Sjálfsleitin vekur heimsathygli///Það er von!!! ,en engin skaði skeður það gott!!

„Sjálfsleitin“ vekur heimsathygli Innlent | mbl | 29.8.2012 | 14:55 Frétt um að ferðakona hefði tekið þátt í að leiAthygli er vakin á ferðalögum um Ísland með fréttinni um...ta að sjálfri sér við Eldgjá á Íslandi hefur farið eins og eldur í sinu um erlenda fréttavefi og um hana verið fjallað í að minnsta kosti fjórum heimsálfum.

Eins og margra fréttavefja er von og vísa í framsetningu á óvenjulegum fréttum sem þessari, fara margir þeirra í orðaleiki um þetta athyglisverða mál. Hér eru aðeins tekin örfá dæmi um útbreiðslu fréttarinnar.

„Ferðamaður fann sjálfan sig á Íslandi“ segir í fyrirsögn á fréttavef útvarpsstöðvarinnar Wnyc en margar útvarpsstöðvar virðast hafa heillast af fréttinni. „Týnd kona gengur til liðs við leitarmenn“, segir í fyrirsögn TNT-tímaritsins. Hnotskurn Lýsingin sem gefin var af konunni um helgina var eftirfarandi: „Konan er af asískum uppruna, um 160 cm á hæð, dökkklædd. Hún er á aldrinum 20-30 ára og með litla, ljósa hliðartösku.

Leitað var í hálfan sólarhring út frá þessari lýsingu. Aðfararnótt sunnudags kom í ljós að konan var aldrei týnd og oftalið hafði verið í rútuna. Nýsjálensku miðlarnir létu fréttina ekki heldur fram hjá sér fara og vitna þar í fréttir mbl.is um málið.

Það sama gerir a.m.k. einn fréttavefur í Ástralíu. Fréttin birtist einnig víða í fréttamiðlum vestanhafs, þannig segir t.d. Albuquerque Express frá málinu svo eitt dæmi sé tekið. En fréttin hefur einnig sigrað fleiri heimsálfur - því vefurinn Argentina Star, sem skrifaður er á ensku, birtir frásögn af leitinni - og hinni óvenjulegu niðurstöðu hennar.

Í frétt á vef AOL í Bretlandi er fjallað ítarlega um málið og sagt frá því að umfangsmikil leit hafi verið gerð að ferðakonu en í ljós hafi svo komið að konan var ekki týnd heldur hafði tekið þátt í að leita að sjálfri sér.

Með fréttinni fylgir falleg mynd af leitarsvæðinu, Eldgjá, og í greininni er svo fjallað um hvað sé gaman og forvitnilegt að skoða á Íslandi. Þessi sérstæða frétt hefur því þegar á öllu er á botninn hvolft kynnt landið okkar - og gríðarlega öflugt björgunarsveitarfólk - vel og rækilega.//////Þetta minnir fólk á margt, sem það hefur lent í ,og bara gaman ef allt gengur vel,og engan meiðir,var að lesa það sem hann Ómar Ragnarsson skrifar og það þrent þar,en talandi um leit,þá var það svo að það vann hjá mer maður, sem er farin úr þessum heimi blessaður ,og var mikil spökulant og hofði mikið á Bíómyndir en áttu til að leika þær fyrir okkar,þessi maður var ofurgreindur en átti við andleg vandamal að stríða,en einn góðan veðurdag ,kom hann ekki til vinnu og ég fór heim til hans ,og bað hann koma,hann var ágætis vinnukraftur!! sá að hann hafði fengið sér í staupinu en ,trúði mer fyrir þvi að hann hefði loksins geta framið glæp sem ekki komist upp,hann hefði brotist inn í Austurstræti í úra og skartgipabúð,og stolið þar áhemju af úrum og skartgripum,og það mundi aldrei komast upp!!Þvi hann hefði farið í Posthussræti til lögrgunar og tilkynt innbrotið,og farið út að leita með þeim en það var stutt á milli!!þeir tóku skírslu og sögðsust hafa samband,en ég var viss um að hann var að segja satt,það ver ekki fyrr en einn góðglaður vinum minn hitti karl löngu seinna,og spurði hvort hann gæti lánað sér pening að hann sagði nei en ég get gefið þér úr sem hann og gerði splunkunýtt!!!Ég gekk þvi á kauða og hann sagði mér sannleikan að hann hefði grafið þetta í gamla Kikjugarðinum,lofaði hann mér að fara til verslunarinnar og segja sannleikan og gerði og málið aldrei upplyst/Halli gamli


mbl.is „Sjálfsleitin“ vekur heimsathygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefnir í á annan tug framboða///Þetta er ein vitleysa :að hafa svona mörg framboð!!!!

Stefnir í Mynd 583662á annan tug framboða Innlent | mbl | 28.8.2012 | 13:02 Kjósendur ættu að hafa úr nógu að velja fyrir næstu þingkosningar sem fyrirhugaðar eru í apríl á næsta ári ef fer sem horfir en gera má ráð fyrir að á annan tug framboða verði í boði fyrir kosningarnar.

Fyrir utan þá fjóra stjórnmálaflokka sem lengsta sögu eiga, Framsóknarflokkinn, Sjálfstæðisflokkinn, Vinstrihreyfinguna - grænt framboð og Samfylkinguna, stefnir í að níu önnur framboð gefi kost á sér fyrir næstu kosningar.

Þar hafa einkum verið í umræðunni Samstaða, flokkur lýðræðis og velferðar, sem verið hefur undir forystu Lilju Mósesdóttur, alþingismanns, Björt framtíð undir forystu Guðmundar Steingrímssonar alþingismanns,og Heiðu Helgadóttur, framkvæmdastjóra Besta flokksins, og Dögun sem er sameiginlegt framboð m.a. Borgarahreyfingarinnar, Hreyfingarinnar og Frjálslynda flokksins.

Þá stefnir Húmanistaflokkurinn einnig á framboð, sem og Píratapartíið undir forystu Birgittu Jónsdóttur, alþingismanns.

Sama er að segja um Lýðfrelsisflokkinn, Bjartsýnisflokkinn og Hægri græna.

Ennfremur má nefna að í Morgunblaðinu í dag er haft eftir Þorvaldi Þorvaldssyni, sem um árabil hefur verið virkur í starfi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, að hann hafi sagt skilið við flokkinn og hyggist beita sér fyrir því að stofna nýjan vinstriflokk.//////////Þetta er ekki góða framtíð að mínu áliti bara als ekki!! þetta eyðileggur en ekki bætir!!það er alltaf verið að tala um að læra af reynslunni en hvar er hún??? þetta er ein og viða á Norðurlöndum bara til að eyðileggja kosningar og sjá hvar eiginlega fólk vill vera í póltík!! bara tóm tjara að hafa allt þetta flokkstóð,sem gerir fólki bara erfiðara að átta sig á  hlutunum og fer á endanum ílla ekki spurning,Ég segi að svona hringlandi sé endirinn á lýðræðinu ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Stefnir í á annan tug framboða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umsóknin í vegi afnáms haftanna///Við bara látum ekki lengur draga okkur á asnaeyrunum,als ekki !!!

Umsóknin íLilja Mósesdóttir, alþingismaður.
 vegi afnáms haftanna Innlent | mbl.is | 29.8.2012 | 12:08 Lilja Mósesdóttir, alþingismaður, segir að biðin eftir aðildarsamningi að Evrópusambandinu hafi dregist á langinn og komi í veg fyrir að hægt sé að afnema gjaldeyrishöftin. Hún segir Má Guðmundsson, seðlabankastjóra, ekki telja sig hafa umboð til annars en að vinna að upptöku evrunnar þar sem umsóknarferlið að ESB sé í gangi. Þetta kemur fram á Facebook-síðu hennar í dag. „Þjóðin verður að fá tækifæri til að taka ákvörðun um framhald ESB umsóknarinnar sem allra fyrst. Umsóknarferlið hefur dregist á langinn. Biðin eftir ESB aðildarsamningi kemur í veg fyrir afnám gjaldeyrishafta og að lausn verði fundin á krónukreppunni. Seðlabankastjóri segir að hann hafi ekki umboð til að gera neitt annað en að vinna að upptöku evrunnar, þar sem ESB umsóknarferli sé í gangi. Á meðan sitja Íslendingar í fjötrum gjaldeyrishafta og ósjálfbærrar skuldsetningar,“ segir Lilja.//////Þetta er gott af Lilju að segja sannleikan!!!! þarna og mínir menn mega taka þetta til sín!!! ,og tala meira um þessa gyslingu sem við erum höfð í þarna ,það er svo að stærsti flokkur okkar sjalfstæðisflokkur minn flokkur verður að fara að taka af skarið í þessu máli ekki spurning ,ég bara og fleiri bíðum eftir því//Halli gamli

mbl.is Umsóknin í vegi afnáms haftanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhentu bænum afmælisgjöf/Til hamingju Akureyri með 150 árinn!!!!!

Afhentu bænum afmælisgjöf Innlent | mbl.is | 29.8.2012 | 13:43 Leik- og grunnskólabörn afhentu AkureyrinEiríkur bæjarstjóri tók við afmælisgjöfinni fyrir hönd bæjarbúa.
gum í dag stórt mósaíklistaverk með afmælismerki bæjarins. Í dag eru 150 ár frá því Akureyri fékk kaupstaðarréttindi. Börnin komu í skrúðgöngu á Ráðhústorgið í dag og afhentu Eiríki Birni Björgvinssyni, bæjarstjóra, verkið. Hópurinn söng að því loknu afmælissönginn fyrir bæjarfélagið. Haldið er upp á afmæli bæjarins með margskonar hætti í dag. Kl. 15 verður opnuð sýningin Arsborealis – Menning, list og saga á norðurhveli jarðar, í Sjónlistarmiðstöðinni. Þá hefjast tónleikar í Hofi í kvöld sem kallast Tónagjöf Akureyringa. Hér má skoða ítarlega dagskrá afmælishátíðarinnar.////////Já maður verður að óska þeim til hamingju með 150 ára afmæli kaupstaðarins!!Blessuðum ekki spurning,þetta er einn fallegasti Bær á landinu ef ekki bara fallegasti!! en megi þeim vegna vel ,eins og verið hefur næstu 100 ár allavega/Halli gamli

mbl.is Afhentu bænum afmælisgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsætisráðherrar á Þingvöllum/Það fór vel á með þeim,en engin opinber fundur með þeim???

Forsætisráðherrar á Þingvöllum Innlent | Morgunblaðið - greinar | 29.8.2012 | 11:18 „Á mánudag átti Jóhanna Sigurðardóttir fund á Þingvöllum með hinni dönsku Thorning-Schmidt þar sem rætt var um aðlö
Hallur Hallsson
gun Íslands að Evrópusambandinu.
Það er athygli vert að formaður Samfylkingarinnar kaus að fara með danskan forsætisráðherra til Þingvalla til þess að ræða afsal á fullveldi íslenskrar þjóðar,“ segir Hallur Hallsson, blaðamaður og rithöfundur, í grein í Morgunblaðinu í dag.
Í grein sinni spyr Hallur m.a.: „Ætli danski ráðherrann hafi spurt af hverju Jóhanna skrökvi að þjóð sinni og tali um að „kíkja í pakka" þegar viðræður snúast um fulla aðlögun að ESB? Ætli danski ráðherrann hafi lagt að Jóhönnu að samþykkja 3-5 prósent af makrílstofninum þegar þriðjungur hans er í íslenskri lögsögu?
Ætli Jóhanna hafi spurt hinn danska kollega hvað hann hafi gert til að styðja málstað Íslands í makríldeilunni; af hverju ESB hafi undir forræði Dana hafið málarekstur gegn Íslandi í Icesave-deilunni?“ Í niðurlagi greinar sinnar segir Hallur: „Jóhanna fór til Þingvalla með hina dönsku stallsystur sína sem segist styðja inngöngu Íslands í Evrópusambandið.
Ætli Jóhanna hafi skýrt Thorning-Schmidt frá eindreginni andstöðu Íslendinga við inngöngu í Evrópusambandið fremur en Stefán Jóhann sagði Stauning sannleikann sumarið 1939?“////////Það er ekki bara Hallur Hallsson sem hefur áhyggjur af þessu leindó!!! aðþað skuli ekki hafa verið opinbert við tal við þær báðar eða blaðamannfundur eins og við köllum það???Þetta er þvílík skömm að annað eins hefur ekki gerst,en Jóhönnu leyfist allt,í skjóli Samfylkingar eða öfugt/Halli gamli

mbl.is Forsætisráðherrar á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. ágúst 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047927

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband