Var að hlusta á kastljósið,þar voru formanframbjóðanda samfylkingar ,manni blöskraði!!!!!

Manni hrís hugur!!!!! við að hlusta á þessa formanaframbjóðanda samfylkingar!!!!!!!,það að RÚV skuli lofa þeim ,að komast upp með lygina sem þar kom fram!!!Að aðrir flokkar en þeirra ætti ekki að komast að vegna þess að þeir komu landinu á hausinn,ekkert heimskreppunni að kenna???svo þessi einstrengingur þeirra á ESB,á að klára og það eina mundi bjarga þjóðinni,og svo kjósa um það á eftir!!!en einnig er gott að vita að þeir mynda ekki aðra ríkisstjórn með neinum eftir sem ekki samþykkir þetta,þá vitum við það!!!einnig að þeir voru í ríkisstjórn þegar hrunið varð í stórum hluta heimsins!!!en þetta var eiginlega kærkomið af spyrlinum að spyrja þá beint út þarna,enda hlýtur þetta að fella þrennan flokk meira,því það eru ekki bara V.G. sem eru að eyðast upp!!!!Halli gamli

Umsóknarríki ESB funduðu í Dublin//við hættum þessum viðræðum ekki spurning!!!


Stefán Haukur Jóhannesson Umsóknarríki ESB funduðu í Dublin Innlent | mbl.is | 21.1.2013 | 18:07 Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið, sótti í gær og í dag fund Evrópumálaráðherra ESB og umsóknarríkja.

Stefan Fule framkvæmdastjóri stækkunarmála tók einnig þátt í fundinum. samkvæmt fréttatilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu.

Fundurinn fór fram í Dublin en Írland tók við formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins um áramótin.

Meginumræðuefni fundarins var hvernig efla má lýðræði á vettvangi Evrópusamvinnunnar.

Rætt var um leiðir til að auka lögmæti og ábyrgð stofnana sambandsins nú þegar samvinnan er að aukast meðal annars í efnahags- og gjaldmiðilsmálum, og hvernig efla má þátt þjóðþinga og Evrópuþingsins á því sviði.

Í umræðum á fundinum greindi Stefán Haukur frá því hvernig Ísland hefur í umsóknarferli sínu lagt áherslu á gagnsæi og samvinnu við ólíka hagsmunahópa.

Hvort tveggja hefur reynst vel og innsýn og reynsla hagsmuna- og félagasamtaka hefur styrkt vinnu við mótun samningsafstöðu Íslands.

Sömuleiðis hefur þingið gegnt lykilhlutverki frá upphafi samningavinnunnar, sagði Stefán Haukur. Hann gerði einnig grein fyrir nýlegu samkomulagi ríkisstjórnar um að hægja á samningaviðræðunum við ESB fram að kosningum og útskýrði hvað í því felst.////////////////þetta er meiri vitleysan !!!við erum ekki að hægja á heldur hætta ,þessu að draga okkur og þá á asnaeyrum er ekki legur hægt,þessu er hætt og ekkert annað!!!nóg komið af eyðslu í þetta,við erum með meirihluta fyrir því og vel það;///Halli gamli


mbl.is Umsóknarríki ESB funduðu í Dublin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú verður hart mætt hörðu á Alþingi næst!!!Við látum ekki þennan 1/3 part þjóðarinar vaða yfir okkur: með byltingu órædda stjórnarskrá!!!

þessu verður ekki við unað,als ekki frekja þessa fólks er slík, að við stoppum þetta og ræðum málin,og breytum bara sem þarf af nauðsyn hún er ekki svo slæm sem af er látið!! loksins verður þessu yfirgangsfólki sýnt að það stjórnar ekki landinu með minnihluta miklum!!!!/Halli gamli

ESB þarf ekki annað Bretland/það segir sig sjáft hættum þessum leik!!!!


Mynd 638975 ESB þarf ekki annað Bretland“ Innlent | mbl.is | 21.1.2013 | 10:41 „Evrópusambandið höfðar greinilega ekki tilÍslendinga lengur.

Efnahagserfiðleikarnir og óljós framtíð evrunnar, þrátt fyrir allar björgunartilraunir ráðamanna í Brussel, sýna sambandið eins og gamlan bát í stórsjó.

“ Þetta segir Alessio Pisanò, pistlahöfundur á vefsíðu samtakanna Young European Federalists sem starfað hafa frá árinu 1972 og berjast fyrir því að til verði eitt evrópskt sambandsríki.

Tilefni skrifa hans á síðuna er ákvörðun ríkisstjórnar Íslands að hægja á viðræðunum um inngöngu Íslands í Evrópusambandið.

Pisanò segir ákvörðunina benda til þess að ríkisstjórnarflokkarnir óttist fylgistap ef þeir leggi áherslu á inngöngu í sambandið fyrir þingkosningarnar í vor.

Hann segir ennfremur að Íslendingar hafi aldrei verið áhugasamir um að ganga í Evrópusambandið þar sem því fylgi að fara eftir sameiginlegum reglum.

Slíkar utanaðkomandi reglur um sjávarútveg og landbúnaðar séu ekki vel séðar. Þá gagnrýnir Pisanò nálgun Íslendinga við Evrópumálin og segir hana einkennast af eiginhagsmunasemi.

Hann segir að ef fólk geri sér ekki almennilega grein fyrir því hvað fylgi því að vera í Evrópusambandinu, bæði hvað varðar kosti og skyldur, verði samruni viðkomandi lands við sambandið aldrei traustur eða til þess fallinn að skila árangri.

„Evrópusambandið þarf ekki annað Bretland núna,“ segir hann að lokum og vísar í oft á tíðum stirð samskipti breskra stjórnvalda við ráðamenn í Brussel. Pistillinn á vefsíðu Young European Federalists/////////////þurfum við meiri og sterkari rök en þetta til að hætta þessu ferilli,alveg í næstu árum allavega,við eigum ekki að kíkja í neitt sem eru einhverjar undanþágur um tíma sem er ekki einu sinni víst!!!!það er nær að yfirfara EES og það sem fyrst og minka þessa ofurreglugerð sem er ekkert nema kostnaður!!!!jafnvel segja því upp,við verðum hvort eð er að leita nýrra markaða fyrir fiskin okkar ekki mun af veita!!!Það verður að segjast að þessi sendiherra okkar gamli,sem var með gein í Mogga og var að vara okkur við Kínverjum ,sem varð í síðasta ári eitt stærðsta markaðsveldi heimsins,skuli vera svona tortryggin og vari okkur við þeim,sem gætu keypt af okkur allan fiskin,og önnur lönd þarna einnig Indverjar!!!við eigum að gera tvíhliða samning við þessi lönd,einnig Ameríku og Rússa!!!!en ekki aðeins binda okkur við Evrópu eingöngu!!!!/Halli gamli


mbl.is „ESB þarf ekki annað Bretland“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. janúar 2013

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband