Enginn ógnvekjandi á Old Trafford/samt verður hart barist ekki spurning,veðja á mína menn samt!!!!

Enginn ógnvekjandi á Old Trafford
Íþróttir | mbl.is | 12.12.2010 | 8:22

Samir Nasri hefur verið sjóðheitur í liði Arsenal að undanförnu.Samir Nasri, franski sóknartengiliðurinn hjá Arsenal, segir að enginn leikmaður í Manchester United sé það góður að ástæða sé til að óttast hann sérstaklega. Sálfræðistríðið heldur því áfram fyrir slag liðanna á Old Trafford annað kvöld.

Patrice Evra sendi Arsenal tóninn fyrir helgi þegar hann sagði að liðið væri eins og fótboltaskóli sem gæti aldrei unnið neitt. Nasri svaraði fyrir sig í viðtali við Sunday Mirror í dag.

„Á árum áður var ógnvekjandi að fara á Old Trafford til að spila við Manchester United en þannig er það ekki lengur. United er langt frá því að vera sama lið og áður eftir að Ronaldo og Tévez fóru. Þetta  er áfram gott lið sem er erfitt að sigra en það vantar talsvert í sóknarleik þess," sagði Nasri.

Arsenal er á toppi deildarinnar með 32 stig, eins og Manchester City, en Manchester United er með 31 stig. Chelsea á möguleika á að komast í toppsætið í dag en liðið er með 30 stig og sækir Tottenham heim klukkan 16.////það er ekkert gaman af Guðspjöllunum þegar engin er i þeim bardaginn sagði kerlingin her um árið,eins er með þessa leiki á toppliðunum það verður hart barist ekki spurning,ég veðja á mina  menn!!! en þarna er komið mikil spenna mörg lið að sækja þarna á toppinn og það gaman,en spyrjum að leikslokum/Halli gamli


mbl.is Enginn ógnvekjandi á Old Trafford
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er að mörgu leyti rétt hjá Nasri. Ég er Man Utd maður og hef verið það núna í hart nær 20 ár eða allt frá því ég bar Ryan Giggs augum fyrst kringum 91. Það hefur vantað bit í sóknarleikinn hjá mínum mönnum og það virðist vera að það taki Sir Alex smá tíma að finna rétta blöndu sérstaklega núna þar sem Valencia er meiddur en Park og Nani hafa verið að stíga upp að undanförnu og svo er Rooney að komast á ferðina. Hann hefur að vísu ekki skorað í gegnum spil síðan í mars en hann hefur verið sprækur og verið duglegur í þeim leikjum sem hann hefur verið í síðan hann kom aftur úr æfingabúðunum og það er því bara tímaspursmál hvenær hann setur hann. Vonandi verður þetta fjörugur leikur.

þórarinn (IP-tala skráð) 12.12.2010 kl. 14:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband