21 tekinn fyrir ölvunarakstur/þetta gott mál,um 400 ökumenn voru stöðvaðir um helgina !!!!

21 tekinn fyrir ölvunarakstur
Innlent | mbl.is | 13.12.2010 | 20:34

Um helgina voru tíu ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sjö þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, fjórir á laugardag, þrír á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags.

Þetta voru átta karlar á aldrinum 18-33 ára og tvær konur, 20 og 33 ára. Sú yngri kom tvisvar við sögu hjá lögreglunni um helgina vegna fíkniefnaaksturs, fyrst aðfaranótt laugardags en þá var hún farþegi í bíl sem ekið var af karl á fertugsaldri en sá var líka undir áhrifum fíkniefna.

Í seinna skiptið, aðfaranótt sunnudags, var hún sjálf við stýrið og sem fyrr í miður góðu ástandi. Ekki var aksturinn hjá eldri konunni neitt skárri en henni var veitt eftirför um stóran hluta austurborgarinnar áður en yfir lauk. Engan sakaði en konan setti bæði sjálfa sig og aðra vegfarendur í stórhættu með gáleysislegum akstri, segir í tilkynningu frá lögreglu.
 


Mynd 513740 Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sextán voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og Hafnarfirði og einn í Garðabæ.
Einn var tekinn á föstudagskvöld, níu á laugardag, tíu á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru átján karlar á aldrinum 17-48 ára og þrjár konur, allar á þrítugsaldri. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptur ökuleyfi og sá þriðji hefur aldrei öðlast ökuréttindi./////þetta mjög svo gott hjá Löggæslunni um helgina að gera svona rassíur ,og þarflegt,við viljum þetta ekki að men séu að aka undir áhrifum áfengis eða lyfja svo við stöndum þar með lögerlunni mjög/Halli gamli


mbl.is 21 tekinn fyrir ölvunarakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 1046583

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband