Þung skref að þiggja aðstoð///þetta er góðaverk ,og full ástæða fyrir þessu,fólk ætti ekki að skamast sýn!!!!

Þung skref að þiggja aðstoð
Innlent | Morgunblaðið | 14.7.2010 | 7:12

Mynd 536506 Mikið hefur verið að gera hjá kaffistofu Samhjálpar í sumar og eftir að kom til sumarlokana hjá Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálpinni hafa veitingastaðurinn 19. hæðin og Samverjinn samfélagshjálp ákveðið að bjóða upp á ókeypis máltíðir.

Aðstandendur Samverjans eru þó bjartsýnir, en þeir ætla frá og með deginum í dag að bjóða upp á léttar máltíðir í Stýrimannaskólanum frá kl. 11.30-14 alla virka daga út júlímánuð.

Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir, verkefnastjóri Samverjans, segir fólk þegar hafa verið farið að tínast að í gærmorgun. „Þetta á að vera lítið, kærleiksríkt samfélag fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda. Við viljum láta fólk vita að það er ekkert að því að þiggja hjálp.“ Mikill áhugi sé á að taka þátt í verkefninu, fjölmargar matargjafir hafi þegar borist og margir kokkar boðið fram sína starfskrafta. Enn sé þó þörf á sjálfboðaliðum í framreiðslu og þrif.

Vilhjálmur Svan Jóhannsson, umsjónarmaður kaffistofu Samhjálpar, segir fallega hugsun ráða ferðinni hjá þeim sem nú rétta fram hjálparhönd. „Hjá okkur er ekkert lát á gestafjöldanum, en við höfum þó vel undan,“ segir hann. Sama fólkið leiti aftur og aftur til Samhjálpar. „Það er eins og hópurinn sem dettur út við sumarlokanir hjálparstofnana sé annar en sá hópur sem borðar á staðnum.“

Til Samhjálpar séu þó allir velkomnir, en skrefin séu oft þung og lítil hefð fyrir slíkum eldhúsum hér á landi. „Það var lengi óreglustimpill á matargjöfum eins og þessum, enda þurftu fæstir á slíkri hjálp að halda,“ segir Vilhjálmur. Aðstæður í dag séu hins vegar gjörbreyttar. Ótti margra við að fá á sig stimpil sé samt yfirsterkari lönguninni í mat. „Þetta er lítið samfélag og þetta eru þung skref fyrir marga.“ annaei@mbl.is//////maðurveit að þetta eru þung spor fyrir margan ,fólkið sé stolt sem von er" en neyðin kennir naktri konu að spinna"segir máltækið,þetta er með goðum huga gert og engin ætti að skammast sin fyrir að þykkja þetta,nema Ríkistjórnin okkar sem getur gert meir fyrir þetta fólk ,og almennt meira til að kom hjólum og  atvinnu af stað,svo fólk fái vinnu og sé ekki að missa allt sitt og semsagt komið á vonarvöl/ Halli gamli


mbl.is Þung skref að þiggja aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband