Loforð og efndir ríkisstjórnarinnar////svik og lýgi að 60% það mynsta!!!!!

LoforðMynd 610777 og efndir ríkisstjórnarinnar  Innlent | mbl.is | 21.9.2012 | 17:18 Með nýju efni á vefsvæði ríkisstjórnarinnar er að finna sundurliðun á loforðum og efndum ríkisstjórnarinnar varðandi gildandi kjarasamninga

Með yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við gerð kjarasamninga var margvíslegum og mikilvægum umbótaverkefnum hrundið af stað. Flest þessara verkefna hafa verið unnin í góðu samstarfi við aðila vinnumarkaðarins og fleiri hagsmunaaðila, segir í frétt frá forsætisráðuneytinu.

„Að undanförnu hafa forystumenn samtaka atvinnurekenda og launamanna sem og þingmenn stjórnarandstöðunnar sakað ríkisstjórnina um að svíkja gefin loforð í tengslum við gildandi kjarasamninga. Er þar fyrst og fremst vísað til yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga þann 5. maí 2011,“ segir í fréttinni.

Fjárfestingar Um sókn í atvinnumálum og fjárfestingar segir í yfirlýsingunni: „Það er markmið stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins að þetta hlutfall fari stighækkandi og verði ekki lægra en 20% í lok samningstímans en það jafngildir því að fjárfesting verði ekki lægri en 350 ma.kr. á ári.

“ Ljóst er að stjórnvöld gátu ein og sér aldrei ábyrgst 350 milljarða króna fjárfestingar og þess vegna hlaut markmiðssetning um fjárfestingu að vera sameiginleg stjórnvöldum og aðilum kjarasamningsins. Staðreyndin er að mörg stór verkefni hafa tafist af óviðráðanlegum ástæðum og ekki við ríkisstjórnina að sakast. Nefna má deilur um orkuverð sem tafið hafa álversframkvæmdir í Helguvík.

Erfitt efnahagsástand í heiminum torveldar fyrirtækjum að fá fjármagn til fjárfestinga hér á landi. Þetta hefur m.a. tafið uppbyggingu á uppbyggingu á Bakka við Húsavík en þegar yfirlýsingin var gerð vorið 2011 leit út fyrir að framkvæmdir myndu hefjast innan tíðar.

Þá má nefna að bygging nýs sjúkrahúss í Reykjavík hefur tafist um a.m.k. tólf mánuði vegna skipulagsvinnu Reykjavíkurborgar. Töfum af ýmsum toga hefur verið mætt með nýjum áformum sem ekki er að finna í umræddri yfirlýsingu. Þau koma m.a. fram í fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var snemma sumars.

Þar má nefna aukin framlög til samgöngumála, sóknaráætlanir landshlutanna og framlög til skapandi greina, tækni- og þróunarsjóða. Nefna má stefnumörkun um erlendar fjárfestingar sem lögð hefur verið fram sem þingsályktunartillaga.

Jafnframt hefur fé verið veitt til að kynna grænar fjárfestingar sem Íslandsstofa hefur umsjón með. Mennta- og vinnumarkaðsmál Allt er lýtur að menntamálum og vinnumarkaðsúrræðum hefur gengið eftir í góðu samstarfi við aðila vinnumarkaðarins.

Aðfinnslur Samtaka atvinnulífsins þar að lútandi eru því ómaklegar. Velferðarmál Fullyrða má að staðið hafi verið við allt er lýtur að velferðarmálum í nefndri yfirlýsingu. Frumvarp um heildarendurskoðun á almannatryggingum mun raunar ganga lengra en þar er sagt með því að stórlega verður dregið úr tekjutengingum.

Þá hefur verið staðið við loforð um starfsendurhæfingu. Skattamál Atvinnutryggingagjald verður lækkað eins og lofað var um 0,3 prósentustig árið 2013. Í yfirlýsingunni engu lofað um almenna tryggingargjaldið. Ljóst var að kjarasamningarnir voru mjög dýrir er varðar útgjöld til almannatrygginga.

75% af útgjöldum lífeyristrygginga voru fjármögnuð af almenna tryggingagjaldinu í fjárlögum 2003 en tíu árum síðar, árið 2013, eru einungis 57% af útgjöldunum fjármögnuð af tryggingagjaldinu og hefur ríkissjóður þurft að axla mismuninn á þessu tímabili.

Gott samráð hefur verið um skattlagningu fyrirtækja. Komið hefur verið til móts við næstum öll sjónarmið Samtaka atvinnulífsins. Ákveðnir þættir voru lögfestir í fyrra og frumvarp um enn aðra þætti, s.s. um þunna eiginfjármögnun og afdráttarskatt á vaxtagreiðslu, verður flutt á næstu vikum.//////////Ég er ekki alveg viss,en samt þó nokkuð,að þessi ríkisstjórn hefur ekki staðið við nema kannski 40 af því sem lofað var,hámark,þeim finnst það kannski nóg,en  hitt sem þau hafa ílla gert ,er eiginlega að stórum hlut ómælanlegt,kaup kaups á millum flokkana hafa verið okkur dýr mjög,ESB samfylking og svo V.G.fengið í staðin að stoppa allt virkjanir og Álver og bósaflega,allar framkæmdir,algjör kirstaða í öllu,atvinnuleysi og fátækt í hámarki,eiginlega allt í ríkishöndum,og vilja ríkisvæða allt!!!ég held að við séum löngu búinn að fá nóg,af þessum kommastælum,og viljum nýtt stjórnkerfi og framfarir,sem fyrst!!!!/Halli gamli 


mbl.is Loforð og efndir ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur: Evran sterkari en dolla///Össur og c/o vilja bara ESB:annars fáum við ekki evruna!!

ÖssÖssur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.ur: Evran sterkari en dollar Viðskipti | mbl.is | 21.9.2012 | 14:19 Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að valið sem þjóðin standi frammi fyrir í gjaldmiðla málum sé milli óstöðugrar íslenskrar krónu og evru sem vonandi kemur sterkari út úr krísunniÖssur hélt í morgun ávarp á málþingi sem bar yfirskriftina „Er evran lausnin“ en þingið markaði endurreisn Fransk-íslenska verslunarráðsins.

Í máli sínu sagðist Össur sannfærður um að evrusamstarfið muni komast í gegnum yfirstandandi erfiðleika. Hann benti á að evran væri nú 6,5% sterkari en Bandaríkjadollar og hefði frá upphafi verið að meðaltali verið 4,0% sterkari en dalurinn.

Þá hefðu einstök evruríki gripið til róttækra ráðstafana til þess að takast á við efnahagserfiðleika sína, og sagðist bjartsýnn á að þau meðöl myndu virka rétt eins og þau gerði á Íslandi í stöðugleikaáætlun Íslands og AGS.

Síðast en ekki síst mætti skynja sterkari pólitískan vilja en áður frá aðildarríkjunum og Evrópska seðlabankanum að komast í gegnum skuldakreppuna í sameiningu.

Utanríkisráðherra sagði sterkari evru, sem komist hefði í gegnum þessa eldskírn, vera skýran valkost fyrir Íslendinga. Hann vísaði til nýrrar skýrslu Seðlabanka Íslands þar sem fram kemur afdráttarlaust að upptaka evru myndi hafa í för með sér lækkun vaxta, aðgang að stærri fjármagnsmarkaði, aukinn og langþráðan stöðugleika í íslensku efnahagslífi, lægra vöruverð og lægri verðbólgu.

Þá myndi upptaka evrunnar geta aukið þjóðarframleiðslu um 20 til 160 milljarða króna árlega og dregið úr viðskiptakostnaði fyrirtækja um 5 til 15 milljarða króna, til viðbótar þeim mikla sparnaði sem fælist í því að þurfa ekki að halda úti gjaldeyrisvaraforða sem greiða þarf af tugmilljarðavexti á ári hverju.

Kostir evrunnar fyrir Ísland eru því óbreyttir, sagði Össur, en tók jafnframt undir með skýrslu Seðlabankans að evruupptaka væri ekki æskileg í augnablikinu, enda stæði það ekki til. Fyrst þyrfti að rætast betur úr ástandinu í einstökum ríkjum. En utanríkisráðherra undirstrikaði að í skýrslunni kemur einnig skýrt fram íslenska krónan er beinlínis uppspretta þess óstöðugleika sem sveigjanleiki hennar nýtist síðar til að takast á við, og hlýtur það að setja umræðuna um kosti krónunnar í nýtt samhengi.////////Þetta er svolitað samtal,að það hálfa væri nóg!!!!bara áróður fyrir ESB og ekkert annað,við erum ekkert að fara að ganga þarna inn,als ekki,og Evruna fáum við ekki einhliða!!svo fullyðir efrópusinnin Össur að evran sé sterkari gjldmiðill en Dollar,þetta er hauga lýgi,og alltaf einnig sagt að viðskipti okkar séu meiri í evrum,það er einnig lýgi,það er í Dollurum!!!en í alvöru!!!,ef við komum fjármálum okkar í lag ,getum við tekið einhliða upp Dollar,ekki spurning,og það yrði okkar björgunn,og sálfstæði borgið!!!!!,nema í gengisfellingum fyrri ára///Halli gamli 


mbl.is Össur: Evran sterkari en dollar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. september 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 1047926

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband