissulega verið erfitt.

Ef hins vegar stefnu Sjálfstæðisflokksins hefði verið fylgt hér eftir hrun hefði niðurskurður orðið helmingi meiri en þó varð. TVÖFALDUR!

Atvinnuleysi hefði orðið mun meira og ellilífeyrisþegar, öryrkjar, barnafjölskyldur og húsnæðisskuldarar hefðu borið mun þyngri byrðar. Það eru óhjákvæmilegar afleiðingar róttækrar niðurskurðarstefnu. Við sjáum afleiðingar slíkrar stefnu nú á Írlandi, Spáni, Portúgal og í Grikklandi.

En Sjálfstæðismenn hefðu þar með náð helsta markmiði frjálshyggju-róttæklinganna í flokknum – að rústa velferðarkerfinu.//////////
Svo mörg voru þau orð vintrin mansins Stefáns Ólsfssonar og fleiri að ,ennþá er verið að staklast á þessu að allt sé sjalfstæðisflokk að kenna í 4.5 ár er þetta búið að ganga,og gengur ennþá!! Það er sagt að battnandi mönnum sé best að,lifa og gengur það ekki þarna,það er hægt að skera niður viðar en i heilsugeiranum,þar má heldur bæta en víða annarstaðar má gera það bruðlið er allstaðar,Fækka i ríkisgeiranum!! og spara gjafir og annað handa þeim sem ekki þurfa ,spara i raðuneitum ,og númer eitt eru kosingar strax/ HÆTTA ÞESSUM ÖFUGMÆLUM !!!!!///Halli gamli


Auðvitað er okkur létt/:Þetta er bara mannvonska: ekki lög!!!!!!!!

„Auðvitað Fjölskyldan hefur barist fyrir dvalarleyfi Romylyn í sjö...
er okkur létt“ Innlent | mbl.is | 23.7.2012 | 10:53 „Nú bíðum við bara eftir að fá bréf með staðfestingu frá ráðherra. Hann sagði að málinu yrði frestað á meðan það er í skoðun,“ segir Ellert Högni Jónsson, fósturfaðir stúlku frá Filippseyjum sem ekki hefur fengið dvalarleyfi hér á landi þrátt fyrir ítrekaðar umsóknir. Áður hafði stúlkunni, Romylyn Patty Fagaine, verið gert að yfirgefa landið í dag. „Við fengum að vita þetta í fyrradag, þetta eru góðar fréttir og auðvitað er okkur létt. En málinu er alls ekki lokið, við vitum ekki hvort eða hvenær hún verður send heim,“ segir Ellert Högni. Frétt mbl.is: Ætla að fara með stúlkuna í felur////////Það er svo að þarna er eins og flestum lögum engin mannkærleikur hafður,það ber að hafa það þegar svona stendur á!!! þetta eru ólög mikil og verður að breyta,engin spurning,það er verið að setja ný lög alla daga á Alþingi og mannlega hliðin gleymist yfirleitt ,því miður!!!!!/Halli gamli

mbl.is „Auðvitað er okkur létt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein fjölskylda missti nær allt/Vonandi allt tryggt þarna!!!!!!

Ein fjölskylda missti nær allt Innlent | mbl.is | 23.7.2012 | 12:09 Rauði krossinn í Vestur-BarðasTálknafjörður.
trandarsýslu aðstoðar nú fjölskyldur á Tálknafirði í kjölfar eldsvoða sem varð í fjölbýlishúsi í bænum í gærkvöldi. Aðstoðin felst meðal annars í að útvega fólkinu föt, hreinlætisvörur og aðrar nauðsynjar auk þess að veita þeim sálrænan stuðning. Í húsinu eru fjórar íbúðir og var fólk í þremur þeirra þegar eldurinn kom upp. Íbúð og innbú fjögurra manna fjölskyldu fór verst í brunanum og missti hún nær allt sitt, að því er RKÍ segir í tilkynningu. „Sú fjölskylda og önnur fjögurra manna fjölskylda hafa fengið húsaskjól annarsvegar hjá vinafólki og hins vegar hjá atvinnuveitenda annarrar fjölskyldunnar. Ungur maður sem var í þriðju íbúðinni fékk húsaskjól á heimili foreldra sinna í bænum. Allar íbúðirnar voru rýmdar vegna brunans í gærkvöldi og er unnið að reykræstun. Sjálfboðaliðar Rauða krossins á Tálknafirði brugðust við strax og ljóst var um brunann í gærkvöldi og hófu aðstoð við það fólk sem býr í húsinu. Sjálfboðaliðar Rauða krossins munu veita fólkinu áframhaldandi aðstoð í vikunni, hitta þolendur og veita þeim ráðgjöf og stuðning.“///////Aftur og aftur er verið að segja fólki að Tryggja vel!! og það vonandi hefur þetta fólk gert,nógu slæmt er að missa allt sitt sem eru persónulegir munir ábætanlegir ,en það er svona að fólki er brugðið og það er gott að fá áfallahjálp við svona aðstæður,og allir eru við bræður og systur er svona skeður,það er svo að hjalp er góð og þörf við svona aðstæður!!!/Halli gamli

mbl.is Ein fjölskylda missti nær allt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verð á metani hækkar að nýju/Þetta mikil hækkun 14%: skil þetta ekki,hvað er í gangi þarna????

Verð á metani hækkar að nýju Innlent | Morgunblaðið | 23.7.2012 | 5:30 Verð á metani hækkaði sl. föstudag um 18 krónur rúmmetrinn. Kostar hver rúmmetri 149 kr. nú en kostaði áður 131 krónu. Verðið hækkaði einnig í vor. „Nýr samningur var gerður 20. júlí á milli N1 og Sorpu, sem selur okkur metanið. Verðið til okkar hækkaði talsvert í þessum samningi og þar af leiðandi hækkar útsöluverðið,“ segir Eggert Þór Kristófersson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs N1, í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.///////Alltaf skal komið aftan að okkur með hluti þetta er innlend framleiðsla og engar hækkanir hafa orðið siðan sem verja þetta,við breytum okkar bífreyðum til að hagnast  og menga ekkert!!!en þá er bara hækkað,og samið við einn aðila ,eru þetta skilaboð til okkar að það sama komi með Rafmagnið!!!!Bara spyr/Halli gamli

mbl.is Verð á metani hækkar að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trilljónir í skattaskjólum/Þessu verður að breyta,það vantar þessa peninga,stór hluti heimsins sveltur!!!

Trilljónir í skattaskjólum Viðskipti | mbl.is | 22.7.2012 | 15:16 Hinir ofur-ríku geyma 21 trilljón Bandaríkjadollara í skattaskjólum víðsvegar um heim. Þessi upphæð samsvarar samanlagðri lMynd 442994andsframleiðslu Japans og Bandaríkjanna. eða um 30% af árlegri framleiðslu í öllum heiminum. Breska blaðið the Observer greinir í dag frá skýrslu samtaka um réttlæti í skattamálum (e. Tax Justice Network), sem unnin var af James Henry, fyrrum aðalhagfræðingi ráðgjafafyrirtækisins McKinsey,

þar sem fram kemur að bankarnir UBS, Credit Suisse og Goldman Sachs meðhöndli hæstu fjárhæðirnar þegar kemur að því að koma peningum í skattaskjól.

Segir Henry að eignir hinna ofur-ríku séu „varðar af vel launuðu fólki í banka-, lögfræði-, endurskoðunar- og fjárfestingageiranum til að nýta sér hið landamæralausa og opna alþjóða hagkerfi“ til að koma peningum undan skatti.

Samkvæmt skýrslunni eru eignir 92.000 aðila í skattaskjólum að verðmæti 6,3 trilljónir Bandaríkjadollara, en það er hærri upphæð en landsframleiðsla Japans. Ríki með miklar olíuauðlindir hafa sérstaklega þurft að horfa upp á fjármuni sína hverfa úr landi, en Henry segir að um 500 milljarðar Bandaríkjadollara hafi horfið úr rússnesku hagkerfi til skattaskjóla síðan 1990 og síðan 1970 hafi Sádi-Arabía horft á eftir 197 milljörðum og Nígería 196 milljörðum Bandaríkjadollara.

Telur hann að upphæðirnar sem hafi flætt úr þróunarríkjum síðan 1970 myndu duga til að greiða upp allar erlendar skuldir ríkjanna. Til að setja þessar upphæðir í betra samhengi þá væri 30% fjármagnstekjuskattur á 3% ávöxtun þessara peninga 189 milljarðar Bandaríkjadollarar, en það er hærri upphæð en þróuð ríki verja í þróunaraðstoð á hverju ári. Það er einnig tekið fram að þær upphæðirnar sem séu teknar með séu aðeins í formi bankainnistæðna og fljótandi fjármagns, en ekki í fasteignum eða t.d. snekkjum. Upphæðirnar séu einnig varlega áætlaðar og geti náð allt að 32 trilljónum Bandaríkjadollara./////////svona er heimurinn í dag,svo er verið að safna hjá okkur sæmiligjunum fyrir sveltandi og fátætku um allan heim,en þetta eða partur af þvo gæti borgað það!!!Auðsöfunn til einskis er svona í hæðasta máta óverjandi,en þetta má ekki stoppa,samkvæmt lögum eða lögleisu !!!er að ekki hægt???,við skulum bara breita þessu öll og standa við það,þáð er málið málannan,Eins er þetta með skattana á Íslandi ef allir skyluðu rétt væri hægt að lækka þá um helming,og svarta vinna einnig!!!Upprætum þetta allt/Halli gamli


mbl.is Trilljónir í skattaskjólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. júlí 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047927

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband