Verið að deila sársaukanum/Erum við að deila þessu með Landsbankanum eða fyrv.eigendum???

Verið að deila sársaukanum
Innlent | mbl.is | 9.12.2010 | 21:42

Lee Bucheit, formaður íslensku samninganefndarinnar.Með nýjum Icesave-samningi er verið að skipta sársaukanum á milli aðila sem eru allir ábyrgir að einhverju leyti. Það sé grundvallarmunurinn á milli stöðu Íslendinga annars vegar og Íra og Grikkja hins vegar sem þurfi að greiða töluvert hærri vexti á sínum lánum. Þetta segir Lee Buchheit, formaður samninganefndar Íslands.
Sjáið hvað er að gerast í Evrópu. Sjáið lánin til Grikklands á 5% vöxtum. Ég held að Írar hafi samþykkt að greiða 5,8% vexti á láni til mjög skamms tíma, á þremur til sjö árum. Þetta hérna er lán sem gæti náð til 37 ára á þeim vöxtum sem við erum að tala um. Hér er verið að skipta sársaukanum á milli aðila að mínu mati. Þetta er sanngjarn samningur,“ sagði Buchheit á blaðamannafundi fyrr í kvöld þar sem samkomulagið var kynnt.

„Aðstæðurnar voru afar óheppilegar af allra hálfu. Kannski ber Ísland mestu ábyrgðina fyrir að mistakast að hafa eftirlit með þessum stofnunum en ég held ekki að nokkur geti litið á þetta og sagt ekki sé um einhvers konar sameiginlega ábyrgð að ræða. Það er þetta sem aðskilur þetta mál frá þeim lánum sem verið er að veita öðrum löndum á evrusvæðinu.“

Því hafi samninganefndin ekki litið á samningana sem lán á milli tveggja ríkisstjórna. „Munið að þeir peningar sem Írar fá lánaða renna til Írlands. Ekki einn eyrir af þessum peningum rennur til Íslands heldur til að greiða innistæðueigendum í þessum tveimur löndum,“ sagði hann/////maður vill nú ekki útala sig um þetta strax,en við fyrstu sýn sýnist manni þetta ekki ,það sem við eigum að borga als ekki,en viljum við ekki að þetta fari sína leið i Dómstóla það heldur maður enn að sé hin eina sanna og retta leið,en skoðum málin betur það eru nú ekki nema 5 virkir dagar eftir af Alþingi svo tíminn er naumur en þetta getur ekki verið búið þá ,gengur ekki upp,ef þeir láta einfaldan meirihluta ráða á Alþingi ,tekur vonandi Forsetin völdin og lætur i atkvæðagreiðslu þjóðarinnar/Halli gamli


mbl.is Verið að deila sársaukanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband