Yfirlýsing formanna stjórnarflokkanna í tilefni af breytingum á ríkisstjórn
Ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur reynst árangursríkt og sögulegt á margan hátt. Á þeim 19 mánuðum sem flokkarnir hafa starfað saman hefur tekist að framkalla viðsnúning í efnahagslífi landsins. Ráðist hefur verið í viðamiklar aðgerðir til að auðvelda skuldsettum heimilum og fyrirtækjum glímuna við efnahagserfiðleikana og lögð hefur verið mikil vinna í að endurreisa traust Íslands á alþjóðavettvangi. Á sama tíma hefur farið fram víðtækt uppgjör í íslensku samfélagi gagnvart þeirri stefnu og vinnubrögðum sem viðgengust í atvinnulífi, stjórnmálum og stjórnsýslu fyrir hrun og birtast nú í víðtækri uppstokkun á innviðum samfélagsins. Þar er skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis grundvallargagn sem áfram verður fylgt eftir með víðtækum umbótum og uppstokkun á fjölmörgum sviðum samfélagsins.
Sú skýra áætlun sem ríkisstjórnin hefur unnið eftir hefur að mestu gengið eftir og á sumum sviðum gott betur. Helstu hagvísar benda til að viðsnúningur sé orðinn í íslensku efnahagslífi. Hagvöxtur hefur mælst síðustu 6 mánuði meira en hálfu ári áður en reiknað var með. Atvinnuleysi er komið í 7,5% - mun lægra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Störfum er aftur farið að fjölga. Verðbólga hefur lækkað úr 18,6% í 4,5% og hefur ekki verið lægri í 3 ár. Stýrivextir hafa lækkað úr 18% í 7% og hafa ekki verið lægri í 6 ár. Gengið styrkist jafnt og þétt og hefur ekki verið hærra skráð í eitt og hálft ár. Forsvarsmenn SA, ASÍ, Seðlabanka, AGS ofl. hafa lýst því yfir að kreppunni sé lokið og bjartsýni fer vaxandi í samfélaginu.
Viðsnúningurinn er til marks um ákveðinn áfangasigur í glímunni við þá erfiðleika og áföll sem íslenskt efnahagslíf hefur orðið fyrir. Næstu skref eru að byggja á þessum árangri, ná jöfnuði í ríkisfjármálum og fylgja eftir þeim fjölmörgu ábendingum sem komu fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Liður í þessu er að fram fari uppstokkun í stjórnkerfi Íslands með fækkun ráðuneyta og einföldun stofnanakerfis. Þessi uppstokkun kallar á breytingar á ríkisstjórn enda fækkar nú ráðherrum um tvo og stefnt er að frekari fækkun um áramótin.
Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs byggir störf sín og stefnu á skýrum markmiðum samstarfsyfirlýsingar flokkanna frá maí 2009, fyrirliggjandi efnahagsáætlun og samþykktum meirihlutans á Alþingi. Meðal þeirra stefnumála ríkisstjórnarinnar sem formenn stjórnarflokkanna eru sammála um að leggja áherslu á og hrinda í framkvæmd á næstu mánuðum eru eftirfarandi 20 mál:
- Leggja grunn að stöðugleika á vinnumarkaði og áframhaldandi samstarf við hagsmunaaðila
- Nýskipan í orku og auðlindamálum innleidd og heildstæð orkustefna samþykkt
- Fækka ráðuneytum og sameina, endurskipuleggja og styrkja einingar í ríkisrekstrinum enn frekar
- Lög um stjórn fiskveiða endurskoðuð á grunni niðurstöðu sáttanefndar og breytingar á stjórnarskrá (sameign á auðlindum) tryggðar. Þjóðaratkvæðagreiðsla um kvótakerfið undirbúin ef ekki næst viðunandi sátt
- Rammaáætlun um verndun og nýtingu samþykkt
- Ný lög um vatn og vatnatilskipun Evrópu samþykkt
- Taka næsta skref í afnámi gjaldeyrishafta
- Klára 3. og 4. endurskoðun áætlunar með AGS. Áhersla lögð á að áætluninni ljúki ekki seinna en síðsumars 2011. Endurskoða þörf fyrir töku gjaldeyrislána
- Eyða óvissu um lánamál fyrirtækja og einstaklinga, efla upplýsingaöflun, kynna úrræði og stórefla embætti Umboðsmanns skuldara
- Lokið verði endurskoðun almannatryggingakerfisins og breytingar lögfestar
- Ráðist verði í enn frekari verkefni á grundvelli aðgerðaráætlunar til að styrkja stöðu barna og ungmenna
- Ný aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi samþykkt og austuríska leiðin lögfest
- Lögum breytt til að innleiða nýskipan ráðningarmála og breytta stjórnarhætti í Stjórnarráði Íslands m.a. í ljósi skýrslu rannsóknarnefndar
- Flutningi málefna fatlaðra til sveitarfélaga verði lokið og undirbúningi flutnings málefna aldraðra hraðað
- Stutt verði við undirbúning og starf stjórnlagaþings og þjóðfundar og unnið markvisst að mótun nýrrar stjórnarskrár
- Stofnun þjóðhagsstofnunar verður skoðuð
- Sóknaráætlun í atvinnumálum Ísland 20/20, hrint í framkvæmd og aðgerðir efldar í þágu langtímaatvinnulausra og ungmenna án atvinnu
- Mótuð verði menningarstefna til framtíðar
- Ljúka aðgerðaráætlun um losun gróðurhúsalofttegunda
- Gerð verði áætlun í mannréttindamálum að norrænni fyrirmynd
////Já segir maður bara þetta er þaðs em koma skal við skulum skoða næstu dag hvað af þessu verður rætt/Halli gamli
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.9.): 9
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 67
- Frá upphafi: 1048594
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.