Þarf kjark til að stoppa í gatið///segir vinstri hönd S.J.S. það er færri á moti sköttum á lifeyrir en sköttum á fyrirtækin,og enga vinnu að hafa!!!!

Þarf kjark til að stoppa í gatið
Innlent | mbl.is | 24.5.2010 | 17:45

Íslenskir fánar við Alþingishúsið „Verkefnið er að reyna að stoppa í það gat sem hrunið skildi eftir sig og fólk verður bara að hafa kjark til að takast á við það verk,“ segir Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, um gagnrýni samflokkskonu sinnar, Lilju Mósesdóttur. Hann segir ágreininginn ekki endurspegla klofning innan VG. um gagnrýni samflokkskonu sinnar, Lilju Mósesdóttur.

Eins og fram hefur komið sagði Lilja sig úr ríkisfjármálahópi. Í frétt á vef mbl.is var haft eftir Lilju að skortur væri á því að leitað væri fleiri leiða en niðurskurðar, því hann muni bara herða kreppuna.

Nauðsynlegt að taka ákvarðanir, þótt þær reynist erfiðar

„Okkur var falið að hefja undirbúning fjárlaga næsta árs, með áherslu á niðurskurð í útgjöldum og samkvæmt þeirri efnahagsáætlun sem ríkisstjórnin lagði fram síðasta sumar, m.a. í samstarfi við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn,“ segir Björn Valur um ríkisfjármálahópinn. „Verkefnið er ekki nýtt heldur hefur lengi legið fyrir að í þessari áætlun felst ákveðið hlutfall milli þess að annars vegar auka tekjur ríkisins og hins vegar minnka útgjöld þess.“

Björn Valur vísar þeim ummælum Lilju á bug að hugmyndir sem Björn Valur kynnti hafi ekki verið ræddar innan stjórnarflokkanna. „Þetta hefur verið margrætt í þingflokki VG og eflaust líka í þingflokki Samfylkingar, og er í anda þess sem aðrir stjórnmálaflokkar hafa lagt fram á þingi. Einnig þetta hefur verið rætt á þinginu í um það bil ár.

Nú þarf bara að fara að taka ákvarðanir, þótt það muni reynast einhverjum erfitt.“

Gríðarleg andstaða við skattlagningu séreignasparnaðar

Um þá tillögu Lilju að flýta eigi skattlagningu séreignasparnaðar, eins og Sjálfstæðismenn hafa lagt til, segir Björn Valur: „Sjálfstæðismenn og Lilja Mósesdóttir eru þeir á landinu sem eru fylgjandi því að skattleggja lífeyrissparnað með þeim hætti sem kemur fram í tillögum Sjálfstæðisflokksins. Gríðarleg andstaða er við þetta hjá öllum þeim sem að málinu koma, svo sem hjá Samtökum atvinnulífsins, stéttarfélögunum og sveitarfélögunum.“

Aðspurður hvort ágreiningur þeirra Lilju endurspegli klofning innan Vinstri grænna, segir Björn Valur: „Það er langur vegur frá því. Ég veit ekki betur en að þingflokkur vinstri grænna sé einhuga um að afgreiða þetta verkefni eins og fyrir hefur verið lagt.“///////það þarf kjark og það ekki svo litin til að rusta fyrirtækjum eigna,þetta er ekki það sem þarf,að taka skatt að lífeyrissparnaði fyrirfram er mikið bera að öllu leiti og margrafat minni maotstað við það en atvinnuleisið takið aftur !!!þetta er bara  Vinstri hönd S.J.S. sem talar og gasprara og gasprar of er að eyðileggja flokkin V.G./Halli gamli


mbl.is Þarf kjark til að stoppa í gatið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband