Veitti 4,5 milljarða yfirdrátt/Sök bítur sekan ef rétt er !!!!!

Veitti 4,5 milljarða yfirdrátt
Innlent | mbl.is | 16.1.2011 | 19:50

Sigurjón Þ. Árnason, var bankastjóri Landsbankans. Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrum bankastjóra Landsbankans, er m.a. gefið að sök að borið ábyrgð á því að búlgarskur viðskiptafélagi Björgólfs Thors Björgólfssonar fékk 4,5 milljarða yfirdráttarlán viku fyrir bankahrun. Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá þessu í kvöld.

Sigurjón mun vera sakaður um fjársvik, umboðssvik, skilasvik og markaðsmisnotkun. Stöð 2 hefur undir höndum gæsluvarðhaldskröfuna sem lögð var fram áður en Sigurjón var hnepptur í gæsluvarðhald á föstudaginn var.

Samkvæmt henni mun leika grunur á að viðhöfð hafi verið skipulögð og kerfisbundin markaðsmisnotkun á árunum 2003-2008. Með henni hafi verið ætlunin að skekkja verðmyndun á hlutafbréfum Landsbankans.

Þá beinist rannsóknin að lánum til fjögurra félaga sem notuð voru til hlutabréfakaupa í bankanum. Sérstakur saksóknari mun m.a. vera að rannsaka hvort innri reglur Landsbankans hafi verið brotnar við þessar lánveitingar.

Einnig er rannsakað yfirdráttarlán til búlgarska félagsins Pro-Invest í eigu Georg Tsvetanski kaupsýslumanns. Hann fékk 4,5 milljarða yfirdráttarlán hjá Landsbankanum í Lúxemborg 30. september 2008, það er daginn eftir tilkynninguna um þjóðnýtingu Glitnis.

Lán þetta var notað til að kaupa hlutabréf í Landsbankanum. Lánveitingin er talin falla undir umboðssvik, að sögn fréttastofu Stöðvar 2. ///////sé þetta rétt er þetta alvarleg brot!!! og mikið meir en það!!! ,mönnum sem eru i ábyrggarstöðum og reyndar öllum á að vera þetta ljóst að svona gengur ekki !!!! en ef svona reynast þessi men allir sem  á eftir að yfirheyra biður maður ekki i hlutina,það verður að fara að útbúa vinnubúðir fyrir þessa menn og láta þá i refsingunni vinna fyrir þessu !!!! það sem ekki næst öðruvisi!!!,ef satt reynist/Halli gamli


mbl.is Veitti 4,5 milljarða yfirdrátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Sammála þér í því að láta þá vinna, við eigum að færa Bretum og Hollendingum þá og þeir verða komnir með götusópara næstu áratugina eða svo ef að þeir fengju að ráða dómi mætti segja manni...

Svo er verið að fara fram á að við skattgreiðendur borgi allt þetta bull...

Manni finnst nú eiginlega eð þeir sem að tóku áhættuna verði bara að bera sitt tap sjálfir í þessu ljóta máli...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 17.1.2011 kl. 02:48

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

þakka innlitið Ingibjörg ,satt mikið sammála þessu!!!!

Haraldur Haraldsson, 17.1.2011 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 1046584

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband