Aukafundur í ríkisstjórn//Forsætisráðherra Jóhanna lætur sig ekki/stjórnarslit?????

Aukafundur í ríkisstjórn
Innlent | mbl | 9.5.2010 | 13:03

Stjórnarráð Íslands. Aukafundur í ríkisstjórn er ráðgerður í dag, meðal annars til að ræða frumvarp um breytingar á stjórnarráðinu. Þingmaður VG segir að breytingarnar líti út eins og koma eigi Jóni Bjarnasyni út úr ríkisstjórn. Jón Bjarnason segir aðspurður að tillögurnar séu alfarið mál Jóhönnu Sigurðardóttur.

Á meðal breytinga sem ráðgerðar eru í frumvarpi Jóhönnu er að láta sjávarútvegsráðuneyti renna inn í nýtt atvinnuvegaráðuneyti og taka frá því sum veigamestu hlutverk þess um leið og færa til umhverfis- og auðlindaráðuneytis eða á nýjan samráðsvettvang ráðuneytanna tveggja, svokallað Nýtingar- og verndarráð sjávarauðlindarinnar, sem mun taka ákvarðanir um nýtingu fiskistofnanna.

Þetta kemur fram í minnisblaði forsætisráðherra sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Svo virðist því sem lítið verði eftir af sjávarútvegsráðuneyti Jóns Bjarnasonar, nái breytingarnar fram að ganga.

Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG, sagði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag að þetta liti þannig út að Samfylkingin vildi losna við eina ráðherrann sem væri harður á móti aðild að Evrópusambandinu. Sem kunnugt er eru sjávarútvegsmál langmikilvægasta málefnið í aðildarviðræðum Íslands við ESB og þykja líklegust til að verða ásteytingarsteinn.

Ekki hefur náðst í Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í morgun, en Jón Bjarnason er á ferð um öskufallssvæðin á Suðurlandi. Ekki er því alveg víst hvort hann mætir á ríkissstjórnarfundinn eða ekki. Jón vildi aðspurður ekkert tala um þessi mál en sagði mikilvægt að þjóðin styddi vel við bakið á bændum undir Eyjafjöllum og í héruðum þar fyrir austan.

Jón vísaði alfarið á Jóhönnu þegar spurt var út í breytingarnar sem á að gera á ráðuneyti hans og ekki var að heyra að tillögurnar hefðu verið unnar í miklu samráði við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið sjálft. „Þú verður að spyrja hana. Þetta er hennar mál," sagði Jón. Hann vildi ekkert tjá sig /////það þarf 2 til þegar um samsteypustjórn er að ræða ,er það ekki,Jóhanna virðist ekkert ger sér grein fyrir þessu bara veður áfram og það er malið,þetta verður ekki gert nema allir samþykki annars bara stjórnarslit,eða hvað er i stöðunni,er Steingrímur að missa allt þarna ræður hans flokkur engu ,eða hvað,þetta er alveg rétta hjá 'Ásmundi þetta alls ekki að gera nu i þessu þrengingum sem yfir okkur ganga,þetta er gjörræði Jóhönnu og ekkert annað og gengur ekki upp /Halli gamli


mbl.is Aukafundur í ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei Halli minn, það verða ekki stjórnarslit.  Steingrími og öðrum ráðherrum VG þykir það vænt um stólana sína að þeir eru alveg til í að láta "TRAÐKA" meira á sér.

Jóhann Elíasson, 9.5.2010 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband