Frakkar hyggja á neyðarfund///Þetta er hrikalegt að hlusta daglega á að hundriðir manna sé drepnir saklausir einnig!!!!

Frakkar hyggja á neyðarfund Erlent | AFP | 30.7.2012 | 6:56 Frakkar munu taka við forystu Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna 1. ágúst og hyggjast kalla til neyðarfundar ráðsins eins fljótt og auðið er þar sem fjallað verður um ástandið í Sýrlandi.

Þetta sagði utanríkisráðherra Frakklands, Laurent Fabius, í viðtali við frönsku útvarpsstöðina RTL í morgun. Þar sagði hann að mikilvægt væri að leita leiða til að stöðva blóðbaðið í Sýrlandi og koma á breytingum á stjórnarfari í landinu. „

Við verðum að reyna allt, jafnvel þó að Rússar og Kínverjar hafi hamlað því í þrígang að ályktanir gegn Sýrlandi hafi verið samþykktar í ráðinu. Við getum ekki fallist á að þetta sé innanríkismál,“ sagði Fabius.

Hann sagðist hafa áhyggjur af ástandinu í Aleppo, fjölmennustu borg Sýrlands, þar sem stjórnarherinn hefur haldið uppi linnulausum árásum síðan um helgina. „Sýrlenska þjóðin er fórnarlamb og böðullinn heitir Bashar al-Assad,“ sagði Fabius.//////Þetta er okkar friðarsinum alveg óskiljanlegt !!!!að þetta skuli i dag vera látið ske,það er svona að þetta er ekki gott við að eiga ,vegna þess að 2 ríki Rússland og Kína skuli geta stoppað þetta með neitunarvaldi sameinuðu þjóðanna,við bókstaflega skiljum ekki svona grimmd og glæpi sem eru að ske við þessar aðstæður,það ætti löngu að vera búið að stöðva þetta að manni finnst,en það er vist hægra sagt en gjört!! En við skulum bara vona að það verði þarna visnúningur áður en lengra er gengið i að mirða saklaust fólk/Halli gamli


mbl.is Frakkar hyggja á neyðarfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kornhlöður fyllast á haustdögum////Það gott en það gera heyhlöður einnig,það rættist mikið úr sem betur fer!!!

Kornhlöður fyllast á haustdögum Innlent | mbl.is | 30.7.2012 | 5:30 Ef fram fer sem horfir verða kornhlöður bænda fullar í haust. Útlit er fyrir mjög góða kornuppskeru. Þá stefnir í besta ræktunarár repju oRepjuakur í blóma á Þorvaldseyri.
g nepju til olíuframleiðslu til þessa. „Mér sýnist að þetta ár muni svara ýmsum spurningum um það hvað repjan getur gert hér á landi,“ segir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri og formaður Landssambands kornbænda um þetta mál í Morgunblaðinu í dag. Hann segir að þegar fræuppskeran verði komin í hús í haust, verði tímabært að huga að kaupum á afkastameiri búnaði til að vinna olíu úr repjufræjunum./////þetta mjög svo gott en hægt að geta þessa einnig að víðast einnig heyhlöður einnig það rættist úr víða þegar fór að rigna og bændur gátu þurkana vegna farið að slá og hirða,víða skemmdist mikið en flestir ná sæmilegum heyjum,og það gott/Halli gamli

mbl.is Kornhlöður fyllast á haustdögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórir taldir aka undir áhrifum//Þrátt fyrir alverleikan og mikin áróður gagvart þessum glæp!!

Fjórir taldir aka undir áhrifum Innlent | mbl.is | 30.7.2012 | 6:12 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði fjóra ökumenn í nótt, grunaða um að vera undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Einn þeirra var að auki áMynd 590620
n ökuréttinda, en hann hafði verið sviptur þeim og lögreglu þótti ýmislegt athugavert við bifreið annars ökumanns og voru skráningarnúmer hennar fjarlægð. Allir fjórir voru handteknir og færðir á lögreglustöð til sýna- og upplýsingatöku.//////Þetta er agalegt að sjá gerst, aftur og aftur þrátt fyrir endalausan áróður á móti þessu, sem við verðum að fara að kalla glæp bara réttu nafni!!! það er svo að eiginlega hefur maður enga afsökun/Halli gamli

mbl.is Fjórir taldir aka undir áhrifum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Banaslys á Steingrímsfjarðarheiði/Blessað fólkið og samúð allra!!!

Banaslys á Steingrímsfjarðarheiði Innlent | mbl.is | 30.7.2012 | 6:30 Íslenskur karlmaður lést og tveir erlenMynd 410009 dir ferðamenn eru alvarlega slasaðir eftir að fólksbíll valt á Steingrímsfjarðarheiði á níunda tímanum í gærkvöldi. Fólkið var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Slysadeild Landspítalans í gærkvöldi og liggja ferðamennirnir þar þungt haldnir. Talið er að fólkið hafi fengið far með bílnum. Ekki er vitað um þjóðerni þeirra og ekki er vitað hvernig slysið vildi til, þar sem ekki var hægt að ræða við þau.////Maður fær sting i hjarta við svona fréttir ,Blessað fólkið slasað og einn látin ,ekkert annað en samúð kemur í hugan/Halli gamli
mbl.is Banaslys á Steingrímsfjarðarheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Bloggfærslur 30. júlí 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1047930

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband