1.4.2010 | 12:19
Gosslóðirnar opnaðar aftur/ágæt ákvörðun ef varlega er farið!!!!!!
Innlent | mbl.is | 1.4.2010 | 11:48
Ákveðið hefur verið að opna aftur fyrir umferð inn í Þórsmörk, en fólk er sérstaklega beðið um að hafa varann á sér þegar farið er yfir Hvanná þar sem aðstæður gætu breyst með skömmum fyrirvara, en hraun rennur nú efst í Hvannárgili.
Þetta er niðurstaða fundar Almannavarnanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu ásamt almannavarnadeild ríkislögreglustjórans í samráði við vísindamenn til að meta nýja stöðu í eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi eftir að ný gossprunga opnaðist þar í gær.
Göngufólki frá Þórsmörk er heimilt að fara að Morinsheiði en bannað er að fara um Heljarkamb og upp á Bröttufönn. Þá er gönguleiðin frá Skógum upp á Fimmvörðuháls opin á nýjan leik en umferð vélknúinna farartækja upp Skógaheiði er aðeins ætluð lögreglu og björgunarsveitum
Leiðin upp á Mýrdalsjökul frá Sólheimajökli er opin en hún er aðeins fær mikið breyttum jeppum. Sprungur eru í grennd við akstursleiðina upp jökulinn og þurfa ökumenn að vera meðvitaðir um það. Öll almenn umferð gangandi og vélknúinna faratækja er bönnuð í 1 km radíus frá eldstöðinni og nær það einnig til leiðarinnar að Hrunagili (við hraunfossinn) frá Fimmvörðuhálsi. Hættusvæði er áfram skilgreint í 5 km radíus frá eldstöðinni og þeir sem fara þar um gera það á eigin ábyrgð.
Almannavarnir minna á að mikilvægt sé að fólk sem er á ferð um svæðið virði lokanir og fari eftir fyrirmælum og leiðbeiningum frá lögreglu og björgunarsveitarfólki sem er á staðnum. Gripið er til þessa ráðstafana til þess að sem minnst hætta sé á að lífi og heilsu fólks sé ógnað en um leið að gefa áhugasömum kost á því að sjá eldstöðina.///auðvitað er þetta mikilvægt að fólk sem það getur sjái þetta með eigin augum og allt það!! en það ber að fara varlega mjög og fólk búið sig vel,en svona eins og annað er þetta kjörið fyrir Ríkistjórnina að fólk hafi áhuga á þessu en ekki það sem hún ekki gerir!!!!! og vill ekki gera,skapa nóga atvinnu og koma okkur á rétt skrið ,semsagt halda okkur niðri eins og hægt er og skattleggja okkur i bak og fyrir/Halli gamli
Gosslóðirnar opnaðar aftur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Halli minn, satt og rétt hjá þér. Óttablandin virðing fyrir ofuröflunum nauðsynleg. Gleðilega páska. M.b.kv. Anna
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.4.2010 kl. 12:57
Já það er slæmt með stjórnina en fínt að mega sjá gosið.
Sigurður Haraldsson, 1.4.2010 kl. 12:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.