Askan getur enn truflað flug/Grunaði ekki gvend?????

Askan getur enn truflað flug
Innlent | mbl.is | 1.5.2010 | 17:01

Enn getur aska frá Eyjafjallajökli truflað flug. Mælingar með flugvél þýsku loftmælingarmiðstöðvarinnar benda til þess að gosmökkurinn frá Eyjafjallajökli sé svo þéttur að flugvellir á suðvesturlandi myndu lokast ef vindur stæði þangað.

Vélin var við mælingar í morgun og segir Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, að ágæt gögn hafi fengist.

Vélinni var flogið undan vindi um 200 kílómetra frá eldstöðinni. Haraldur segir að í þeirri fjarlægð hafi mökkurinn verið býsna þéttur og ófær flugvélum. „Þar var þéttleikinn miklu meiri en hann var nokkru sinni yfir Evrópu,“ segir Haraldur. Það sýni að töluvert mikil gjóska komi enn upp úr eldstöðinni.

„Af því drögum við meðal annars þá ályktun að það er hugsanlegt að við núverandi ákefð í gosinu þurfi að loka aftur fyrir flug á suðvesturlandi, ef vindur verður suðaustanstæður,“ segir Haraldur.

Spurður um hugsanleg áhrif á flug í Evrópu segir Haraldur ólíklegt að það öskumagn sem nú komi frá Eyjafjallajökli dugi til að valda verulegri röskun í Evrópu.

Rannsóknarvélin gerir síðustu mælingarnar á morgun./////þetta er svo að við getum búist við að flugvellir okkar lokist aftur ef vindur standur að þeim,þetta grunaði Gvend og þetta er bara svo en þá eru varaflugvellir sem redda okkur nú ef það gerist/Halli gamli 


mbl.is Askan getur enn truflað flug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband