Kjarasamningur samþykktur naumlega/óánægjan til staðar ennþá !!!!!

Kjarasamningur samþykktur naumlega
Innlent | mbl.is | 31.8.2010 | 11:57

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisinsKjarasamningur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) við launanefnd sveitarfélaga (LN) var samþykktur naumlega í almennri atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna LSS en atkv

Samningurinn var undirritaður 20. ágúst sl. en hann byggir á tillögu sem ríkissáttasemjari lagði fram þegar viðræður virtust vera að sigla í strand, samkvæmt tilkynningu frá LSS.

Alls voru 237 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 213 eða 90%. Já sögðu 109 (51%). Nei sögðu 100 (47%). Auðir seðlar og ógildir voru 4 (2%)

Samningurinn var því samþykktur naumlega og boðuðum verkfallsaðgerðum hefur verið aflýst.

„Það er ástæða til að fagna þessari góðu kjörsókn en að sama skapi ber að túlka þennan nauma mun sem skýr skilaboð til forsvarsmanna LSS um að grípa miklu fyrr til aðgerða, í því skyni að ná nýjum kjarasamningi. Þá er ljóst í mínum huga að andstaða félagsmanna við nýgerðan kjarasamning skýrist meðal annars  af því að samningurinn er ekki afturvirkur en eldri samnningur rann út 31. ágúst 2009 eða fyrir réttu ári. Meðan aðrir náðu fram launahækkunum báru félagsmenn LSS skarðan hlut frá borði,“ segir Valdimar Leó Friðriksson, framkvæmdastjóri LSS, í fréttatilkynningu.

Samningur LSS við LN gildir frá 1. ágúst 2010 til 30. nóvember 2010. Undirbúningur fyrir gerð nýs kjarasamnings hefst því á allra næstu dögum.

„Að fenginni reynslu er fátt sem bendir til annars en að framundan séu erfiðar viðræður við LN. Það er sorglegt að grípa þurfi til verkfallsaðgerða til að fá viðsemjendur að samningaborði. Ef það er vinnulag sem LN ætlar að viðhafa, blasa við verkfallsaðgerðir af okkar hálfu strax í desember,“ segir Valdimar Leó Friðriksson, framkvæmdastjóri LSS.æðagreiðslu lauk á hádegi í gær/////þetta er ekki nógu afgerandi þarna ríkir óánægja ennþá óg það ekki gott,en vonandi að þeir náið sinu fram þó siðar verði ,éö er ekki gott að hafa menn í svona starfi sem ekki eru ánægðir ,maður stendur með þeim i þessu,   það ber að ger vel við þá´ekkert annað/Halli gamli


mbl.is Kjarasamningur samþykktur naumlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband