Taki á málaflokknum með reisn/Þarna er maður sammála Prestinum Erni Bárðar Jónssyni!!!

„Taki á málaflokknum með reisn“ Innlent | mbl | 25.9.2012 | 20:45 „Reynsla okkar af lokun líknardeilLíknardeildinni á Landakoti var lokað árið 2011....darinnar [í Landakoti] vakti okkur til umhugsunar um hvar ákvarðanir séu teknar.

Eru þær teknar í samræmi við stefnu stjórnvalda? Eru teknar geðþóttaákvarðanir af stjórnendum?“ Þetta segir sr. Örn Bárður Jónsson, formaður Hollvinasamtaka líknardeilda.

en samtökin stóðu í gær fyrir ráðstefnu um stefnumörkun í heilbrigðismálum á Íslandi á Grand hóteli þar sem fjölmargir aðilar héldu erindi um heilbrigðismálefni. Telur ekkert hafa sparast með lokun deildarinnar „Hvað með vilja fólksins?

Hvað með rödd almennings í þessu öllu? Auðvitað veit ég að við búum í heimi takmarkaðra gæða og ekki til endalausir peningar en ég er ekki viss um að það hafi sparast ein einasta króna við lokun líknardeildarinnar á Landakoti en það er búið að skerða þjónustuna og aldraðir, deyjandi, hafa ekki þessi sömu úrræði og veitt voru þar.

Það finnst mér miður,“ segir sr. Örn Bárður. Sr. Örn Bárður Jónsson, formaður Hollvinasamtaka líknardeilda. En hvað með opnun nýrrar líknardeildar í Kópavogi? „Það er auðvitað mjög gott og ég fagna henni, en heildarþjónustan hefur minnkað. Rúmin eru færri. Þessi stækkun var opnuð fyrir um hálfum mánuði en ég veit ekki hvort það er búið að manna deildina ennþá.

Hugsanlega eru þessi rúm ennþá tóm þó hún hafi verið opnuð formlega fyrir hálfum mánuði.“ „Líknardeild á Landakoti þjónaði mörgum“ „Ég var þarna á líknardeild í síðustu viku en það var ekki búið að breyta neinu þar og þeir hafa verið í vandræðum með að manna, fá lækna og hjúkrunarfólk til starfa á þessar deildir,“ segir sr. Örn Bárður og bætir við: „Þetta var mjög flott deild á Landakoti og vann vel.

Þjónaði mörgum og var mjög þörf deild og það var skaði að henni skyldi lokað.“ Á ráðstefnunni í gær var samþykkt ályktun þar sem skorað var á yfirmenn heilbrigðismála á Íslandi að mótuð yrði heildræn stefna í líknarþjónustu á Íslandi sem taki mið af nútímalegum skilningi á líknarhugtakinu og mæti þörfum allra þegna landsins án tillits til aldurs

. Ályktun Hollvinasamtaka líknardeilda í heild: „Hálft ár er liðið frá því líknardeild fyrir aldraða á Landakoti var lokað. Þar með var aðgengi eldra fólks í viðkvæmri stöðu við lífslok takmarkað að sérhæfðri þjónustu.

Ákvörðun þessi var í andstöðu við stefnumótun í forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu frá 1997, sem Alþingi samþykkti. Þar var líknarþjónusta sett í forgangsflokk tvö af fjórum. Með lokun líknardeildarinnar var sérhæfðum hópi heilbrigðisstafsmanna þar með sundrað.

Þrátt fyrir ábendingar og mikinn samfélagslegan vilja til þess að þyrma þessari mikilvægu starsemi, völdu stjórnendur velferðarráðuneytis og Landspítala að taka ekki tillit til þessa. Málatilbúnaður og framkvæmd öll var andstæð við upplýsta og opna umræðu í íslensku samfélagi.

Ráðstefna Hollvinasamtaka líknardeilda, haldin í Reykjavík 24. september 2012, skorar á æðstu stjórnendur heilbrigðismála á Íslandi að mótuð verði heildstæð stefna í líknarþjónustu á Íslandi sem tekur mið af nútímalegum skilningi á líknarhugtakinu og mæti þörfum allra þegna landsins án tillits til aldurs. Virða þarf óskir fólks til þess að búa sem lengst á eigin heimili, en að fólk geti reitt sig á sérhæfða líknarmeðferð án tafa ef allt um þrýtur heima. Stefnumótun í heilbrigðisþjónustu til ársins 2020 verður að taka á þessum málaflokki af reisn.“//////////Mikið er maður sammála séra Erni Bárðar Jónnsyni þarna þetta er bara mjög slæmt að gera og loka þessari deild á Landakoti allt til als þarna,maður satt að segja á bara ekki orð að þetta skuli verða lokin hjá mörgum að fá ekki að deyja með reisn!! og það okkur öllum bara til skammar,ekkert annað,þessi mál eru okkur öllum viðkomandi!!!!Halli gamli


mbl.is „Taki á málaflokknum með reisn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarlegir gallar á bókhaldskerfinu/Auðvitað verður þetta allt skoðað!!!!

Alvarlegir gallar á bókhaldskerfinu Innlent | mbl.is | 25.9.2012 | 20:23 Alvarlegir öryggisgallar eru á rekstri bókInnleiðing bókahaldskerfisins hefur kostað milljarða.haldskerfis sem ríkið keypti af Skýrr árið 2001. Þetta er fullyrt í fréttaskýringu sem Kastljós birti í kvöld.

Þar segir ennfremur að farið sé á svig við viðurkenndar reikningsskilavenjur og eldveggir milli stofnana séu lekir. Kastljós hóf í gær að fjalla um bókhaldskerfi ríkisins, en Ríkisendurskoðun hefur unnið að skýrslu um málið.

Skýrslan er ekki tilbúin og hefur ekki verið kynnt Alþingi þrátt fyrir að nokkur ár séu síðan stofnuninni var falið að vinna skýrslu um innleiðingu kerfisins og kostnað við það. Innleiðing bókhaldskerfisins hefur kostað yfir fjóra milljarða króna.

Í Kastljósi í kvöld kom fram að mikið vanti á að kerfið uppfylli öryggisstaðla. Þannig geti sama manneskjan tekið við reikningum, bókað þá, samþykkt og greitt reikninga. Fyrirtækinu Skýrr var falið að innleiða kerfið.

Vitnað er í drög að skýrslu Ríkisendurskoðunar þar sem segir að stofnunin telji að um alvarlegan öryggisveikleika sé að ræða sem geti leitt til hugsanlegra mistaka eða misnotkunar og „því valdið ríkissjóði miklum skaða“.

Einnig segist Kastljós hafa séð tölvupósta frá notendum kerfisins þar sem kvartað er yfir því að hægt sé „að opna, bóka eða bakfæra færslubækur sem aðrar stofnanir eiga í kerfinu“.////////Málið er alvarlegt!!! ekki spurning og segir manni að þarna er ekki allt með feldu als ekki,og þarf endurskoðunar við,ekki bara hnútukast á þessa og hina  bara rannsaka til mergjar,og fá niðurstöðu og lækna þetta,svo hjóta menn refsingu út frá því,þetta er mjög svo klaufalegt að þetta skulu hafa verði í gerjun í 8 ár og núna fyrst að vera að Bombu!! sem springur rétt fyrir prófkjör og kosningar,en skítt með það allt uppa borðið og við öll bara heimtum það,ekki bara Alþingi einnig við öll,ef þetta er svona víða ennþá,hvað höfum við þá lært,???/Halli gamli


mbl.is Alvarlegir gallar á bókhaldskerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúnaðarskjali lekið til Kastljóss/Sprengjum mun verða kastað fram að kosningum til að fegra þessa ríkisstjórn,sem fjármálráðherra þeirra gefði átt að vita um!!!

TrúnaðarKastljósskjali lekið til Kastljóss Innlent | mbl.is | 24.9.2012 | 21:50 Óbirtu trúnaðarskjali vegna kaupa á fjárhagsupplýsingakerfi fyrir ríkið var komið með ólögmætum hætti til Kastljóss, að sögn Ríkisendurskoðunar.

Í frétt Kastljóss um þetta fjárhags- og bókhaldskerfi segir að kerfið hafi kostað fjóra milljarða, en það hafi átt að kosta 160 milljónir. Í Kastljósi sagði að Ríkisendurskoðun hefði skrifað svarta skýrslu um málið sem enginn fengi að sjá. Sveinn Arason ríkisendurskoðandi.

Í yfirlýsingu Ríkisendurskoðunar segir: „Umrætt vinnuplagg er trúnaðargagn sem komið hefur verið með ólögmætum hætti til Kastljóss. Plaggið hefur ekki verið sent formlega til hlutaðeigandi aðila til andmæla. Villur, rangfærslur og misskilningur sem plaggið kann að innihalda hafa því ekki verið leiðrétt.

Þeir aðilar sem athuganir Ríkisendurskoðunar beinast að hafa rétt til að andmæla frumniðurstöðum stofnunarinnar. Stofnunin fer ávallt vandlega yfir slík andmæli áður en gengið er frá endanlegri skýrslu og tekur afstöðu til þess að hvaða marki tekið verði tillit til þeirra.

Með umfjöllun Kastljóss hafa hlutaðeigandi aðilar í reynd verið sviptir þessum andmælarétti. Iðulega breytast drög að skýrslum sem Ríkisendurskoðun hefur í smíðum í kjölfar andmæla. Jafnvel eru dæmi um að slík vinnuplögg taki stakkaskiptum á lokastigum vinnslu. Það er því beinlínis rangt að leggja umrætt plagg að jöfnu við fullgerða skýrslu.

Í ljósi framangreinds telur Ríkisendurskoðun óábyrgt af Kastljósi að vitna eða vísa með öðrum hætti til þessa vinnuplaggs, líkt og um endanlega skýrslu sé að ræða. Þess má raunar geta að tölur þær sem nefndar voru í umfjöllun Kastljóssins er að finna í fjárlögum og ríkisreikningi og hafa því lengi verið opinberar upplýsingar.

Ríkisendurskoðun viðurkennir að vinna við verkefnið hefur dregist á langinn. Þegar umrætt vinnuplagg lá fyrir í árslok 2009 var ákveðið að skoða betur nokkra þætti og uppfæra upplýsingar sem orðnar voru úreltar. Þessi vinna hefur farið fram á undanförnum misserum með hléum.

Áætlað er að henni ljúki áður en langt um líður og að niðurstöður verði birtar í opinberri skýrslu.

Fráleitt er að halda því fram að Ríkisendurskoðun hafi reynt að halda mikilvægum upplýsingum frá Alþingi, enda sendir stofnunin árlega um 30 rit til þingsins þar sem iðulega er fjallað með gagnrýnum hætti um margvíslega þætti ríkisrekstrarins.

Ríkisendurskoðun harmar að umrætt ófullgert vinnuplagg stofnunarinnar hafi ratað í fjölmiðla enda er það, af fyrrgreindum ástæðum, afar óheppilegt og getur ekki stuðlað að upplýstri umræðu.

Þvert á móti kann það að skaða þá hagsmuni sem í húfi eru. Þá getur boðuð umfjöllun Kastljóssins um öryggismál fjárhagsupplýsingakerfis ríkisins stefnt mikilvægum almannahagsmunum í voða og haft ófyrirséðar afleiðingar í för með sér.“////////Engan er maður að verja þarna ef einhver hefur gert slíkt viljandi!!!,það verður skoðað ekki spurning,en þetta er kjörin bomba á þá sem voru við stjórn fyrir 8 árum,og allt siðan er þetta nú trúverðugt að einhver hafi af því hag???auðvitað er þessi klínt á aðra en þessa hvítþvegnu ríkisstjórn,Ég bara segi að þetta verður borið út sem glæpur fyrrverandi Ríkisstjórnar,en það er ríkisendurskoðandi sem þessu mun svara,ef hann er rétt fyrir sér ,og þessu hafi lekið sem sem óunnið plagg,og ver hann það auðvitað,en dropin holast steininn og þeir stjórnasinnar eru með Göbbels á þetta að svo oft má segja hlutinn að fólk fari að trúa honum!!!Halli gamli


mbl.is Trúnaðarskjali lekið til Kastljóss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja óbreytta rammaáætlun/Ekki spurning það viljum við öll sem vilju framfarir!!!

Vilja Fyrsti flutningsmaður er Bjarni Benediktsson, formaður...óbreytta rammaáætlun Innlent | mbl.is | 24.9.2012 | 22:34 Þingflokkur sjálfstæðismanna á ALþingi hefur lagt fram frumvarp þar sem gert er ráð fyrir að ráðherra leggi tillögur verkefnisstjórnarinnar fram óbreyttar á Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar.

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að umhverfisráðherra leggi fram að nýju tillögu um vernd og nýtingu orkukosta, en tillaga þessa efnis var ekki útrædd á síðasta þingi. Búið er að vinna að þessari áætlun í mörg ár, en sérstakri verkefnisstjórn um rammaáætlun var falið að vinna að áætluninni.

Í skýrslunni raðaði verkefnisstjórnin virkjunarkostum í samræmi við niðurstöður og niðurröðun faghópa á grundvelli faglegrar vinnu og samráðs. Verkefnisstjórnin flokkaði virkjunarkostina ekki líkt og kveðið er á um í lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, enda var verkefnisstjórninni ekki falið að gera tillögu að slíkri flokkun.

„Eftir skil hennar fór því í gang ógagnsætt ferli við flokkun virkjunarkosta þar sem ekki var að öllu leyti byggt á niðurstöðum verkefnisstjórnarinnar heldur virðist ráðherra hafa látið pólitísk sjónarmið ráða för. Þarna urðu skil í því faglega ferli sem fram að því hafði einkennt alla vinnu að rammaáætluninni,“ segir í greinargerð með frumvarpi sjálfstæðismanna.

Þingmennirnir segja brýnt að tryggja að sátt ríki um ákvarðanir um verndun og nýtingu landsvæða og orkuauðlinda. Er það í samræmi við stefnu stjórnvalda sem til margra ára hefur verið að byggja ákvarðanatöku um vernd og orkunýtingu á faglegum forsendum.

„Sú var mörkuð árið 2003 í stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og var síðar staðfest árið 2007 í stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar þegar ákveðið var að skipuð yrði fagleg verkefnisstjórn fyrir vinnu við 2. áfanga rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða.

Sú stefna hefur falið í sér að hinar faglega unnu niðurstöður og tillögur yrðu lagðar fyrir Alþingi. Þeirri stefnu var ekki fylgt til enda og því ljóst að grípa þarf inn í ferlið með lagabreytingu til að tryggja að faglega sé staðið að gerð verndar- og orkunýtingaráætlunar

.“ Sjálfstæðismenn leggja því til að ráðherra leggi tillögur verkefnisstjórnarinnar fram óbreyttar á Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar. Þannig sé tryggt að við ákvörðun um verndun og um orkunýtingu „sé byggt á faglegum grundvelli, vísindalegum gögnum, gagnsærri aðferðafræði og þeirri miklu og ítarlegu vinnu sem síðasta verkefnisstjórn um rammaáætlun hefur innt af hendi og fær nú tækifæri til að ljúka.“/////Hvað hljómar daglega í okkar eyrum!!,vantar pening í þetta og hitt :sérstaklega Heilsugærslu allri !!heldur flestu í því+ og forvarnir!!! og svo atvinnu !!og að borga niður skuldir!! ekki bara ríkið sem skuldar svo að það fara 90 milljarðar í vexti á ári heldur heimilin i landinu og fyrirtækin!!svo reka menn upp stór augu þegar okkar flokkur með Foringja í forsvari vill breyta rammaáættlun sem á að stopp allt,er nema von að þetta brenni á okkur sem horfum á þetta i réttu ljósi ekki þessum eylífa þrönga hugsunarhætti að friða allt nema sjálfan sig!!!í alvöru talað er þetta það eins sem getir komið okkur í plús aftur og við getum skapað en ekki gengið á alla hluti ein og þessi ríkisstjórn gengur að öllu hálf dauðu!!!!/Halli gamli


mbl.is Vilja óbreytta rammaáætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. september 2012

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 1047926

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband