18 ára fékk 100% lán til að kaupa rándýran bíl/þetta er ekkert grín þetta er það ????

 ára fékk 100% lán til að kaupa rándýran bíl
Innlent | mbl.is | 1.6.2010 | 23:33

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra. Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, sagði þegar hann mælti fyrir frumvarpi um skilmálabreytingar gengistryggðra bílalána, að fyrir hrun hefðu samningar við einstaklinga um einkaleigu eða kaupleigu hefðu oft verið gerðir án þess að eignaleigufyrirtækin könnuðu gjaldfærni þeirra sem lánin tóku.
Á borði mínu er eitt hörmulegt mál af þessum toga af 18 ára pilti sem tók 100%  lán hjá eignaleigufyrirtæki til að kaupa dýra BMW-bifreið.  Drengurinn hafði aldrei tekjur til að standa undir afborgunum af láninu. Það má auðvitað spyrja sig hvað hann var að hugsa og það má gera ríkar kröfur til hans að hafa tekist á hendur slíkar óraunhæfar skuldbindingar. En það er fjarri mínum skilningi á réttlæti, að sá sem veitti lánið beri enga ábyrgð. Og það er ekki í samræmi við minn réttlætisskilning, að fyrirtæki sem tók þá ákvörðun að lána 18 ára unglingi fyrir rándýrri bifreið án þess að kanna hvort hann hefði einu sinni vinnu, geti átt siðferðilega eða lagalega kröfu á aflahæfi hins unga manns án nokkurra takmarkana," sagði Árni Páll. 

Hann sagði að markmið frumvarpsins væri ekki að létta ábyrgð af þeim sem tóku lánin; þeir yrðu aldrei betur settir en  ef þeir hefðu tekið verðtryggt lán í upphafi í stað gengistryggðra lána „og það vitum við að eru engin kostakjör," sagði Árni Páll.///////ekki er maður á móti því að hjálpa þessu fólki sem gerði þetta alls ekki,en er þetta sem sýnist ?? þegar upp er staðið er þá ekki borgað svipað það er manni sagt!!! en númer eitt er að fella niður 20-30% af verðteygðum íbúðarlánum þar sem það er nauðsyn vegna þessa að fólk getur ekki staðið i skilum en það er ekki gert,en verður að gera því ekki græða bankarnir á að taka þessar íbúðir allar yfir og fa´ekkert uppi skuldir,það hlýtur að vera meir hvetjandi fyrir fólkið að gera staðið i skilum og bankana að fá sitt samt/Halli gamli


mbl.is 18 ára fékk 100% lán til að kaupa rándýran bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 2.6.2010 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband