„Ólýsanleg vonbrigði“/forgangröðun arfavitlaus !!!!!

„Ólýsanleg vonbrigði“
Innlent | Bæjarins besta | 22.4.2010 | 8:59

Séð inn Dýrafjörð. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir sveitarstjórnarmenn á Vestfjörðum ekki hafa átt von á því að Dýrafjarðargöng yrðu slegin út af borðinu eins og fram kemur í tillögu að fjögurra ára samgönguáætlun, sem lögð var fram á Alþingi á þriðjudag.
Ég á von á því að við eigum eftir að óska eftir skýringum. Auðvitað vitum við að það er lítið til skiptanna en maður átti ekki von á að þetta yrði alveg slegið af.“ Halldór segist ekki hafa vitað af því að þetta yrði niðurstaðan fyrr en tillagan var lögð fram á Alþingi í gær. Hann segist vart eiga til orð til að lýsa vonbrigðum sínum.

„Þetta er rúmlega 50 ára gamall vegur sem tengir saman byggðarlög á Vestfjörðum. Það er náttúrlega með ólíkindum að við skulum enn vera í þeirri stöðu að geta ekki keyrt á milli byggðarlaga og mikil vonbrigði að vita að við þurfum að bíða þetta mikið lengur.“

Það eina sem minnst er á varðandi Dýrafjarðargöng í tillögu að samgönguáætlun til ársins 2012 er að miðað verði við að áfram verði unnið að undirbúningi við Vaðlaheiðargöng, Dýrafjarðargöng og Norðfjarðargöng. Handbært fé til þessa liðar verður 12.091 milljónir króna árið 2010, 6.925 milljónir króna árið 2011 og 6.418 milljónir króna árið 2012.

„Þegar litið er til einstakra fjárveitinga hins vegar er ekki gert ráð fyrir fjármagni til ganganna og þær þúsund milljónir króna sem eyrnamerktar voru til jarðganga milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar í núgildandi vegáætlun horfnar og ekki nýttar til annarra framkvæmda á Vestfjörðum,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, talsmaður baráttuhópsins Áfram vestur sem berst fyrir bættum samgöngum frá Bjarkalundi að Þingeyri.///þarna synir samgöngumálaráherra arfavitlausa forgangsröðun og það er nátturrlega póltík i þessu að Norðurlandi skuli bara ganga fyrir,þetta er hans kjördæmi,þetta sja´allir sem vilja ,hver að að tala um vinavæðingu og hætta henni er það ekki Jóhanna og Steingrímur og reyndar öll ríkisstjórnin/Halli gamli


mbl.is „Ólýsanleg vonbrigði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband