Sigur kom nábítum ekki á óvart/gott að það skuli vera hægt að verja sig !!!!

Sigur kom nábítum ekki á óvart
Innlent | mbl.is | 20.12.2010 | 18:04

Mynd 488860Eigandi fyrirtækisins Nábítar, böðlar & illir andar ehf, segir að honum hafi ekki komið á óvart að hæstirréttur skyldi dæma honum í hag í máli Lýsingu gegn fyrirtækinu.

Dómurinn hljóðaði upp á að Lýsingu hf. væri ekki heimilt að taka járnabeygjuvél úr vörslu félagsins Nábíta, böðla & illra anda ehf., með beinni aðfaragerð.

„Sigurinn er sætur,“ segir Örn Gunnlaugsson, forsvarsmaður fyrirtækisins. „Lýsing svipti mig vélinni án dómsúrskurðar  í desember 2009. En samkvæmt lögum er það gertæki (Innsk. blaðamanns: að taka lögin í eigin hendur) og varðar sektum. En þeir tóku ranga vél, bægslagangurinn var svo mikill. Það kom vörubíll með krana og hífði upp vélina sem þeir töldu sig eiga að taka. En þeir tóku yfir 30 ára gamla vél og það tók þá fjóra mánuði að átta sig á því. Þá var fullyrt að ég hefði skilað rangri vél,“ segir Örn. „En það eru rangfærslur. Ég skilaði engu, ég horfði bara á þetta.“

Í framhaldinu kærði Lýsing Örn til efnahagsbrotadeildar fyrir blekkingar. 

Málinu er nú lokið með úrskurði hæstaréttar og vélin er í vörslu Arnar, á starfsstöð fyrirtækisins sem ekki hefur verið með starfsemi í heilt ár. Fyrirtækið sinnti áður sérhæfðum verkefnum, sem sneru að uppsteypu, fyrir byggingariðnaðinn.

„Ég hef alla tíð boðið Lýsingu uppgjör innan ramma laganna. Ég er ekki að reyna að koma mér hjá því að borga það sem ég á að borga. En Lýsing hefur ekki svarað mér.“

„Nafnið á fyrirtækinu, Nábítar, böðlar og illir andar, er í virðingarskyni við Landsbanka Íslands, sem heitir í dag NBI hf.,“ segir Örn.////mikið gott að í Dómsmálum skuli vera eitthvað mannlegt að mínu mati er það ekki vist alltaf alls ekki bara beit lagalegt og ekkert annað en svona dómar sanna að það er með og gott fyrir okkur að´sjá þetta sem ekki erum trúir á dómskerfið okkar ,þetta snnar margt að það er allt mannlegt/Halli gamli


mbl.is Sigur kom nábítum ekki á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband