Illugi fer í leyfi frá þingstörfum/ hárrétt ákvörðun !!!!

Illugi fer í leyfi frá þingstörfum
Innlent | mbl.is | 16.4.2010 | 12:38

Illugi Gunnarsson Illugi Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að taka leyfi frá þingstörfum og mun senda forseta Alþingis bréf þess efnis fyrir upphaf þingfundar á mánudaginn kemur. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Illuga en ástæðan er stjórnarseta hans í peningamarkaðssjóðum sem nú eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.

Yfirlýsing Illuga

„Ég hef ákveðið að taka leyfi frá þingstörfum og mun ég senda forseta Alþingis bréf þess efnis fyrir upphaf þingfundar á mánudaginn kemur.
 
Sú er ástæða ákvörðunar minnar, að rannsóknarnefnd Alþingis hefur vísað málum peningamarkaðssjóða til athugunar hjá sérstökum saksóknara.
 
Ég hef fengið hóp sérfræðinga til þess að lesa yfir þann kafla skýrslunnar sem snýr að störfum þeirrar stjórnar sem ég átti sæti í. Niðurstaða þeirrar skoðunar er sú að í skýrslunni sé ekki að finna dæmi um brot sem eru á ábyrgð stjórnarinnar, en benda megi á atriði sem betur hefðu mátt fara við rekstur sjóðanna, eins og áður hefur komið fram í opinberri umræðu.
 
Mat mitt er að sú óvissa sem myndaðist við þá ákvörðun nefndarinnar að vísa með almennum hætti málum peningamarkaðssjóðanna allra til sérstaks saksóknara, sé til þess fallin að draga úr tiltrú almennings á störfum mínum á Alþingi. Jafnframt kann þessi óvissa að skaða Sjálfstæðisflokkinn í þeirri miklu vinnu sem framundan er við endurreisn íslensks efnahagslífs og samfélags. Við það get ég ekki unað.
 
Ég treysti því að embætti sérstaks saksóknara ljúki sem fyrst skoðun sinni og að þessari óvissu linni. Ég er ekki í vafa um að niðurstaða þeirrar skoðunar verði jákvæð og gangi það eftir mun ég í kjölfarið taka aftur sæti á Alþingi."///tel þetta hárrétta ákvörðun Illuga og þurfa kannski fleiri að skoða sýn mál,en þessar ádróttanir hafa verið i gangi frá hruninu að hann hafa gert eitthvað sem ekki er i lagi við störf við sjóð 9 hjá Glitni ,það hefur ekki verið legið á því að hann hafi gert eitthvað rangt???? en hann segir ekki og það mun koma vonandi sem fyrt i ljós/Halli gamli


mbl.is Illugi fer í leyfi frá þingstörfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband