26 létust af slysförum árið 2010/þvi miður alltof margir!!!!,votum aðstandendum samúð!!!

  26 létust af slysförum árið 2010
Innlent | mbl.is | 1.1.2011 | 11:22
Mynd 410009 Á nýliðnu ári létust 26 einstaklingar af slysförum, sem er einum fleiri en árið 2009. Heldur dró úr banaslysum í umferðinni en 2010 fórust 8 einstaklingar á móti 17 árið á undan. Flestir létust í heima- og frístundaslysum eða 12, tveir í vinnuslysum, þrír í drukknunarslysum og einn í sjóslysi.

Langflestir sem létust voru karlmenn eða 17 einstaklingar. Konur sem létust í slysum á árinu voru átta og eitt barn lést af völdum slysförum á árinu

Slysavarnafélagið Landsbjörg breytti banaslysaskráningu sinni árið 2002 til hafa hana sambærilega við alþjóðaskráningu og skráningu Slysaskrár Íslands. Fram að þeim tíma voru Íslendingar sem létust erlendis t.d. inni í slysatölum félagsins en ekki í slysatölum þess lands sem þeir létust í eins og er í dag. Samanburður  á milli ára er því eingöngu frá árinu 2002, segir í tilkynningu frá félaginu.

 Sex Íslendingar létust af slysförum erlendis og eru skráðir í banaslysatölur í viðkomandi landi.

Allt frá árinu 1928 hefur Slysavarnafélagið Landsbjörg skráð banaslys í landinu.  Í upphafi voru sjóslys og drukknanir eingöngu skráð en allt frá árinu 1948 hefur félagið skráð öll banaslys./////þetta er of miki'alltof mikið og við öll verðum að vera meðvituð um það og reyna að láta þetta ekki endurtaka sig,þessi slys eru mörg vegna óaðgæslu því miður,en við bara vottum þeim aðstandendun samúð sem þetta henti /samt öll, gleðilegst ár og þakka það gamla,með von um að við tökum okkur á að komandi ári 2011/Kveðja Halli gamli


mbl.is 26 létust af slysförum árið 2010
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband