Skuldavandi heimilanna best leystur með samstarfi flokka/gefur það ekki augaleið!!!!!

Skuldavandi heimilanna best leystur með samstarfi flokka
Innlent | mbl.is | 25.6.2010 | 16:56

Mynd 530186 Allt of margir Íslendingar eru þjakaðir af skuldum, fjárhagsáhyggjum og vantrú á framtíðina, segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins í ávarpi sínu til landsfundar flokksins sem stendur yfir í Laugardalshöllinni. Bjarni segir að skuldavandi heimilanna verði best leystur með þverpólitísku samstarfi og Sjálfstæðisflokkurinn hafi talað fyrir slíku samstarfi frá því að kosið var.
Vandamál fjölskyldna eru mikil og því miður hafa ríkisafskiptaflokkarnir aðeins sett fram flóknar og óraunhæfar lausnir sem einfaldlega virka ekki. Hversu góður sem ásetningurinn var er staðreyndin sú að úrræðin eru ekki að gagnast fólki. Í þeim er ekkert hald.

Norræna velferðarstjórnin, sem allir sjá að stendur ekki undir nafni, verður að átta sig á því að fólk er ekki tilbúið til að fara í langar biðraðir í héraðsdóm til að fá lausn sinna mála. Það verður ekki allt leyst með nýjum opinberum stofnunum og réttarfarsúrræðum," segir Bjarni.

Að sögn Bjarna kom Hæstiréttur til aðstoðar þegar ríkisstjórnin brást og fellir niður gengistryggingu lánasamninga. „Það stóð ekki á viðbrögðum ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðherra tók fram að réttindi lántakenda yrðu ekki skert frá því sem Hæstiréttur hafði ákveðið.

Að réttindi lántakenda yrðu ekki skert frá því sem Hæstiréttur hafði ákveðið. Þetta var afar mikilvæg yfirlýsing, því allir gerðu náttúrulega ráð fyrir því að ríkisstjórnin myndi halda áfram að vinna gegn hagsmunum heimilanna.

Skuldavandi heimilanna verður best leystur með þverpólitísku samstarfi og Sjálfstæðisflokkurinn hefur talað fyrir slíku samstarfi frá því að kosið var og stóð síðast í gær að úrbótum á lögum á þinginu. En það þarf skjótvirkari úrræði og tregða stjórnarinnar til að ræða almennari aðgerðir, t.d. svigrúm til höfuðstólsleiðréttingar, er óskiljanleg," sagði Bjarni í setningarávarpi sínu.

Bjarni kom inn á ábyrgð fjármálafyrirtækjanna í landinu. „Það er skilyrðislaus krafa að þeir sem véla um málefni fjölskyldnanna hafi í huga langtíma hagsmuni samfélagsins alls við þessar erfiðu aðstæður. Það sem fjármálastofnanirnar verða að skilja er að þeirra langtímahagsmunir fara saman við hagsmuni heimilanna."/////þetta er málið þessu verður að breyta ekkert getur tekið þessum vanda nema allir séu með og það hefur verið þema okkur flokks og einnig framsóknar,þetta verðu bara að ske það strax annars bara segir þessi stjórn af sér ,ekkert annað í stöðunni/Halli gamli


mbl.is Skuldavandi heimilanna best leystur með samstarfi flokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband