Óvíst hvort málið fer í nefnd/Atli Kommi og fleiri vilja koma þessu í athvæði strax,telja vissu fyrir sakfellingu!!!!

Óvíst hvort málið fer í nefnd
Innlent | Morgunblaðið | 15.9.2010 | 10:30

Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar, ræðir við...Ekki er búist við að þingsályktunartillögur þingmannanefndarinnar um málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar 2007-2009 verði á dagskrá Alþingis fyrr en á föstdagsmorgun 17 septemver.

Atli Gíslason, formaður nefndarinnar, mun mæla fyrir áliti meirihluta nefndarinnar, en meirihlutann skipa ásamt Atla þau Lilja Rafney Magnúsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Eygló Harðardóttir og Birgitta Jónsdóttir.

Þau leggja til að höfðuð verði sakamál fyrir landsdómi gegn fjórum fyrrverandi ráðherrum, þeim Geir H. Haarde, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Árna M. Mathiesen og Björgvini G. Sigurðssyni.

Hin tillagan til þingsályktunar um málshöfðun gegn ráðherrum er frá fulltrúum Samfylkingarinnar í nefndinni, þeim Magnúsi Orra Schram og Oddnýju G. Harðardóttur, en þau leggja til að þrír ofangreindra ráðherra verði ákærðir af Alþingi, þ.e. allir ofangreindir ráðherrar nema Björgvin G. Sigurðsson.

Sjálfstæðismenn meðmæltir

Ekki hefur verið ákveðið hvort þingsályktunartillögunum verður vísað til allsherjarnefndar, en um það mun vera ágreiningur meðal þingmanna. Þannig munu ákveðnir þingmenn Samfylkingarinnar vilja að málið fari til allsherjarnefndar en aðrir vera því andvígir og þingmenn VG munu einnig vera því andvígir. Búast má við því að tillaga komi fram í þinginu um að tillögurnar fari til allsherjarnefndar og þá verður atkvæðagreiðsla um þá tillögu í þinginu. Búist er við því að allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni styðja slíka tillögu, einhverjir þingmenn Framsóknarflokksins og einhverjir þingmenn Samfylkingar.

 

Í gær var ekki vitað hvenær þinginu lýkur, en í dag átti að vera síðasti þingdagur septemberþingsins. Ljóst var talið að þinghald myndi a.m.k. dragast eitthvað fram eftir næstu viku.////leynt og ljóst ætlar Atli kommi og c/o að koma þessu i athvæði strax svo ákæra megi þessu 4 ráðherra og hefur ábyggilega skoðun á að hafa þarna meirihluta og það á bara að vaða með þetta,það er byggilegt að þetta verur tekið eftir hverjir samþykkja og ekki um apð er ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Óvíst hvort málið fer í nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæll þetta kemst aldrei í gengum þingið þau geta ekki kært sjálfasig og þótt að  þau vildu myndu þau aldrei gera það!

Sigurður Haraldsson, 16.9.2010 kl. 07:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband