Ensku liðin kynnt - Arsenal/Mitt lið Arsenal vann í dag Sautthampton 6-1 flott það!!!

Ensku liðin kynnt - Arsenal Íþróttir | mbl.is | 13.9.2012 | 15:49 Eftir skelfilega byrjun á síðasta tímabili þar sem lThomas Vermaelen er alltaf hættulegur í vítateig...iðið tapaði meðal annars 8:2 fyrir Manchester United náði Arsenal sér vel á strik og vann sig upp í 3. sæti úrvalsdeildarinnar í mars þar sem liðið endaði svo að lokumArsenal hefur ekki endað neðar en í 4. sæti frá árinu 1996 en liðið vann úrvalsdeildina síðast árið 2004 og hefur endað í 3. eða 4. sæti síðustu sjö leiktíðir.

Fyrsti atvinnumaður Íslands í knattspyrnu, Valsarinn Albert Guðmundsson, kom til Arsenal árið 1946 og lék tvo deildaleiki með liðinu áður en hann hélt til Nancy í Frakklandi og síðar AC Milan. Hann gat ekki spilað meira en þetta með liðinu í deildakeppninni vegna reglna um erlenda leikmenn og atvinnumennsku á þeim tíma.

Hnotskurn Arsenal var stofnað árið 1886 sem Dial Square en nafninu var breytt í royal Arsenal skömmu síðar. Nafninu var breytt í Woolwich Arsenal árið 1893, í The Arsenal árið 1914 og loks einfaldlega stytt í Arsenal í nóvember 1919.

Arsenal er staðsett í norðurhluta London og leikur heimaleiki sína á Emirates sem tekur 60.361 manns í sæti en þangað flutti liðið frá Highbury árið 2006. Arsenal hefur 13 sinnum orðið Englandsmeistari, síðast árið 2004. Liðið hefur tíu sinnum orðið enskur bikarmeistari, síðast árið 2005. Arsenal vann Evrópukeppni bikarhafa árið 1994 og komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu 2006 þar sem liðið tapaði fyrir Barcelona.

Miðvörðurinn David O'Leary, sem síðar stýrði Leeds og Aston Villa, lék 722 leiki fyrir Arsenal á árunum 1975-1993 og er leikjahæsti leikmaður liðsins. Thierry Henry hefur skorað flest mörk fyrir liðið eða 228 aðallega á árunum 1999-2007 og á seinni hluta síðustu leiktíðar. Skagamaðurinn Sigurður Jónsson kom svo til Arsenal árið 1989 og var í hópnum sem varð enskur meistari árið 1991 áður en hann varð að hætta hjá liðinu vegna bakmeiðsla.

Ólafur Ingi Skúlason kom svo 18 ára til Arsenal árið 2001 og var í fjögur ár en eini leikur hans með aðalliðinu var gegn Wolves í deildabikarnum árið 2003. Frakkinn Arsene Wenger tók við Arsenal sumarið 1996 og aðeins Sir Alex Ferguson hefur verið lengur í starfi hjá sínu félagi á Englandi. Wenger hefur eins og áður segir aldrei skilað Arsenal neðar en í 4. sæti á sínum tíma, landað þremur Englandsmeistaratitlum og fjórum bikarmeistaratitlum auk þess að koma liðinu í fyrsta sinn í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2006.

Undir stjórn Wenger hefur Arsenal getið sér orð fyrir skemmtilegan og sóknarsinnaðan fótbolta en sjö ár eru nú liðin síðan síðasti stóri titillinn kom í hús. Wenger hefur legið undir ámæli fyrir að láta það viðgangast að skærustu stjörnur liðsins fari frá liðinu en aftur á móti hafa ófáir óslípaðir demantar fengið að glitra undir hans stjórn.

Samningur Wenger við Arsenal rennur út eftir tvö ár og hann sagðist í dag ekki vera farinn að hugsa lengra en það þó að stjórn félagsins hafi gefið til kynna að hún vilji gera lengri samning. Bandaríski auðkýfingurinn Stanley Kroenke á meirihluta í Arsenal eða 66,83% í gegnum KSE UK Inc. Kroenke, sem er 65 ára gamall, á einnig hlut í bandarískum félagsliðum í NBA, NHL og MLS-deildunum í gegnum Kroenke Sports Enterprises.

Rússneski milljarðamæringurinn Alisher Usmanov og Íraninn Farhad Moshiri eiga næststærsta hlutinn í félaginu í gegnum Red & White Securities eða 29,35%. Stærstu félagaskipti sumarsins voru án nokkurs vafa sala Arsenal á Robin van Persie til Manchester United. Van Persie var besti og markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð en neitaði að endurnýja samning sinn við Arsenal sem átti að renna út eftir ár.

Því varð Arsenal að endurtaka leikinn og selja sína skærustu stjörnu líkt og fyrir ári þegar Cesc Fabregas fór til Barcelona en þá fór Samir Nasri einnig til Manchester City. Arsenal jafnaði sig eftir það áfall og í sumar hafði Wenger varann á og var snemma búinn að fá til sín franska framherjann Oliver Giroud frá Montpellier og Þjóðverjann Lukas Podolski frá Köln en Podolski getur bæði leikið úti á kanti og frammi. Þá fékk Wenger spænska landsliðsmanninn Santi Cazorla sem þykir einnig mjög góður kantmaður. Arsenal seldi hins vegar Kamerúnann Alex Song til Barcelona rétt eftir að keppnistímabilið hófst en Song hefur verið algjör lykilmaður á miðjunni hjá liðinu.

Þá virðist enn ekki þörf fyrir Danann Nicklas Bendtner sem var lánaður burt líkt og á síðustu leiktíð. Það efast enginn um það að Van Persie var aðalmaður Arsenal á síðustu leiktíð en nú þurfa aðrir að taka við keflinu. Spænski miðjumaðurinn Mikel Arteta lék oft frábærlega síðasta vetur og kantmaðurinn Theo Walcott hefur mikla hæfileika en þarf að ná meiri stöðugleika í sinn leik.

Thomas Vermaelen er einn besti miðvörður deildarinnar, og hættulegur í föstum leikatriðum, og Pólverjinn Wojciech SzczÄ™sny er orðinn mjög góður markvörður. Svo verður að koma í ljós hvernig nýju mennirnir stimpla sig inn. Arsenal hefur burði til að berjast á toppi deildarinnar en verður líklega að sætta sig við 3. eða 4. sætið líkt og síðastliðin ár.

Þessir eru komnir: Santi Cazorla frá Málaga Olivier Giroud frá Montpellier Lukas Podolski frá Köln

Þessir eru farnir: Benik Afobe til Bolton (lán) Manuel Almunia til Watford Chuks Aneke til Crewe (lán) Kyle Bartley til Swansea Yossi Benayoun til Chelsea (úr láni) Nicklas Bendtner til Juventus (lán) Daniel Boateng til Oxford (lán) Pedro Botelho til Atlético Paranaense Alban Bunjaku til Sevilla Park Chu-young til Celta Vigo (lán) Tom Cruise til Torquay Denilson til Sao Paulo (lán, framlengt) Samuel Galindo til Lugo (lán) Ben Glasgow til Stoke Gavin Hoyte til Dagenham & Redbridge Henri Lansbury til Nottingham Forest Ryo Miyaichi til Wigan (lán) Jeffrey Monakana til Preston Robin van Persie til Manchester United Alex Song til Barcelona Carlos Vela til Real Sociedad Wellington Alves da Silva til Ponferradina (lán) Oguzhan Özyakup til Besiktas //

Leikmenn Arsenal 2012-2013. Lukas Podolski og Santi Cazorla hafa skorað einu mörk Arsenal hingað til á leiktíðinni í sigri á Liverpool, 2:0, í 3. umferð eftir tvö markalaus jafntefli.//////svo við sjáum að saga þessa félas er þyrnum stráð að vissu merki og maður bara vonar að það verði áfram!!Þeir eru komnir í 3 sæti núna eftir að hafa unnið í dag 6-1 og það segir okkar bara gott vonandi,en Chelsea er i fyrsta með 10 stig og M.U.N. í öðru og Arsenal í þriðja,og 4 M.C. og 5 sæti Swansea sem kemur mikið á óvart,en þatt er rétta að byrja en samt skoðar maður þetta vel,og hefur auga með Liferpool sem er ekki að ná sér á strik blessaðir!!!!,en segi að lokum bara áfram góð knattspyrna og Arsenal!!!/Halli gamli


mbl.is Ensku liðin kynnt - Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einvígis aldarinnar minnst í dag///Þetta var frábært að vera þarna og fylgast með,en taugaveiklun var mikil!!!

Einvígis aldarinnar minnst í dag Innlent | mbl.is | 15.9.2012 | 11:15 Málþing stendur nú yfir í LaugarFrá málþinginu í morgun.dalshöll þar sem þess er minnst að 40 ár eru frá Einvígi aldarinnar þegar Boris Spasskí og Robert Fischer tefldu um heimsmeistaratitilinn í skák í Reykjavík árið 1972. en málþingið hófst klukkan 11.

Að því standa Skáksamband Íslands og Reykjavíkurborg. Farið verður yfir einvígið frá mörgum hliðum á málþinginu meðal annars af stórmeisturunum Friðriki Ólafssyni og Helga Ólafssyni. Þá flytja Eric Green, staðgengill sendiherra Bandaríkjanna, og Andrei Melnikov, sendiráðsritari í rússneska sendiráðinu, ávörp.

Klukkan 13 hefst síðan risaskákmót fyrir börn á grunnskólaaldri og skákmenn 60 ára og eldri. Þar verður keppt í fjórum aldursflokkum barna og fá allir keppendur sérhannaðan bol í tilefni dagsins. „Nú þegar eru um 250 börn skráð til leiks.

Fimm efstu í hverjum flokki frá verðlaun og auk þess verður haldið happdrætti með fjölda vinninga, þar sem m.a. eru flugseðlar í verðlaun,“ segir í tilkynningu. Þá verða ýmsir munir úr einvíginu til sýnis auk þess sem lifandi myndir frá atburðinum verða sýndar. Þátttaka í hátíðinni er ókeypis og allir velkomnir segir ennfremur í tilkynningunni./////////Þetta er manni vel í mynni!! og þarna fór maður eiginlega á flestar skákirnar,Sonur minn Har.Har.yngri var þá farin að tefla grimmt og komin í meistaraflokk og við vorum spenntir mjög og þetta var svo einstakt að þetta skildi vera hérna, að Rússana beiðni og Fischer samþykkti en mæti of seint og gerði kröfur sem ekki vara hægt að fara eftir alltaf,og það var frestað og samið, og mönnum með mjög góða vild ,tókst að koma þessu áfram,svo vorum við við lokahátíðina og það mjög gaman að sjá kvað í raun Fischer var barnalegur í sér en ekki við taflborðið,þar voru hans heilabrot óheft,eða svo engin sennilega hefur haft þessa greind, en hún var við kvæm eins og kom í ljós,og jaðraði við geðtruflun að mínu mati/en þetta vara gaman og ein og gerst hafi í gær í mínum huga og sonarins/Halli gamli


mbl.is Einvígis aldarinnar minnst í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launahækkunin röng forgangsröðun///RÁÐHERRA SEGI STRAX AF SÉR!!!

Launahækkunin röng forgangsröðun Innlent | mbl | 15.9.2012 | 12:33 „Við erum með götótt vökvasett og bitlausar nHjúkrunarfræðingar á þönum. álar. Það er ekki gott að vinna við þessar aðstæður. Við erum farin að spara of mikið á stundum og það bitnar á sjúklingunum,“ segir deildarstjóri á Landspítala. Hjúkrunarfræðingum finnst launahækkun forstjórans ekki vera forgangsröðun í þágu sjúklinga. segir Bylgja Kærnested, hjúkrunardeildarstjóri á hjartadeild Landspítalans.

Starfsfólk Landspítala hefur sætt sig við stóraukið álag undanfarin ár án þess að laun hafi hækkað í samræmi við það. Hjartadeildin er eitt dæmi, en stuttu fyrir kreppu voru tvær hjartadeildir á Hringbraut sameinaðar í eina og sjúkrarúmum fækkað um 10 niður í 32. Fyrir vikið þarf að nýta hvert pláss til hins ýtrasta og sjúklingar stoppa stutt við.

Sjúklingar útskrifaðir of snemma Bylgja Kærnested er hjúkrunardeildarstjóri á hjartadeild Landspítalans. mbl.is „Við förum yfir útskriftir á hverjum einasta degi og erum oft og tíðum að mér finnst að útskrifa fólk of snemma. Um leið og fólk fer heim þá er nýr sjúklingur kominn í rúmið, það eru nánast aldrei laus rúm á hjartadeildinni,“ segir Bylgja.

Hjartadeild Landspítalans er sú eina á landinu og þangað koma því fárveikir hjartasjúklingar alls staðar að af landinu og liggja flestir í tvíbýli, en sumir í fjórbýli. Starfsfólki hefur einnig verið fækkað á vöktunum síðan deildirnar sameinuðust, en um leið fjölgar sífellt mjög veikum sjúklingum að sögn Bylgju. Ef einhver veikist á dagvinnutíma er ekki kallaður út aukastarfsmaður. „Þá hleypur starfsfólkið bara hraðar. Ég segi að við séum með viðunandi mönnun, en ég má ekki fækka fólki neitt því þá er ég strax komin undir öryggismörkin.

Það getur verið hættulegt. Ég hefði viljað hafa fleira fólk á vöktunum.“ Hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum hittust á tveimur fjölmennum fundum í vikunni til að ræða óánægju sína með stöðu mála. Mbl.is/Árni Sæberg Starfsmenn rýna í hverja krónu Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags hjúkrunarfræðinga, sagði við mbl.is í vikunni að allt starfsfólk Landspítala, ekki bara forstjórinn, hefði lagt sig fram við að veita góða þjónustu samhliða niðurskurði. Mörgum þætti því ósanngjarnt að forstjóranum einum væri umbunað. Aðspurð segir Bylgja að starfsfólk hjartadeildar sé stöðugt vakandi fyrir hagræðingu.

„Við höfum haldið sparnaðarfundi og ég hef leitað til starfsmanna varðandi hugmyndir um sparnað. Við spörum til dæmis lín við sjúklinga og verðmerkjum alla hluti, alveg niður í minnstu sprautur. Við gefum sjúklingum auðvitað öll þau lyf sem þeir þurfa, en notum bara það allra nauðsynlegasta. Það er engin sóun í gangi og horft í hverja einustu krónu.

“ Þjónustan við sjúklinga skerðist Í vor var göngudeild kransæðasjúklinga á Landspítalanum lokað til að spara eitt stöðugildi hjúkrunarfræðings. „Af því að við erum að útskrifa fólk svo rosalega snemma þá vísuðum við mörgum á göngudeildina, en svo höfðum við ekki efni á að reka hana á Landspítalanum þannig að við erum að skerða þjónustu við sjúklinga. Landspítalinn hefur lagt áherslu á að efla göngudeildir en þrátt fyrir það varð að loka þessari deild. Það bitnaði verulega á hjartasjúklingum og okkur þykir það miður. Við sinnum allri bráðastarfsemi eins og við mögulega getum, en það er ýmislegt annað sem búið er að plokka af, og sjúklingar finna fyrir því,“ segir Bylgja.

Ein hliðin enn snýr svo að tækjabúnaðinum. Hjartadeild hefur afar lítið fjármagn frá Landspítalanum til endurnýjunar á tækjabúnaði og hefur því reitt sig á velunnara, eins og Hjartaheill - landssamtök hjartasjúklinga. „Við erum þeim auðvitað ótrúlega þakklát, og við höfum lengi þurft að sætta okkur við tækjabúnað sem uppfyllir ekki ströngustu kröfur.

Það veldur starfsfólki álagi, því það er stöðugt verið að færa fólk til þannig að þeir veikustu fái besta tækjabúnaðinn. Óréttlæti og röng forgangsröðun Þessi starfsaðstaða er ekki til sóma fyrir hjúkrunarfræðinga og aðra starfsmenn að mati Bylgju, en það sem meira er þá bitnar hún á sjúklingum. „Fólk er alveg til í að hagræða og fara vel með þá fjármuni sem við höfum, en núna finnst mér að fólk hugsi með sér: „Jæja, ég er að spara alla daga á meðan það er til peningur fyrir einhverju öðru, eins og þessu.

“ Og fólki finnst það ekki vera réttlátt.“ Fram hefur komið á tveimur fjölmennum fundum hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum að launahækkun forstjórans Björns Zoëga um 20%, upp í 2,3 milljónir króna, hafi verið kornið sem fyllti mælinn, á meðan skorið sé niður á öllum öðrum vígstöðvum. Bylgja segir að þetta snúist ekki um forstjórann sem slíkan. „Þetta snýst um forgangsröðun, og hún verður alltaf að vera út frá sjúklingnum. Hvað er best fyrir sjúklinginn. Hjúkrunarfræðingum finnst þessi launahækkun ekki vera best fyrir sjúklinginn.//////////Nóg er búið þegar að niðurlægja þetta blessað fólk þarna,þetta filti mælirin !!!!og er als ekki verjandi á engan hátt!!!Beit segir þetta manni að Ráðherran á að segja af sér ,og það strax engin miskunn með það,nóg er komið fyrir löngu!!!sama hvar er sagt þetta er óverjandi,og það er ráðist þessa dagana á flokkinn minn sjalfstæðisflokk,er það nú meira mál en að ráðherra skuli gera svona svífyrðu/Halli gamli

 


mbl.is Launahækkunin röng forgangsröðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrópumálunum ýtt til hliðar?///// Vonandi alveg,en það er kannski óskhyggja??

EvrópÞorsteinn Pálsson, fyrrverandi forætisráðherra.umálunum ýtt til hliðar? Innlent | mbl.is | 15.9.2012 | 13:21 Verið er að ýta Evrópumálunum til hliðar í íslenskum stjórnmálum að mati Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi forsætisráðherra og fulltrúa í samninganefnd Íslands vegna umsóknarinnar um inngöngu í Evrópusambandið.

Þetta kemur fram í grein sem hann skrifar í Fréttablaðið í dag en þar segir hann meðal annars að formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, Steingrímur J. Sigfússon, komi nú fram sem pólitískur leiðtogi ríkisstjórnarsamstarfsins og bjóði Framsóknarflokknum að taka þátt í að útiloka Sjálfstæðisflokkinn frá ríkisstjórnarþátttöku.

Þorsteinn segir Steingrím geta þetta vegna þeirrar tilslökun í Evrópumálum sem hafi átt sér stað hjá formanni Samfylkingarinnar, Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. „Sú málefnalega sveigja ræðst alfarið af því að vinstri armurinn hefur nú bæði tögl og hagldir í flokknum.

Þetta þýðir að í Samfylkingunni er verið að ýta þeim til hliðar sem vilja að heildarefnahagsstefnan ráðist af markmiðinu um upptöku evru,“ segir Þorsteinn. Þá segir hann að í Sjálfstæðisflokknum sé verið að ýta þeim til hliðar sem vilja ljúka aðildarviðræðunum við Evrópusambandið og þegar sé búið að því innan Framsóknarflokksins.//////////Þetta er vitað mál og bara staðfest þarna af Þorsteini Pálssyni,það er svo að allt skal gert til að koma sjálfstæðisflokki í einangrun,það heirðist á bæði  Steigrími og Jóhönnu í ræðum um fjarlögin!!!Ef Framsók gerir þetta eins og hún studdi meyrnihlutan til að koma á kosningum,en var svo refsað fyrir,þá eru þeir að stimpla sig með kommunum og Fjandinn hirði þá bara,með húð og hári,við vonandi náum miklum athvæðum og stöndum vel í stjórnaraðstöðu,og munum velgja kommunum undir  uggum og vel það,en við skulum bara vona Íslans veggja og atvinnu og framfara að við sem strærðsti flokkunin fái stjórnarmyndun til að byrja með,ef Jóhann verður ekki með  erum við til með að stjórna án inngöngu í ESB sjálfsagt!!!!Halli gamli 


mbl.is Evrópumálunum ýtt til hliðar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirbúningur fyrir stórleikinn - myndasyrpa/Blessaðar þær verða að vinna við styðjum þær!!!!!

UndirbÞað er allt klárt fyrir stórleikinn í dag.úningur fyrir stórleikinn - myndasyrpa Íþróttir | mbl.is | 15.9.2012 | 11:51 Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Norður-Írlandi í dag í undankeppni EM 2013 en með sigri tryggir íslenska liðið sig í umspil um sæti í lokakeppninni.

Sigur leggur líka upp úrslitaleik gegn Noregi ytra á miðvikudaginn um farseðil beint á EM 2013 þannig þrjú stig í dag eru afskaplega mikilvæg.

Leikurinn hefst klukkan 16.15 og verður í beinni textalýsingu á mbl.is. Bæði stelpurnar og starfsfólk Laugardalsvallar hafa verið í stífum undirbúningi en eins og strákarnir um daginn fóru stelpurnar á skyndihjálparnámskeið. Myndirnar hér að ofan eru frá Knattspyrnusambandi Íslands.////Við styðjum okkar stúlkur vel !!!og vonum að þær vinni blessaðar,svo þær komist áfram,allir sem geta fara á völlum og hrópa áfram Ísland!!Halli gamli


mbl.is Undirbúningur fyrir stórleikinn - myndasyrpa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wenger: Ox og Walcott ólíkir leikmenn/Við verðum að vinna þennan leik í dag Arsenal!!!

WengeWenger hrósar unglingastarfi Southampton.r: Ox og Walcott ólíkir leikmenn Íþróttir | mbl.is | 15.9.2012 | 12:08 Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er á því að kantmaðurinn eldfjóti Theo Walcott sé í raun meiri framherji og kollegi hans Alex Oxlade-Chamberlain sé meiri miðjumaður en kantmaður.

„Þeir eru ólíkir leikmenn. Mér finnst Walcott vera meiri framherjatýpa en Oxlade-Chamberlain er meiri miðjumaður.“

„Ég sé Oxlade-Chamberlain fyrir mér breytast hægt og bítandi í miðjumann en það mun aldrei gerast hjá Walcott. Hann mun verða meiri framherji,“ segir Arsene Wenger.

Báðir komu þeir í gegnum unglingastarf Southampton en Arsenal tekur einmitt á móti nýliðum Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Fyrst og fremst er Southampton með frábæra útsendara og gott unglingastarf. Southampton byrjaði fyrr í þessu en nokkur annað lið. Það er borin mikil virðing fyrir unglingastarfi liðsins,“ segir Arsene Wenger.////Við látum Wenger um liðið ,en viljum að þeir vinni þennan leik ekki spurning!!!Ég held að við verðum í toppliðunum,þrátt fyrir að missa alla þessa menn//Halli gamli


mbl.is Wenger: Ox og Walcott ólíkir leikmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar endursemji um veruna í ESB/þarna sjáum við að þetta er best að gera einnig fyrir okkur að hætta við!!!

Bretar eJohn Major, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands.ndursemji um veruna í ESB Erlent | mbl.is | 15.9.2012 | 11:56 Fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, John Major, kallar eftir því í grein í dag á fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph að Bretar fari fram á það við Evrópusambandið að staða landsins innan sambandsins verði tekin til endurskoðunar.

Framundan séu breytingar á Evrópusambandinu sem ekki verði hægt að smygla inn um bakdyrnar og muni hafa áhrif á öll ríki innan sambandsins. Líklega þurfi að breyta sáttmálum Evrópusambandsins vegna þeirra sem þurfi samþykki allra ríkja sambandsins.

Major telur að Bretar eigi að nota það tækifæri til þess að endursemja um veru sína innan Evrópusambandsins þannig að Bretland standi áfram utan evrusvæðisins og taki ekki þátt í breytingum sambandsins í átt að sambandsríki en verði samt áfram hluti af innrimarkaði þess. „Það er hægt að komast að samkomulagi.

Tengsl okkar við Evrópusambandið hafa valdið sársauka í breskum stjórnmálum í meira en hálfa öld. Tækifærið er framundan til þess að semja um fyrirkomulag sem er ábyrgara gagnvart hagsmunum okkar og aðstæðum,“ segir Major í grein sinni.///////Þetta er vit í fyrir Breta !!!þvi þeir eru i þreningum eins og við flest,við ættum að hætta við þetta einni ekki spurning,þetta er orðið stór hættulegt teymi og það er margir farnir að sjá/Halli gamli


mbl.is Bretar endursemji um veruna í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. september 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 1047926

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband