8.4.2010 | 16:48
Tilgangurinn að sýna fram á hættuna/mjög svo gott mál,og þarft!!!!!
Innlent | mbl.is | 8.4.2010 | 16:18
Arctic Trucks segir í yfirlýsingu, að leiðangur breska bílasjónvarpsþáttarins Top Gear á gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi, hafi verið afar vel undirbúinn og fyllsta öryggis hafi verið gætt. Markmið leiðangursins hafi meðal annars verið að umgengni við gosstöðvarnar sé hættuleg og lífs
Yfirlýsingin er eftirfarandi:
Í tilefni fréttaflutnings af ferð starfsmanna bresku sjónvarpsstöðvarinnar BBC og aðstandenda sjónvarpsþáttarins Top Gear, sem sýndur er á BBC, við nýja hraunið á Fimmvörðuháls í gær, miðvikudag, viljum við hjá Arctic Trucks, sem sáum um skipulag ferðarinnar, taka eftirfarandi fram:
Arctic Trucks hefur átt samstarf við þáttastjórnendur Top Gear og starfsfólk BBC um nokkurra ára skeið. Það samstarf hefur m.a falist í kynningu á íslensku hugviti, sem felst í breytingum á jeppum, en einnig og ekki síður í aðstoð starfsmanna fyrirtækisins við þáttastjórnendur Top Gear vegna þáttagerðar á erfiðum og framandi norðlægum slóðum, svo sem á segulpólnum og víðar.
Leiðangurinn á Fimmvörðuháls í vikunni vegna upptöku á sjónvarpsefni fyrir næstu þáttaröð Top Gear var mjög vel undirbúinn. Þar var fyllsta öryggis gætt, eins og raunin er um alla leiðangra á vegum BBC.
Við undirbúning og skipulag ferðarinnar óskaði Arctic Trucks eftir nærveru Hjálparsveitar skáta í Kópavogi, enda hefur Arctic Trucks í áraraðir átt mjög gott samstarfs við hjálparsveitir landsins. Útvegaði sveitin m.a. fjarskipta- og ljósabúnað auk sprunguöryggisbúnaðar. Á leiðinni að eldstöðvunum lenti hópurinn í mjög slæmu veðri og erfiðri færð. Kom nærvera hjálparsveitarinnar sér einkar vel og lýsti starfsfólk BBC ánægju sinni með þau faglegu og fumlausu vinnubrögð sem hjálparsveitin viðhafði.
Varðandi fréttaflutning og umræðu um akstur á hrauninu er rétt að taka fram að eingöngu var framdekkjum á einum bíl ekið upp á heitan hraunjaðarinn. Tilgangurinn var að láta kvikna í dekki fyrir myndavélarnar og þegar því markmiði hafði verið náð var bílnum þegar í stað bakkað niður af hraunjaðrinum aftur. Sú staðreynd að það kviknaði fljótlega í dekkinu við snertingu við hraunjaðarinn sannar að umgengni við gosstöðvarnar er hættuleg og lífshættuleg á hrauninu sjálfu. Það var m.a. markmið þáttastjórnenda Top Gear með myndatökunum að sýna fram á það. 

Top Gear er með allra vinsælasta sjónvarpsefni í heimi. Það myndefni sem tekið var upp á Fimmvörðuhálsi mun verða mikil landkynning fyrir Ísland og vekja athygli um allan heim. Við upptökurnar upplifði tökuliðið m.a. bæði það versta og það besta í íslensku veðurfari, stórbrotna náttúru og vægðarlaus náttúruöflin á gosstöðvunum. hættuleg á hrauninu sjálfu.////við eigum ekki að vara að agnúast út i þetta ,ein besta landkynning sem við getum fengið,enda munum við fá hana beint i æð,þetta er mjög svo gott að kynna landið okkar svona og segja rétt og satt frá/Halli gamli
Tilgangurinn að sýna fram á hættuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svo er þetta líka bara flottur töffaraskapur! En auðvitað aðeins í lagi svo lengi sem fyllsta öryggis er gætt.
Guðmundur Ásgeirsson, 8.4.2010 kl. 17:51
Ef ég keyri fullur, til að sýna fram á hvað það er hættulegt, er það þá í lagi ef ég lofa að fara rosa varlega (og gæti öryggis ólíkt öðrum sem keyra líka fullir)? Mér finnst þetta fíflalegt ábyrgðarleysi!
Haukur (IP-tala skráð) 8.4.2010 kl. 18:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.