Stefnulaus stjórnvöld í áfengismálum///allt annað en boð og bönn þarna !!!!!

Stefnulaus stjórnvöld í áfengismálum
Innlent | Morgunblaðið | 12.7.2010 | 10:30

 Ríkisstjórnin hefur enn ekki mótað sér skýra stefnu í áfengismálum. Á meðan stefnuleysi ríkir gefst ekki tóm til að ráðast í heildarendurskoðun á áfengislöggjöfinni sem lykta á með frumvarpi til Alþingis. Á meðan verða áfengisauglýsingar í fjölmiðlum í mörgum tilvikum á gráu svæði, en sumum kolsvörtu og þar með ólöglegu.

Starfshópur fjármálaráðuneytis um heildarendurskoðun á áfengislöggjöfinni skilaði skýrslu snemma á árinu. Í henni kemur fram það sjónarmið hópsins, að brýnasta verkefni stjórnvalda í áfengismálum sé að móta heildstæða stefnu í áfengismálum með skýrum og raunhæfum markmiðum sem miða að því að draga úr skaðlegri neyslu áfengis.

Starfshópnum var gert að starfa áfram og til ráðgjafar við frumvarpsgerð en gert var ráð fyrir að frumvarp um ný áfengislög yrði lagt fram á Alþingi í haust. Guðmundur Jóhann Árnason, formaður starfshópsins, segir að það geti enn gengið eftir en frumvarpssmíðin strandi á stefnuleysi. „Það er í raun ekki hægt að setja upp frumvarp fyrr en áfengistefna stjórnvalda liggur fyrir,“ segir Guðmundur og bætir við að frumvarpið muni byggja á þeirri stefnu.

Erfiðlega hefur gengið að koma saman stefnumótandi samráðshóp fulltrúum heilbrigðisráðherra, fjármálaráðherra, dómsmálaráðherra, ÁTVR og Lýðheilsustöðvar. Vonir standa þó til að hópurinn komi saman í næsta mánuði. Takist það ætti vinnu hópsins að vera lokið jafnvel í byrjun september.

 

Rýmka löggjöf eða herða á?

Í umræddri skýrslu kemur meðal annars fram það álit að heillavænlegra sé að heimila auglýsingar á áfengi með miklum takmörkunum en að halda til streitu banni við áfengisauglýsingum, enda sé óraunhæft að koma í veg fyrir þær að öllu leyti. Leiðrétta þurfi kerfið til þess að lögunum sé framfylgt og þau séu í samræmi við setta stefnu stjórnvalda í áfengismálum.

 

Erfitt er að sjá hvernig að rýmka heimildir til áfengisauglýsinga geti rúmast innan stefnu Lýðheilsustöðvar í áfengismálum – eða Vinstri grænna. Minna má á frumvarp Ögmundar Jónassonar, þingmanns Vg, sem gengur út á að herða bann við áfengisauglýsingum, s.s. með því að taka fyrir auglýsingar á vörum með sömu merkjum eða einkennum áfengistegunda. Ögmundur talaði fyrir frumvarpinu í mars sl. og er það enn í meðförum allsherjarnefndar Alþingis.

Guðmundur Jóhann viðurkennir að verðandi áfengisstefna stjórnvalda geti komið til með að ganga gegn niðurstöðum starfshópsins. „Ég veit til að mynda,. að heilbrigðisráðherra hefur greint frá því að hann sé ekki fylgjandi þessu. Maður getur því gefið sér fyrirfram að þessi tillaga muni alla vega ekki fljúga inn í stefnuna.“ Svo því sé haldið til haga er Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra.

Víst er að áfengisauglýsingar fara fyrir brjóstið á mörgum og einnig að hægt sé að komast í kringum lögin. Hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins fengust þær upplýsingar að yfirgnæfandi fjöldi þeirra kæra sem berast vegna áfengisauglýsinga eigi ekki við rök að styðjast þar sem um léttöls auglýsingu eða löglega áfengisumfjöllun er að ræða.

Eitt hundrað kærur á RÚV

Einn ötullasti baráttumaður gegn áfengisauglýsingum er Árni Guðmundsson en hann fer fyrir Foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum. Hann segir opinbera hlutafélagið Ríkisútvarpið standi sig hvað verst þegar kemur að því að auglýsa áfengi, og keyrt hafi um þverbak í tengslum við HM.

 

Árni segir að RÚV hafi í sumum tilvikum ekki haft fyrir því að fara kringum lögin því engar léttöls-merkingar mátti sjá.

Hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins fékkst staðfest að kærur á hendur RÚV geti numið einu hundraði. Einnig að einhver mál séu í rannsókn – ekki endilega tengd RÚV –sem ætla megi að fari í ákærumeðferð.///////////hverslags tvískýnúningur er í þessu öllu,það að við ein megum ekki auglysa áfengi,er bara skömm og ekkert annað þetta er leifilegt að selja og dekka,þessi regla um boð og bönn er ekki það sem  gyldir þarna !! alls ekki svona var með bjórin á sínum tima,við látum alltaf eitthverja sem eru i mynnihluta ráða þarna ,nú er eg ekki að gera litið úr þeim sem ekki drekk áfengi als ekki !!!!,og ekki að mæla með því að Það sé drukkið!!! en svona er þetta og það víst, ekkert með að hafa þetta svona,!!! allir vita um að þessar auglýsingar er svona og þó að standi létt öl er það til sterkara eins með áfengi af hverju má ekki auglysa það eins og gert er alstaðar i heiminum,þetta virkar allt öfugt,einnig með að hafa þetta svona dyrt,að er bara smygglað og bruggað meira,það er  rekki spurning,og löggæslan hefur nóg að gera ,þó svo þessu sé ekki bætt á hana/þetta er stórmenskuforræði /Halli gamli

 


mbl.is Stefnulaus stjórnvöld í áfengismálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband