18 ásakanir um kynferðisafbrot/Eru ekki öll kyferðisafbrot Lögreglumál bara, eða sakamál???

18 Fagráð um meðferð kynferðisafbrota innan íslensku...ásakanir um kynferðisafbrot Innlent | mbl.is | 9.8.2012 | 17:08 Fagráð um meðferð kynferðisafbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar hefur nú skilað af sér skýrslu fyrir árið 2011. Í skýrslunni kemur fram að á árinu hafi ráðið tekið á móti og unnið með tilkynningar um kynferðisafbrot er varða fjóra einstaklinga sem hafa verið í þjónustu á vegum kirkjunnar. Frá upphafi starfs síns hefur fagráðið því sinnt erindum sem varða ásakanir um kynferðisafbrot á hendur 18 einstaklingum sem hafa verið í þjónustu á vegum kirkjunnar.

Í þremur þessara 18 tilvika hefur fagráði borist fleiri en ein ásökun á hendur sama aðila. Af málum þessara 18 einstaklinga voru 7 tilkynnt fagráði innan 10 ára frá því þau áttu sér stað og 4 þeirra innan 5 ára. Af öðrum málum eru fjórar tilkynningar sem varða brot sem áttu sér stað 11-20 árum áður en viðkomandi leitar til fagráðs en önnur mál eru enn eldri.

„Við verðum að halda utan um tölulegan raunveruleika og halda þessum málum uppi sem viðfangi sem er í sífelldri vinnslu ... mbl.is Í 8 tilvikum voru þeir einstaklingar sem kvörtun beindist gegn í þjónustu kirkjunnar þegar þolendur leituðu til fagráðs. Í tveimur tilvikum hafa einstaklingar látið af þjónustu í kjölfar vinnslu máls og í einu tilviki var sú fyrirhugaða ákvörðun dregin til baka að viðkomandi kæmi til tímabundinnar afleysingarþjónustu, eins og segir í skýrslunni.

Tekur á öllum málum sem til ráðsins berast „Ráðið leitast við að auka upplýsingaflæði án þess að tjá sig um einstök mál,“ segir Gunnar Rúnar Matthíasson formaður fagráðsins. „Við gætum þess að láta ekki frá okkur upplýsingar sem gætu auðkennt hvert mál fyrir sig, en þeir sem til okkar koma hafa að sjálfsögðu allt frelsi til að tjá sig um málin, kjósi þau að gera svo,“ segir Gunnar Rúnar. „Við áréttum þetta í hvert skipti til að fólki finni sig ekki bundið trúnaði við okkur, því það er alls ekki raunin,“ bætir hann við. „Við verðum að halda utan um tölulegan raunveruleika og halda þessum málum uppi sem viðfangi sem er í sífelldri vinnslu og takast á við eftir því sem nokkur kostur er,“ segir Gunnar Rúnar.

Rannsóknarnefnd kirkjuþings skilaði þann 10. júní niðurstöðum sínum í skýrslu sem bar heitið „Skýrsla um viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot“. Í kjölfarið lagaði fagráð störf sín að ábendingum rannsóknarnefndarinnar og er verklagið nú á þann veg að ráðið tekur á móti öllum málum sem til þess berast óháð því hvort viðkomandi er enn í starfi eða hvort möguleiki er á inngripum í viðkomandi máli.

Fræðsluátak Í skýrslunni kemur enn fremur fram að fagráð hafi í október 2011 staðið fyrir fræðsluátaki um kynferðisbrot í samvinnu við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands og Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur sem fól í sér heimsókn, fundi og ráðstefnur með virtum fyrirlesara og baráttukonu á sviði baráttunnar gegn kynferðisbrotum, Rev. Dr. Marie M. Fortune, frá Faith Trust Institute í Seattle í Bandaríkjunum.

Í tengslum við heimsókn Dr. Fortune var haldið málþing undir yfirskriftinni Kynferðisleg misnotkun á börnum í trúarlegu samhengi. Auk þess var haldið námskeið í Neskirkju sem bar heitið Kynferðisleg misnotkun og rétt viðbrögð í samhengi kirkju og trúfélaga. Voru allir viðburðir fræðsluátaksins vel sóttir.//////Maður bara spyr eins og kannski kjáni ,eru svona mál ekki sakamál sem lögregla rannsakar og svo dæmt af dómstólum,Kirkjan er ekki dómari í þessu málum bara eins og við hin,siðferði a´ekki bara að vera innan kirkjunnar ,bara alstaðar,það er svo að nóg er komið að kaftæði um þetta og hitt kynferðisbrotið innan kirkjunnar og það er erfitt fyrir þá blessaða að skilja að þetta eru sakamal en ekki innafélagsmál kíkna eða Biskups!!!/Halli gamli


mbl.is 18 ásakanir um kynferðisafbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snéru við vegna veðurs/Svona getur það verið um há sumar !!!!

SnéruSaga Sapphire
 við vegna veðurs Innlent | Bæjarins besta | 9.8.2012 | 14:15 Áhöfn skemmtiferðaskipsins Saga Sapphire hætti við að ferja farþega í land á Ísafirði í morgun vegna veðurs. Hefur það því snúið á brott. að því er fram kemur í frétt á vef Bæjarins besta. Skipið lá við akkeri við Prestabugt en að sögn Guðmunds M. Kristjánssonar, hafnarstjóra gat skipið ekki lagst að bryggju vegna þess að það var of djúprist. „Þetta er gamalt skip og það sama og gildir um flest þessi skip sem liggja við akkeri að það var of djúprist.“ Hann segir hvassviðri vera ástæðu þess að ekki var talið ráðlegt að ferja fólkið í land. „Margir farþeganna er eldra fólk og ekki gott að vera fara með það í land þegar sjórinn lætur illa.“ Þess í stað brá áhöfnin á það ráð að fara í útsýnisferð um Ísafjarðardjúp og Jökulfirði.//// svona getur Kári verið erfiður jafnvel um hásumar ,en það er nú ekki algengt samt!! við höfum verið heppin með að lostna við lægðirnar, en núna fara þær að birtast hver af annarri/Halli gamli

mbl.is Snéru við vegna veðurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prius C og Civi sagðir vafasamir///Já herna hvað segja menn við þessu????

Prius C og Civi sagðir vafasamir Bílar | Finnur.is | 9.8.2012 | 13:33 Bandaríska neytendaritið velur árlegVél stillt í bílsmiðju Nissan á Spáni. Margt ber að hafa í...a og útnefnir fimm vinsæla bíla sem það segir að neytendur ættu að forðast. Meðal þeirra í ár eru Toyota Prius C og Honda Civic, sem notið hafa mikilla vinsælda í Bandaríkjunum.

Blaðið segir að bílarnir fimm séu eflaust ofarlega í huga fólks sem hyggi á bílakaup. Þeim væri nær að láta þá eiga sig.

Ástæðan er sú að þeir komu ekki nógsamlega vel út úr tilraunum tímaritsins eða bila oft. Tímarit þetta er í metorðum haft og eftir umsögnum þess tekið. Auk Prius og Civic eru á lista þess í ár hálfjeppinn Jeep Liberty, Ford Edge og Dodge Grand Caravan. Rykkjóttur og hávaðasamur Blaðið segir að Honda „hafi stytt sér of oft leið við nýjustu útfærslur Civic.

Bíllinn sé misþýður á ferð, of mikill hávaði sé í farþegarými, stýrið svari ómarkvisst og lítið sé varið í innréttinguna. Þó megi bíllinn eiga það að hann sé áreiðanlegur og endingargóður. Prius C er ódýrasta útgáfa tvinnbílsins frá Toyota og segir blaðið ekki mega blanda honum saman við aðrar útgáfur sem skapað hafi Toyota gott orð á sviði tvinnbíla

. Edge fær slæman dóm „Það hve hastur hann er, hávaði í farþegarými, slök hröðun og billega útlítandi innrétting þjakar C-bílinn,“ segir blaðið og ráðleggur lesendum að kaupa sér frekar Honda Fit en hann, en þar er þó ekki um tvinnbíl að ræða. Jeep Liberty fékk einhverja lélegustu einkunn úr reynsluakstri Consumer Report.

Segir blaðið aksturseiginleika hans slaka á vegum en viðkunnanlegri utan vegar. Lesendur ritsins gáfu Ford Edge slaka einkunn fyrir endingu, sögðu hana langt undir meðallagi. Þeir kunnu heldur ekki að meta „flókið og innsæislítið“ upplýsinga- og hljómkerfi bílsins, MyFord Touch. Aðstandendum Dodge Grand Caravan verður tæpast skemmt við lesturinn. Þessi æruverðugi sendibíll er „fjölhæfur, nytsamur og vel búinn. En hann þjáist af braki og brestum, skrölti, slakri innréttingu og óþjálli hliðarhurð. Eyðslusemi hans var ekki til að bæta upp á sakirnar“.//////Ekki ættla ég að dæma!!! en þetta hlýtur að vera rétta!! að skoða, ég átti 2 Príusa og þeir komu bara vel út,en átti þá bara 1-2 ár en þetta mun varað skoða og deilt um ekki spurning,en samt er eiginlega komið einum of mikið að bílasortum menn verða bara í basli með að ákveða sig/Halli gamli


mbl.is Prius C og Civic sagðir vafasamir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög varasamt að fjarlægja skapahárin/Mæli með að konur hætti þessum snyrtingum!!!

Læknir varar við því að konur fjarlægi skapahárin
Mjög varasamt að fjarlægja skapahárin Erlent | Morgunblaðið | 9.8.2012 | 7:03 Breski læknirinn Emily Gibson varar í grein í Guardian við þeirri tísku sem rutt hefur sér til rúms að raka af sér öll skapahár. Menn gleymi þá að þessi hár hafi hlutverk. „Skurðlæknar áttuðu sig á því fyrir löngu að væru hárin rökuð af fyrir aðgerð minnkaði ekki hætta á ígerð, hún jókst,“ segir Gibson. Húðin skaddist í þessum átökum. „Þegar skapahár eru fjarlægð ertir það að sjálfsögðu og veldur bólgu í hársekkjunum sem eftir verða, þetta skilur eftir sig örsmá, opin sár,“ segir Gibson. Erting og heitt, rakt umhverfi kynfæranna valdi því að margs konar örverur úr röðum streptokokka og stafýlokokka vaxi hratt í sárunum og geti valdið stórhættulegum sýkingum.//////Þá hafði þið það konur að þessi snyrting er hætuleg og hafið það í huga að þetta er hluti heilbrygðis að gera ekki,það er svo að svona viðkvæmur staður er ekki gott fá íllt í/Halli gamli 

mbl.is Mjög varasamt að fjarlægja skapahárin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

25 stiga hiti og fer hlýnandi/Þetta flott en kannski einum of,að margra mati!!

25 stigMynd 609729a hiti og fer hlýnandi Innlent | mbl.is | 9.8.2012 | 11:01 Mikil hlýindi eru á Austurlandi og um tíuleytið í morgun var hitinn kominn í 25,4 stig í Neskaupstað, 25,3 stig á Kollaleiru í botni Reyðarfjarðar og 24,6 stig á Seyðisfirði.

Að sögn veðurfræðings má búast við enn meiri hlýindum á Austurlandi um miðjan dag þegar sólin er hæst á lofti. Þau gerast vart meiri hlýindin á landinu, segir Einar Sveinbjörnsson á bloggi sínu á mbl.is í morgun.

Þá upplýsir Einar að hitinn hafi farið í 23 stig á Dalatanga í snarpri vestangolu í stutta stund á milli kl. tvö og þrjú síðastliðna nótt. Lægsti hiti sem mældist á Akureyri í nótt var 17,5 stig á miðnætti. Þar var hitinn kominn í 21,3 stig klukkan 10 í morgun. Jafnframt er hlýtt víða á Norðurlandi en þar er hins vegar mikill vindhraði.

Á Holtavörðuheiði er stormur og vindhraði 23 metrar á sekúndu. Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, varar fólk við að vera á ferð með tengivagna á Norðurlandi og á Vestfjörðum þar sem hvassast er

. „Það verður hlýtt í dag og á morgun norðan- og austanlands. Að vísu fylgir þessu nokkur vindur og búast má við einhverju sandfoki. Jafnframt verður nokkur vindur á Vestur- og Norðvesturlandi. Búast má við því að það lægi með kvöldinu.

Það er rétt að vara fólk við því að vera á ferð með tengivagna á þessum stöðum þar sem vindur er mikill. Við fengum tilkynningu áðan frá manni sem var fastur við Bifröst á bíl með tengivagni. Hann var á leið norður,“ segir Þorsteinn. Súldarloft verður á Suður- og Suðvesturlandi að sögn Þorsteins en nokkuð hlýtt í veðri. „Það verður hlýtt um allt land fram í næstu viku.

Sérstaklega á Norður- og Austurlandi þar sem einhver sól gæti skinið inni á milli,“ segir Þorsteinn. Hitamet á Íslandi var sett á Teigarhorni 22. júní árið 1939 og var 30,5 stig./////Það er fínt að fá gott veður, og hita mátulegan,en ekki um of sértaklega ef um að að ræða logn"!!! en þetta er svolítið misjafnt að mínu mati mestur hitinn er á Norðausturlandi og Austfjörðum en vindasamt og víða rigning annarstaðar,en samt hlítt ,að er bara gott að háinn sprettur ekki veitir af í heyleysinu/Halli gamli


mbl.is 25 stiga hiti og fer hlýnandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir skuldabyrði hins opinbera ósjálfbæra/"Oft ratast kjöftugum satt á munn"segir máltækið!!

SeÞór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. gir skuldabyrði hins opinbera ósjálfbæra Innlent | mbl.is | 9.8.2012 | 13:10 Skuldabyrði hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga, er ósjálfbær að mati Þórs Saari, þingmanns Hreyfingarinnar. Hann segir að ekki sé hægt að vinna á skuldum hins opinbera með auknu niðurskurði og meiri skattlagningu. „Eina leiðin út úr þessari sjálfheldu er að endursemja um róttæka endurskipulagningu á vaxtagreiðslum og endurgreiðslum. Það sama á við um skuldir heimilana. Þetta verður megin viðfangsefni næstu ríkisstjórnar, spurningin er hvaða flokkar viðurkenna þetta fyrir kosningarnar,“ segir Þór á Facebook-síðu sinni í dag./////þetta er hárr rétt há Þór Sarri og vel það,þó maður sé ekki alltaf sammála honum er það þarna ,og mjög þarft að ný ríkisstjórn, taki á þessum málum eftir kosningar!!!/Halli gamli
mbl.is Segir skuldabyrði hins opinbera ósjálfbæra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. ágúst 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047927

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband