Hefur áhrif á ýmsa efnahagslega þætti/bæði Steingrímur og Jóhanna reið !!!!!!

Hefur áhrif á ýmsa efnahagslega þætti
Innlent | mbl.is | 5.1.2010 | 12:59

Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að ríkisstjórnin verði að bregðast skjótt við ákvörðun forseta Íslands við því að skrifa ekki undir Icesave-lögin. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir ljóst að þessi ákvörðun forsetans muni hafa áhrif á ýmsa þætti í efnahagslífi Íslendinga. Boðað hefur verið til fundar í þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna klukkan 15.

Jóhanna sagði á fundi með blaðamönnum að afloknum ríkisstjórnarfundi að hún vildi ekkert segja um það að svo stöddu hvort ríkisstjórnarsamstarfið sé í  uppnámi.

Steingrímur segir að með því að senda strax út tilkynningu um að Ísland muni eftir sem áður standa við sínar skuldbindingar þá hafi vonandi verið hægt að róa ástandið aðeins niður. Mikilvægt sé að viðbrögð stjórnvalda séu fumlaus og traust og ekki til þess að valda óvissu.

Boðað hefur verið til fundar í þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna klukkan 15. Segir Jóhanna mikilvægt að þar fái flokkarnir ráðrúm til þess að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu.

Aðspurður um hvort ríkisstjórnin verði ekki að ákveða með framhaldið á allra næstu klukkustundum þar sem forseti Íslands sé á leið úr landi sagði Steingrímur að ríkisstjórnin muni ekki láta ferðalög forsetans hafa áhrif á störf sín.////þau virtust bæi reið á fundinum og þessi ákvörðun Forseta hafi komið mikið á óvart!!! en svona er þetta og Jóhanna mærði allt sem  gert hefur verið og Steingrímur tók undir það,en ekkert annað var sagt marktækt nema að allt væri i uppnámi en fundað yrði í flokkunum kl 15,00/Halli gamli 


mbl.is Hefur áhrif á ýmsa efnahagslega þætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband