7.1.2011 | 11:12
Agasvipum flokksins beitt af hörku gegn órólegu deildinni/ hjá V.G.hvar þetta endar veit engin???
Innlent | Morgunblaðið | 7.1.2011 | 10:30
Áfram heldur svikalognið í þingflokki Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, eftir mikinn átakafund sem stóð með hléi frá hádegi í fyrradag og fram á kvöld. Að vísu heitir það nú opinberlega að fundurinn hafi verið góður. Hreinskiptnar og opinskáar umræður hafi farið þar fram.
Þetta þýðir á mannamáli að flokksforystan beitti flokkssvipunni óspart á fundinum og þeir sem haldið hafa uppi opinberri gagnrýni á störf og stefnu ríkisstjórnarinnar voru hundskammaðir, einkum og sér í lagi fyrir að bera raunir sínar á torg og gefa þannig fjölmiðlum tækifæri til þess að blása upp ágreining innan flokksins og gera að sérstöku umfjöllunarefni.
Formaðurinn og stjórn þingflokksins voru ómyrk í máli og kröfðust þess að þingmenn héldu sig við það að takast á málefnalega á eigin fundum og um efni þeirra funda ætti að ríkja trúnaður. Allt annað væri stórskaðlegt fyrir flokkinn.
Enginn friður í sjónmáli
Það ríkti alls enginn friður í VG fyrir þennan þingflokksfund og viðmælendur Morgunblaðsins úr röðum VG sögðu í gær, að það væru engar horfur á friði í flokknum á næstunni. Sá friður næðist einvörðungu með breytingum á áherslum í Evrópusambandsmálum, samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, ríkisfjármálum og vinnubrögðum flokksforystunnar.
Stjórn þingflokksins, þau Árni Þór Sigurðsson, starfandi þingflokksformaður, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Þuríður Backman lögðu fram tillögu að bókun á fundinum, sem ákveðið var eftir allnokkrar umræður að skoða betur og ræða nánar á næsta þingflokksfundi sem verður haldinn nú á mánudag, þann 10. janúar.
Árni Þór var í gær spurður hvers eðlis þessi tillaga að bókun hefði verið: Við lögðum fram hugmynd að ákveðnu vinnulagi í mörgum liðum. Meðal annars að gerð yrði bókun um árangur af starfi ríkisstjórnarinnar til þessa, hver væru helstu verkefni næstu vikna og mánaða. Við gerðum tillögu um að settir yrðu á laggirnar ákveðnir starfshópar á vegum þingflokksins vegna þeirra mála sem verða fyrirferðarmikil á næstunni, svo sem ESB-málið, sjávarútvegsmálin og fleira. Þá lögðum við til að skipulögð yrði fundaherferð flokksins í samvinnu við stjórn flokksins og fleira í þessum dúr.
Tillaga ekki dregin til baka
Árni Þór segir það ekki rétt að stjórn þingflokksins hafi dregið bókun sína til baka, vegna þess að þau Ásmundur Einar Daðason, Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir hafi lýst því yfir að þau gætu ekki stutt slíka bókun. Tillagan hafi alls ekki verið dregin til baka. Þingmenn hafi einfaldlega sagt, eftir að tillögunni hafi verið dreift á fundinum, að þeir þyrftu tíma til þess að skoða hana og gera sínar eigin athugasemdir, ekki síst hvað varðaði þann þátt er laut að ríkisfjármálum og endurmótun efnahagsstefnunnar. Við því hafi að sjálfsögðu verið orðið og málið verði áfram rætt á næsta þingflokksfundi á mánudaginn.
Fullyrt var af VG-félögum í gær, að þremenningarnir, þau Atli, Ásmundur Einar og Lilja hafi verið múlbundin á þessum þingflokksfundi og því hafi þau talað með þeim hætti sem þau gerðu eftir þingflokksfundinn í fyrrakvöld, þ.e.a.s. þau Ásmundur Einar og Lilja, en Atli hefur enn ekki sagt eitt orð eftir fundinn. Það má kannski segja að tímabundið hafi þau þrjú verið barin til hlýðni með svipum flokksagans, en ég fæ ekki séð að sú hlýðni muni vara lengi, því ekkert breyttist á þessum fundi og þau lofuðu engu hvorki því að skipta um skoðun, né því að láta af gagnrýni á það sem þau telja gagnrýnivert. Enda væru þau með slíku að bregðast bæði sjálfum sér og kjósendum VG, segir gamalreyndur VG-félagi.
Viðmælendur segja, að þótt staðan sé þessi nú, þá muni hún vart vara lengi, því sama undiralda og ólga óánægju kraumi áfram undir yfirborðinu og muni vafalítið brjótast upp á yfirborðið á ný, áður en varir.
Þessi þingflokksfundur hafi í raun ekki verið annað en veik tilraun flokksforystu og þingflokksforystu til þess að þjappa þingflokknum saman á málefnalegum grunni og sú tilraun hafi mistekist.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun stórum hluta fundartímans hafa verið varið í umræður og deilur um það aðlögunarferli að regluverki Evrópusambandsins, sem órólega deildin og raunar mun fleiri telja að sé löngu hafið. Það sé einfaldlega ferli, sem aldrei hafi verið samþykkt af VG að yrði hafið og því sé augljóslega um skýlaus svik við stefnu flokksins að ræða.
Án heimildar frá þjóð og þingi
Raddir í þá veru að þeim farvegi sem Evrópusambandsmálin eru nú komin í verði að breyta, eru langt í frá þagnaðar. Umræðum um ESB verður fram haldið á þingflokksfundi á mánudaginn og menn voru í gær ekkert sérstaklega bjartsýnir á að á þeim fundi fengist einhver botn í umræðuna sem allir í þingflokknum gætu unað við.
Menn eru ekki á einu máli um það hvað beri að gera, en meðal þess sem rætt hefur verið um í þingflokki VG er möguleikinn á þjóðaratkvæðagreiðslu strax, draga umsóknina um aðild að Evrópusambandinu til baka og/eða láta reyna sérstaklega á okkar helstu og stærstu hagsmunamál strax, eins og sjávarútvegs- og landbúnaðarmál. Í þeim efnum sé brýnt að setja fram skilyrði Íslands gagnvart ESB, því skilyrði ESB liggi klár fyrir. Koma verði málinu upp úr því aðlögunarferli sem það er komið í og hefur verið í um skeið og tryggja meira gegnsæi í ferlinu en verið hefur. Hægt og bítandi sé verið að nudda Íslandi inn í Evrópusambandið, án þess að þjóð og þing hafi nokkurn tíma heimilað slíkt.
Flokkssvipur eru þekkt fyrirbæri í breskum stjórnmálum og er ætlað að hafa aga á eigin flokksmönnum. Formaður VG og stjórn þingflokksins brugðu sér í gervi flokkssvipna í fyrradag.Illsmalanlegu kettirnir eða órólega deildin í VG kann að spekjast um hríð, en næsta mánudag heldur stríðið áfram.
Er 40% andstaða lítið brot?
Þeir í VG sem reynt hafa að gera lítið úr málefnalegri andstöðu þingmanna flokksins við stefnu ríkisstjórnarinnar í Evrópusambandsmálum og ýmsum öðrum málum, vísa gjarnan til þess að hér sé einungis um lítið brot af þingflokknum að ræða, þrjá þingmenn af fimmtán.
Þetta er ekki nema hálfur sannleikur, því hið sanna er, að það eru a.m.k. sex þingmenn flokksins, eða 40% þingmannanna, sem eru þeirrar skoðunar að rangt sé að halda áfram því aðlögunarferli sem Ísland er nú komið í, í aðildarviðræðunum við ESB. Þetta eru þau sem Jóhanna Sigurðardóttir nefndi illsmalanlega ketti, Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason og Lilja Mósesdóttir. En auk þeirra eru sömu skoðunar ráðherrarnir Jón Bjarnason og Ögmundur Jónasson og svo Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður þingflokks VG, sem er í barneignarfríi./////auðvitað ber að fjalla um þetta ekki spurning,og engin furða a' blaðamaður Morgunblaðsins velti þessu fyrir sér,þetta er ríkisstjórnarsamtarf verður ekki hjá því komist að fjalla nánar um þessa kreppu sem flokkurinn er i sannarlega!!!,en það erum við sem á horfum og verðum fyrir búsifjum af slæmu stjórnarfari fyrir og eftir hrun eigum að fá allar heimildir og fa´að vita hvað er að ske,það kemur ekki bara ,eim einum við V.G. als ekki,þetta spilar allt inni okkar afkomu og þessar sprengjur sem verið er að kast um að bylta öllu og öllu og snúa öllu á hvolf er okkar mál en ekki bara þeirra vinstri manna og ESB sinna og þeirra sem vilja eyðileggja gjafarútvegin sem er á dagskrá nú og á ´að fylgja eftir að þeirra sögn,auðvitað kemur okkur öllum þetta við og ekkert einkamal þessara flokka sem þarna standa að málum/Halli gamli
Agasvipum flokksins beitt af hörku gegn órólegu deildinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1046583
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.