Styður fullvalda ríki Palestínu///En samt styður hann Ísrael,til að ráðast á Íran!!!!!

 
Mahmud Abbas og Barack Obama á fundinum í dag.Styður fullvalda ríki Palestínu Erlent | mbl | 21.3.2013 | 17:24 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagði í heimsókn sinni á Vesturbakkann í dag að Bandaríkin væru staðráðin í því að styðja við stofnun fullvalda ríkis Palestínu.

Hvað sem því líður þá hafa væntingar Palestínumanna til heimsóknar forsetans verið litlar.

Forsetinn er nú í þriggja daga heimsókn til Ísrael og Vesturbankans en það er fyrsta heimsókn hans á svæðið frá því hann tók við embætti forseta.

Í ræðu sem hann hélt eftir fund með forseta Palestínu, Mahmoud Abbas, sagði Obama að aðgerðir Ísraelsmanna væru ekki vænlegar til að ná friði á svæðinu.

Hann sagði að John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, myndi leggja fram vinnu í að ná aðilum saman til að leita lausna. Benjamin Netanyahu og Barack Obama á blaðamannafundi í gær.

AFP Abbas sagði að viðræðurnar við forsetann hefði verið góðar og gagnlegar.

Samningaviðræður bestar til að ná lausn Eftir fundinn með Abbas, sem entist lengur en ráðgert hafði verið, sagði hann að það væri pirringur úr röðum beggja en að samningaviðræður væru bestar til þess að ná fram ásættanlegri niðurstöðu fyrir Ísrael og Palestínumenn.

„Palestínska þjóðin á skilið að hersetan endi og sú vanvirðing sem henni fylgir,“ sagði Abbas í Ramallah í dag. „Ég held að það sé ennþá mögulegt en ég held einnig að það verði erfitt,“ sagði Obama um þá leið að leysa málin í tvíhliða samningaviðræðum.

„En Palestínumenn eiga skilið að fá sitt eigið ríkið,“ sagði hann.

Viðurkenndi að ágreiningurinn væri stór Hann viðurkenndi að ágreiningurinn væri stór á milli beggja þjóða en hvatti stjórnvöld beggja til að halda áfram viðræðunum og sagði: „Ég held að við getum leyst úr þessum vandamálum og tryggt að við notum þau ekki sem afsökun til að gera ekkert.“ Barack Obama á fundi í Ísrael í gær. AFP Abbas sagði að Palestínumenn ætluðust til þess að Ísraelsmenn hættu að reisa landnemabyggðir ef þeir vildu taka þátt í þessum viðræðum.

Um leið og Abbas þakkaði bandarískum stjórnvöldum fyrir stuðninginn við palestínsk stjórnvöld sagði hann að friður við Ísrael ætti ekki að nást gegnum ofbeldi, hervald, landnemabyggðir, handtökur og afneitun á rétti pólitískra flóttamanna.

Um 150 mótmælendum var haldið frá forseta Palestínu með lögregluvaldi. Tveimur loftflaugum skotið yfir til Ísrael í morgun Í morgun sögðu yfirvöld í Ísrael að tveimur loftflaugum hefði verið skotið frá Gasa yfir í suðurhluta Ísrael en að það væru þó engar vísbendingar um mannfall.

Þá munu tvær aðrar loftflaugar sem skotið var frá Gasa hafa lent innan þess svæðis. Abbas fordæmdi ofbeldi gegn óbreyttum borgurum, af allri sort og þar á meðal því að skjóta loftflaugum.

Í gær lýsti Obama yfir stuðningi við Ísrael á fundi sem hann átti með Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra, í Jerúsalem.

Leiðtogarnir báðir lýsti yfir vilja til að leysa málefni svæðisins í tvíhliða viðræðum. Lausnin yrði að felast í tveimur sjálfstæðum ríkjum Þá sagði Obama að lausnin yrði að felast í því að ná fram öflugu ríki gyðinga þar sem öryggi væri tryggt sem og fullvalda ríki Palestínu.

f anNetanyahu sagði að ríkisstjórn hans myndi vinna að friði og tvíhliða lausn og hann vonaði að heimsókn Obama myndi hafa áhrif til góðs í viðræðunum við Palestínumenn. Frá þessu er greint á fréttavef BBC.//////////////////////þetta er að verða sagan endalausa og mjög svo ótrúverð!!!maður er hættur að trúa þessu ein og segir að þjóna mörgum herrum hvað þá tveim þarna!!!en Gyðingar í Bandaríkjunum eru margir og hafa þvi miður oft ráðið um of að manni finnst og það segir sagan okkur alveg hlutlaust!!!en þess ríkisstjórn er saman sett öðruvísi en verið hefur nú eru þeir strangtrúuðu burt en komnir í staðinn Landtökumenn og flokkur sem við byggja á hermundum svæðum,og það mun allt loga með þá ákvörðun!!þetta með að stofna sjálfstætt ríki Palestínu er eiginlega að verða þvæla,eins og sameiniðuþjóðirnar haga sér að hafa þessi stóru ríki með neitunarvald!!!með því verður ekkert af því,en Bandaríkjamenn eru samt bak við tjöldin,að skoða að leifa Ísrael að ráðast inn í Íran og það versnar alltaf þetta samband þarna,og svo komið nýtt vandamál,það er Norður Kórea sem segir upp öllum samningum við Suður Kóreu og jafnframt segjast geta skotið eldflaugum á Borgir í USA og eitt þeim með kjarnorku!!!þetta er þeirra eina von um að geta brauðfætt sitt fólk sem sveltur orðið,svo er búið að loka á þá!! en þarna treysta menn í Bandaríkjunum á Ísrael að nota þá með sitt frábæra herteymi ,og mjög færan her,en vera svo á bakvakt!!!en það eru fleiri ríki þarna sem eru stórveldi og eiga nóg vopn Rússar og Kínverjar,engin hótar þeim að sinni,og það ber að hafa þá í ráðum!!!en við bíðum betri frétta!!!!//Halli gamli


mbl.is Styður fullvalda ríki Palestínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2013 verður þjóðinni nokkuð þungt//það er von ekkert gert til aðkoma þesu í lag!!!


Árið 2014 er þó gert ráð fyrir að landið fari heldur að...2013 verður þjóðinni nokkuð þungt Innlent | mbl.is | 20.3.2013 | 15:10 Í endurskoðaðri hagspá 2013-2015 hagdeildar ASÍ má sjá að árið 2013 verður þjóðinni nokkuð þungt. Efnahagsbatinn er hægur, hagvöxtur verður aðeins 1,9%, atvinnuleysi enn mikið, gengi krónunnar helst veikt og verðbólga há. Árið 2014 er þó gert ráð fyrir að landið fari heldur að rísa. og enn frekar árið 2015.

Spáin byggir á sömu forsendum og spá hagdeildar frá því í október sl. fyrir utan að nú er gert ráð fyrir að framkvæmdir við byggingu kísilvers á Bakka hefjist á næsta ári. Áfram er gert ráð fyrir að framkvæmdir við álverið í Helguvík ásamt tengdum orkuframkvæmdum fari á fullt skrið á árinu, ráðist verði í endurbætur á álverinu á Grundartanga og byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði.

Auk þess er gert ráð fyrir byggingu nýs spítala og framkvæmdum við Vaðlaheiðargöng. Nokkur seinkun hefur orðið á framkvæmdum við álverið í Straumsvík en áfram er gert ráð fyrir að framleiðsla hefjist í endurbættri verksmiðju á undir lok næsta ári.

Spáin er háð töluverði óvissu um þróun efnahagsmála, bæði hérlendis og á alþjóðavísu.

Gangi forsendur um fjárfestingar ekki eftir mun hagvöxtur verða umtalsvert minni en hér er gert ráð fyrir.

Hagur heimilanna vænkast Kaupmáttur heimilanna hefur vaxið undanfarin ár og stutt við hóflegan vöxt einkaneyslunnar.

Þrátt fyrir batnandi stöðu á vinnumarkaði, lengri vinnutíma og launahækkanir mun kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna dragast saman á þessu ári og því næsta.

Skýringin er að sértækum aðgerðum til stuðnings skuldugum heimilum lýkur að mestu á árinu auk þess sem mikil verðbólga rýrir kaupmátt ráðstöfunartekna. Þetta endurspeglast í hóflegum vexti einkaneyslunnar allan spátímann.

Hagdeild spáir því að einkaneysla aukist um 2% í ár, 1,4% á næsta ári og 2,6% árið 2015. Endurskoðuð hagspá ASÍ//////////////////////segjum bara eins og er að það hefur ekkert verið gert,og þó nýjir taki við tekur tíma að vinda ofan af þessu ógerða  og koma hlutunum á skrið en við bara vonum ,það besta og það verði farið að virka vel 2014 allavega////Halli gamli


mbl.is 2013 verður þjóðinni nokkuð þungt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gegn fátækt /Vel mælt Bjarni Harðarson vinur minn,þetta er einmitt málið!!!

Gegn fátæBjarni Harðarsonkt Innlent | Morgunblaðið - greinar | 21.3.2013 | 9:44 „Nú á lönguföstu hefur farið fram mjög virk og mikil umræða um stöðu heimilanna í landinu og er það vel. Sitjandi ríkisstjórn hefur þrátt fyrir mörg góð verk brugðist í því verki að endurreisa fjárhag og eignastöðu heimilanna“ segir Bjarni Harðarson bóksali í grein í Morgunblaðinu í dag.

Segir hann endurreisnarverkefni næsta kjörtímabils eru fjölmörg. Þá segir Bjarni m.a. í grein sinni: „Í framhaldi af aðgerðum í þágu þessa hóps þarf að losa um bönd verðtryggingar, tryggja stöðugleika og létta á landlægu vaxtaokri.

Það var miður að ekki var notað tækifærið við gjaldþrot banka og bankakerfið dregið saman í eðlilega stærð miðað við fólksfjölda en hátt verðlag á vöru og þjónustu liggur öðru fremur í offjárfestingu í þjónustu- og verslunargreinum.“

„Skömm okkar er mikil að á sama tíma og við heyrum af stórfelldum kjarabótum hálaunaaðals og sérgæðinga sitja hinir lægstu enn eftir og við tökum því sem gefnu að hér sé stór hópur réttlítilla bónbjargarmanna.“/////////////Þetta er vel sagt Bjarni!!! og ekki um annað en að útríma henni hún er hlutur sem maður skilur og vel það sem höfum lifað tímana tvenna,Við skulum öll styðja þessa baráttu þína,ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Gegn fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tillaga um frestun þingfunda/Það væri viti meir að gjöra ,klára það sem er samkomulag um: ekkert annað!!!!

TillagaÓlöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. um frestun þingfunda Innlent | mbl.is | 21.3.2013 | 10:57 Þingfundur er hafinn á Alþingi en 50 mál eru ádagskrá fundarins. Þar á meðal frumvarp formanna stjórnarflokkanna og Bjartrar framtíðar um afmarkaðar breytingar á stjórnarskránni en þrátt fyrir stíf fundarhöld í gær náðist ekki samkomulag á milli stjórnmálaflokkanna um afgreiðslu þess né þinglok

Þar á meðal frumvarp formanna stjórnarflokkanna og Bjartrar framtíðar um afmarkaðar breytingar á stjórnarskránni en þrátt fyrir stíf fundarhöld í gær náðist ekki samkomulag á milli stjórnmálaflokkanna um afgreiðslu þess né frestun þingfunda fram yfir kosningar.

Tilkynnt var í upphafi þingfundar að Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefði lagt fram þingsályktunartillögu um frestun þingfunda en í tillögunni segir: „Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 21. mars 2013 eða síðar, ef nauðsyn krefur.

“ Stjórnarskrármálið er númer 13 á dagskránni en fyrstu tólf málin eru atkvæðagreiðslur sem samkomulag er um að afgreiða.

Þar á meðal breytingar á hegningalögum vegna kynferðisbrota gegn börnum innan fjölskyldna, frumvarp um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar og lokafjárlög 2011.//////////////Allir sem vilja sjá þetta hljóta að sjá að þetta gangi ekki lengur,hitt er bara þrái!!Jafnvel þá svo þessi ólög um að Alþingi getir starfað allt að kosningum eru það bara að taka fram ef einhver vá er fyrir hendi annars ekki als ekki ,það eru bara 38 dagar að kosningum og mönnum veitir ekkert af því að kosningum að koma sínum málum fram!!!þetta er skipaleikur algjör að haga sér svona/Halli gamli


mbl.is Tillaga um frestun þingfunda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. mars 2013

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1047931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband