Sumt í lögum um ráðherraábyrgð og landsdóm óviðunandi/ En Atli kommi ræður för!!!!

Sumt í lögum um ráðherraábyrgð og landsdóm óviðunandi
Innlent | mbl.is | 25.9.2010 | 14:42

Ólöf Nordal. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í allsherjarnefnd Alþingis telja að lögin um ráðherraábyrgð og landsdóm séu óviðunandi og ófullnægjandi þegar horft sé til málsmeðferðar í aðdraganda ákæru. Skipti þar mestu að réttarvernd sakborninga sé ekki tryggð með þeim hætti, sem leiða megi af ákvæðum stjórnarskrár og mannréttindasáttmála.

Þetta kemur fram í áliti, sem þau Birgir Ármannsson og Ólöf Nordal sendu í morgun þingmannanefnd, sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Þau Birgir og Ólöf segjast telja, að ýmsar reglur laga ráðherraábyrgð og landsdóm standist gagnvart 70. gr. stjórnarskrárinnar og 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Það eigi meðal annars við um reglurnar um ákæruvald Alþingis, pólitíska skipun hluta dómenda við landsdóm og það fyrirkomulag að aðeins sé fjallað um ráðherraábyrgðarmál á einu dómstigi.

Á þessa þætti hafi reynt með þeim hætti í máli Erik Ninn-Hansen fyrir danska ríkisréttinum og Mannréttindadómstól Evrópu, að það hafi fordæmisgildi hér á landi. Núgildandi fyrirkomulag hér á landi geti hvað þessi atriði varðar talist óheppilegt og óæskilegt, en ekki í andstöðu við stjórnarskrána og mannréttindasáttmálann.

Hins vegar séu lögin um ráðherraábyrgð og landsdóm  óviðunandi og ófullnægjandi þegar horft er til málsmeðferðar í aðdraganda ákæru. Skipti þar mestu að réttarvernd sakborninga sé ekki tryggð í því sambandi með þeim hætti, sem leiða megi af ákvæðum stjórnarskrár og mannréttindasáttmála.

Segjast þau Birgir og Ólöf ekki telja, að bætt hafi verið úr þessu með fullnægjandi hætti við setningu laga árið 2008 um rannsókn á falli íslensku bankanna og að réttarvernd grunaðra manna eða sakborninga samkvæmt ákvæðum þeirra laga geti ekki talist fullnægjandi, ekki síst þegar horft sé til framkvæmdarinnar í aðdraganda þess að þingsályktunartillögurnar um málshöfðun á hendur ráðherrum voru lagðar fyrir Alþingi.

Þá segja þingmennirnir, að refsiheimildir í lögum um ráðherraábyrgð séu afar matskenndar og því sé nauðsynlegt, að beita þeim af varfærni. Þá megi ráða af dómaframkvæmd, að auknar kröfur séu almennt gerðar til skýrleika ákvæða í þessu sambandi þótt ekki sé hægt að fullyrða, að ákvæðin stríði gegn kröfum stjórnarskrárinnar. //það er bara ekkert mark tekið á þessum hlutum !! það skal vaðið áfram og men dregnir fyrir dóm,hvað  sem það kostar segir Atli kommi, og virðist standa þar vel að gera bara eitthvað sem fólkið vill sjá dæma menn það er mottóið þeirra Komma/Halli gamli


mbl.is Sumt í lögum um ráðherraábyrgð og landsdóm óviðunandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Þeir þingmenn sem berjast gegn stjórnarskrár-bundnum aðferðum, til að koma lögum yfir brotamenn, eiga ekkert erindi á Alþingi. Virkjun Landsdóms verður álíka réttarbót og var þjóðaratkvæðið um Icesave 06. marz 2010.

Vísa ætti málum allra ráðherranna í Þingvallastjórninni samtímis fyrir Landsdóm. Ef einungis fjórir koma fyrir dóminn núna, verður að vísa málum hinna síðar. Raunar er Alþingi að ræða um vísun mála til Saksóknara Alþingis, því að það er saksóknarinn sem rannsakar málin og flytur fyrir Landsdómi. Saksóknarinn kann að vísa öllum rökum Alþingis á bug og ákæra á eigin forsendum. Flestir Alþingismenn virðast ekki skilja þetta.

Loftur Altice Þorsteinsson, 25.9.2010 kl. 17:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband