Framboðsfrestur hjá VG í NV-kjördæmi til miðnættis/Næst nokkur Þarna inn á þing???

Framb
Jón Bjarnason afhendir Steingrími J. lyklana að...Framboðsfrestur hjá VG í NV-kjördæmi til miðnættis Innlent | Morgunblaðið | 7.1.2013 | 5:30 Fjögur framboð höfðu borist fyrir forval VG í Norðvesturkjördæmi í gærkvöldi.

„Við þykjumst vita að það séu fleiri framboðá leiðinni,“ sagði Friðrik Aspelund, formaður kjörstjórnar. Framboðsfresti lýkur á miðnætti í kvöld.

Nöfn frambjóðenda verða tilkynnt fljótlega eftir það. Kosið verður um sex efstu sætin á listanum í póstkosningu.

Atkvæði verða talin 2. febrúar næstkomandi. Þegar hefur komið fram að Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður, sem var í 2. sæti 2009, sækist eftir 1. sæti á listanum.

Jón Bjarnason alþingismaður hefur verið oddviti VG í kjördæminu. Ekki náðist í hann í gær.

Lárus Ástmar Hannesson hefur gefið kost á sér í 2. sæti en hann var í 10. sæti á lista VG í kjördæminu fyrir síðustu kosningar.///////Þetta er bjartsýni að manni finnst að þeir nái þarna inn manni,þessi flokkur sem hefur svikið eitt sitt stærsta mál sem,Þeir lofuðu er ekki á setjandi als ekki,þetta er svo stórt mál að þessir menn sem þetta kusu flokkinn útaf er búin að gera algjörlaga á sig og verður ekki meira martækur að mínu áliti!!!!/Halli gamli


mbl.is Framboðsfrestur hjá VG í NV-kjördæmi til miðnættis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styður Mandela-torg í Reykjavík///Hver er spurður bara eyða í snobb!!!

Styður Mandela-torg í Reykjavík Innlent | mbl.is | 7.1.2013 | 11:35 Skipulagsstjóri Reykjavíkur leggur til við skipulagNelson Mandela, fyrrverandi forseti S-Afríku.sráð að það taki jákvætt í tillögu Arkitektur- og designhögskolen í Ósló um að fá reit undir Nelson Mandela-torg í Reykjavík.

Málið verður tekið fyrir í skipulagsráði í vikunniArkitektaskólinn sendi bréf til borgarinnar 5. október þar sem óskað var eftir að borgin úthlutaði reit í Reykjavík fyrir lokaverkefni meistaraprófsnema í alþjóðadeild skólans.

Í bréfinu er Vitatorg nefnt sem hugsanlegur staður, en það er á lóðinni Lindargötu 64-66 ofan á bílageymslu íbúðar og þjónustumiðstöðvar aldraðra við Lindargötu. Í bréfi skipulagsstjóra er lagt til að tekið verði jákvætt í erindi skólans.

Nefnt er að þrjú torg komi helst til greina, Vitatorg, Óðinstorg, sem er milli Týsgötu, Óðinsgötu og Spítalastígs og Káratorg, sem er lítið torg við norðurenda Kárastígs.

 

Lagt er til að skólinn fái til umráða eitt af þessum þremur torgum fyrir verkefni sitt. Arkitektur- og designhögskolen í Oslo telur koma til greina að breyta Vitatorgi í Nelson Mandela-torg.

mbl.is/Heiðar Kristjánsson „Skólinn þarf að leggja tillögur fyrir ráð Reykjavíkurborgar í samráði við Umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar.

Farið yrði með tillöguna eins og önnur skipulagsmál, þar sem ráð borgarinnar geta haft áhrif á málið, samþykkt tillöguna, hafnað henni eða komið með breytingartillögur. Einnig þarf að ákveða hvort torgið verði til skamms tíma eða til frambúðar.

Koma skal fram hvers konar starfsemi þar er áætluð, hvort gert verði ráð fyrir tónlistarflutningi og hvort sú starfsemi sé í sátt við umhverfið,“ segir í umsögn skipulagsstjóra.

Í upphaflegu bréfi frá Arkitektur- og designhögskolen í Ósló segir að stefnt sé að því að tillaga um torgið verði tilbúin á árinu 2013. Steinþór Helgi Arnsteinsson, sem hefur haft milligöngu um þetta mál fyrir hönd skólans, segir í samtali við mbl.is, að afgreiðsla á þessu erindi hafi dregist hjá borginni og því sé útilokað að tillagan verði tilbúin á þessu ári.////////////Hefur þessi lýður sem stjórnar Borgini enga sómatilfyrningu,það eru erfiðir tímar og svo margt þarf  að laga og breyta,að það hálfa væri nóg,en þetta eru þeirra ær og kýr að eyða í einkvera vitleysu eða bruðl!!!er ekki nær fyrir þessi vanvita þarna að lækka þá útsvarið en blóðmjólka okkur sem mynna höfum,við erum ekkert spurð,hver gefur þeim  leifi til þessa engin!!! Þessir fuglar virðast komast upp með allt til að leika sér að,en gera ekki það sem þeim er skiltt!!!!þetta bílfjandsama fólk vill bara bílana burt,sem sköpum sko peninga fyrir öllum lafæringum okkar,og mikið meira en það!!!manni finnst komin tími á að stoppa þetta bruðl,og það strax//Halli gamli


mbl.is Styður Mandela-torg í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. janúar 2013

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband