Steinþór bankastjóri Landsbankans/vonum að þetta sé vel valið !!!!!

Steinþór bankastjóri Landsbankans
Innlent | mbl.is | 20.5.2010 | 16:49

Steinþór Pálsson Bankaráð Landsbankans hefur ráðið Steinþór Pálsson til að gegna störfum bankastjóra og tekur hann við af Ásmundi Stefánssyni. Steinþór skrifaði undir ráðningarsamning við Gunnar Helga Hálfdanarson, formann bankaráðs bankans í dag. Hann mun hefja störf í bankanum 1. júní. 42 umsóknir bárust þegar starf bankastjóra var auglýst, segir í tilkynningu frá Landsbankanum.

„Steinþór er reyndur stjórnandi, sem hefur þá kosti sem bankaráðið hefur leitað að.  Stefnan var að ráða bankastjóra sem væri leiðtogi, öflugur rekstrarmaður með bankareynslu og gæti unnið vel með viðskiptavinum, bankaráði og starfsmönnum bankans. Bankaráðið telur gríðarlega mikilvægt að fyrir Landsbankanum fari maður sem getur leitt hann áfram af þeim krafti og því þori sem þarf til að koma bankanum þangað sem hann á heima, í efsta sæti úrvalsdeildarinnar,“ segir Gunnar Helgi Hálfdanarson, formaður bankaráðs Landsbankans, í tilkynningu.

Steinþór segist í tilkynningunni gera sér grein fyrir að illa ári í íslensku atvinnulífi og að starfsemi Landsbankans skipti miklu um hvernig endurreisn þess gengur. „Ég tel hins vegar að bankinn sé vel mannaður og að staða hans sé þannig að hann geti axlað þá ábyrgð sem honum er falin."

Steinþór er fimmtugura að aldri, kvæntur Áslaugu Guðjónsdóttur tölvunarfræðingi og eiga þau tvær dætur.  Hann lauk prófi  í viðskiptafræði frá HÍ 1985 og MBA name frá Edinborgarháskóla 1995. Hann starfaði m.a. sem framkvæmdastjóri lánasviðs Verzlunarbanka Íslands og síðan hjá Íslandsbanka sem forstöðumaður lánadeildar, fjárfestingarlána útibúaþjónustu, áhættustýringar og fyrirtækjaþjónustu. Árin 2001 og 2002  var hann    fjármálastjóri- og rekstrarstjóri hjá Urði, Verðandi og Skuld en hefur síðan starfað hjá Actavis, þar á meðal sem framkvæmdastjóri á Möltu, í Bandaríkjunum og    nú tæp 2 síðustu árin framkvæmdastjóri Actavis samstæðunnar á Íslandi á sviði stefnumótunar./////þetta hefði átt að vera búið að gera mikið fyrr ,"en betra seint en aldrei" segir maltækið,Ásmundur er búin að  sitja þarna alltof lengi og það ekki afturtekið,en við verðum að vona vegna okkar banka sem að ver i dreifðri eignaraðild að okkur er sagt,það er svo mikið atriði að þarna sitji maður sem fólkið getur treyst ,það hefur allt að segja og það er svo með þennan mann á meðan ekkert annað kemur upp/Halli gamli P/S af hverju eru ekki birt hverjir sóttum um/sami


mbl.is Steinþór bankastjóri Landsbankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband