VG gæti klofnað/er þetta ekki að verða sagan endalausa,eða hvað?????

VG gæti klofnað
Innlent | mbl.is | 20.12.2010 | 12:59

Vinstri grænir. Vinstri grænir gætu klofnað í tvo flokka fari sú atburðarás í hönd að Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, stígi til hliðar og af stað fari harðvítug barátta tveggja arma um leiðtogasætið. Þetta er mat Einars Mars Þórðarsonar stjórnmálafræðings sem telur þó ólíklegt að Steingrímur víki.
Steingrímur er vissulega í erfiðri stöðu í sínum eigin flokki. Hann er með þingmenn sem virðast ekki styðja hann. Hann virðist þó vera, eins og er, leiðtogi flokksins og maður sér ekkert endilega í kortunum að honum verði steypt af stóli. Þannig að ég held að hann sé í ágætri stöðu þannig lagað. En vissulega hefur hann kannski ekki fullkomið traust allra í  þigflokknnum.                                                                                                                                                     Margir gætu tekið við formennsku

- Hverja sérðu fyrir þér sem mögulega leiðtoga flokksins?

„Vissulega hlýtur að vera þarna fólk sem getur tekið við formennsku. En ég held að það sé enginn sem getur ógnað Steingrími á meðan hann kýs að sitja áfram. Það er hins vegar spurning, ef hann kýs að stíga niður, hver gæti sætt þessi átök sem hafa verið í flokknum.“

Katrín eða Björn Valur?

- Hvaða nöfn koma til greina?

„Flokkurinn er með varaformann [Katrínu Jakobsdóttur] og það er spurning hvort hún gæti verið mannasættir í þessum deilum sem hafa verið í flokknum. Svo má vel ímynda sér að ef Steingrímur stígur niður muni þessir tveir armar takast á og þá er það spurning með Ögmund Jónasson og hvort varaformaðurinn eða einhverjir aðrir, á borð við Björn Val Gíslason, muni sækjast eftir formannsstólnum.“

Ekkert ómögulegt í stöðunni

- Gæti þróunin orðið á þann veg ef Steingrímur víkur og til átaka kemur að flokkurinn klofni í tvennt?

„Ég held að það sé allt mögulegt í þeim efnum. En ég er samt ekkert að sjá fyrir mér að Steingrímur stígi til hliðar,“ segir Einar Mar sem tekur fram að dánarvottorð hafi áður verið gefið út á ríkisstjórn VG og Samfylkingar.

„Það er búið að spá þessari ríkisstjórn andláti síðan hún varð til, nánast í hverri viku, og hún lifir enn. Þannig að ég er ekkert viss um að hún sé í andaslitrunum. Það er ómögulegt að spá fyrir um hvað hún sitja lengi og hvort hún muni sitja út kjörtímabilið eða hvort að það verði gerðar einhverjar róttækar breytingar á henni,“ segir Einar Mar.///þetta fer nú að verað sagan endalausa að mínu mati,það er ein og með RÚV það eru sérfræðingar alla  daga að get um þetta og hitt um stjórmálin og flesir hlutdrægir að mínu áliti og fleiri/en svo sögur eru allaf á ferðinni og tekur maður mátulegt mark á því,en öllu fylgir eitthvað marktækt og berað skoða,en að er komið tími á að þessi ríkisstjórn fari frá ekki spurning/Halli gamli  


mbl.is VG gæti klofnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 1046539

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband