12.12.2010 | 16:26
Icesave á endastöð/skrítin skilaboð til landans eða bara til Jóhönnu !!!!!
Innlent | mbl.is | 12.12.2010 | 15:56
Ögmundur Jónasson, dóms- og samgönguráðherra, segir að margt bendi til þess að Íslendingar séu komnir á endastöð í Icesave-málinu. Alþingi eigi þó eftir að fara í saumana á samningnum, sem nú liggur fyrir. Þá telur hann að viðbrögð forseta Íslands hljóti að ráðast af því hvaða afstaða verði tekin til samningsins á þingi og í samfélaginu almennt.
Þetta kemur fram á bloggsíðu Ögmundar,þar sem hann fjallar um Icesave-samingana. Þar segir hann m.a.:
Forsetinn skýrði ákvörðun sína um að skjóta málinu til þjóðarinnar í ljósi lýðræðislegrar andstöðu við málið - innan þings og utan, ekki með skírskotun til málsins sjálfs. Þetta er lykilatriði.
Með hliðsjón af þessu leyfi ég mér að efast stórlega um að forsetinn nýti málskotsréttinn að nýju. Það á þó eftir að koma í ljós hvernig samfélagið bregst við að þessu sinni. En fari sem nú horfir, verðir málið leitt endanlega til lykta á Alþingi.
Ögmundur segir að það hafi ekki verið ógæfa Alþingis að samþykkja frá sér samninginn í desemberlok í fyrra. Öllum hafi mátt vera ljóst að lengra yrði ekki komist á þingi.
Það var þrautreynt. Alþingi átti ekki annarra kosta völ. Þingið lá ofan í skotgröfum. Einu hefði gilt hvort samningurinn hefði verið samþykktur eða felldur á þessu stigi. Hefði samningurinn verið felldur hefði málið hjakkað áfram í sama farinu. Stjórnin hefði farið frá og málið nú hugsanlega komið í hendur stjórnarandstöðu sem að hluta til hafði áður staðið að mun veri lausn! Nokkuð sem sjaldan er í hávegum haft - og alls ekki í fréttaskýringunum sem hellast yfir okkur án afláts. Sannast sagna held ég að þetta hefði ekki verið til góðs, skrifar Ögmundur.
Þá segir hann að að hafi skipt öllu máli og orðið Íslendingum til gæfu að málinu hafi verið vísað til þjóðaratkvæðagreiðslu. Það hafi forseti Íslands gert og hann eigi lof skilið fyrir framgöngu sína.
En þetta gerði forsetinn ekki fyrr en um það bil þriðjungur kosningabærra manna í landinu höfðu undirritað áskorun þess efnis. Hann tók og ákvörðun sína með skírskotun til þess að innan þingsins - í stjórnarmeirihlutanum, væru einstaklingar sem réru að því öllum árum að koma málinu á annað og æðra stig - til fólksins - þaðan sem allt vald á uppruna sinn - svo vísað sé til orða Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, þingflokksformanns VG, sem hart gekk fram í þessu. Það gerðu einnig fleiri stjórnarþinggmenn. Var haft á orði að nokkur þúsund manns hefðu bæst á undirskrifatalista Indefence eftir að Ásmundur Einar Daðason hafði flutt sína hvatningarræðu í beinni útsendingu við atkvæðagreiðsluna 30. desember, skrifar Ögmundur.///til hverra er þessi yfirlýsing til okkar landanna hans almennt eða bara til Jóhönnu sem hóta öllu illu ef ekki er farið að hennar ráðum sem Forsætisráherra,ekkert múkk og þið bara hlýðið,Þetta er samningurinn og svo hjálpi þessar þjóðir okkur þegar við við erum komin i ESB ,þar i liggur hundurinn grafin hjá samfylkingunni,við skulum ekki flana að neinu ekki samþykkja þetta nema það þjóni okkur högum,en við fyrstu sýn virðist það ekki gera það,við eigum held ég að fara dómstólaleiðina ekki spurning ,þar vinnum við málið og borgum ekkert/Halli gamli
Icesave á endastöð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Við höfum notið þess að tíminn hefur gengið í lið með okkur. Mun meira hefir skilað sér af þeim lánum sem Icesave reikningarnir fjármögnuðu. Fyrir ári síðan leit út að þessi safnreikningur í vörslum Englandsbanka myndi „dekka“ 75% af Icesave. Nú hefur komið í ljós að um 93% skili sér.
Þá hafa borist tilboð um hálfan annan milljarð breskra sterlingspunda í verslunarkeðjuna Iceland sem Landsbankinn yfirtók meirihlutann í. Það er um 250 milljarðar þannig að við erum sloppnir fyrir horn.
Tíminn hefur hjálpað okkur mikið og ekki lítur út fyrir að við þurfum að taka upp Icesave skatt.
Kv.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 12.12.2010 kl. 17:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.