Skattkerfisbreytingar tekist vel/skattmann í ham ,og vill segja bara meiri skatta!!!!

Skattkerfisbreytingar tekist vel
Innlent | mbl.is | 1.2.2011 | 14:58

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. „Í öllum meginatriðum hafa aðgerðir á sviði skattamála verið vel heppnaðar og náð tilætluðum árangri,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Skattastefna ríkisstjórnarinnar er nú rædd utan dagskrár Alþingi, en hún sætir mikilli gagnrýni af hálfu stjórnarandstöðunnar.

Upphafsmaður umræðunnar er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Sigmundur gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega fyrir að „refsa fyrir uppbyggingu og verðlauna stöðnun.“ Í stað þess að skattkerfið hafi verið lagað að þeim raunveruleika sem Íslendingar búa við, hafi breytingar ríkisstjórnarinnar haft þveröfug áhrif.

Steingrímur segir markmið stjórnvalda í skattheimtu séu fjórþætt: Tekjuöflun ríkisins, breytt dreifing skattbyrði, skattkerfið verði grænt og að skattalegum ívilnunum sé beitt til þess að stuðla að tilteknum markmiðum, til dæmis ýmiss konar uppbyggingu. Aðgerðir stjórnvalda í þessa átt hafi heppnast vel.

Sigmundur bendir á hið aukna flækjustig skattkerfisins, og segir Alþingi hafa „leitt í lög skattareglur sem ekki fást staðið stærðfræðilega, jafnvel þótt leitað sé til færustu algebrumanna.“

Algjört skilningsleysi á eðli skatta

Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tekur undir gagnrýni Sigmundar á skattastefnuna. Hann bendir til dæmis á það að svokallaðir grænir skattar snerti lágtekjufólk rétt eins og aðra. Hagfellt tekjuskattskerfi segi ekki alla söguna.

„Ríkisstjórnin hefur engan skilning á því að það sé samhengi milli skattstofna og skattprósentu. Hún sér það ekki hvernig kakan hefur minnkað, og minnkar enn. Hún sér ekki hvernig fjárfesting er komin í algjört lágmark, fjárfesting sem á að skapa atvinnu meðan á henni stendur og á að skapa atvinnu til framtíðar,“ segir Pétur.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði áherslu á mikilvægi tekjujöfnunarhluverk skattkerfisins. Mikilvægt sé að jafna tekjur til þess að ýta undir félagslega samheldni. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir hafi náð miklum árangri í þessa átt.

Sigmundur gætti þess að benda ekki aðeins á það sem hann sér sem neikvæðar hliðar skattastefnu ríkisstjórnarinnar. Átaksverkefnið „Allir vinna“ hafi til að mynda heppnast vel, og umsvif iðnaðarmanna aukist vegna þess. „Má ekki yfirfæra þetta verkefni yfir á þjóðfélagið í heild?“ spyr Sigmundur.

Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri-grænna, hélt á lofti mikilvægi félagslegs réttlætis, og benti á það að skattar á 3.500 tekjuhæstu Íslendingana skiluðu hærri fjárhæð en sem þyrfti til þess að reka sjúkrahúsið á Akureyri. Mikilvægt sé að halda áfram í þeirri sókn.

„Þessi ríkisstjórn hefur hækkað alla meginskatta í landinu. Líka alla sérskatta. Ég hef allavega ekki fundið neitt dæmi um skatt sem þessi ríkisstjórn hefur ekki hækkað,“ sagði Birgir Ármansson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

„Lægra þrep virðisaukaskatts,“ heyrðist fjármálaráðherra þá segja úr sæti sínu./////ef fólk les þetta skal það

 vara sátt,nei það er það ekki engan hitti maður allavega sem er það,nema hörðustu Kommarnir sem fá fullnægingu

 af því að láta loksins borga það sem þeir vilja háa skatta og engar skyldur á móti og semsagt koma okkur öllum i

kaldra kol!!! allt Sjálfstæðisflokk að kenna!!! Kreppan og og útrásin  alles,en hvar værum við stödd nú ef ekki hefði

verið virkja og þessi  Álver ekki til,ætli Steingrímur segi nokkuð um það??? en það er segin saga þar sem skattar

hækka á fólki og fyrirtækjum fer allt í kaldra kol!!! atvinna minkar framleiðni engin hagvöxtur niður og allt niður i

fátækt og umkomuleysi,en þetta er stefnan og þar seldi Steingrímur samvisku sina fyrir að mega þetta með því að

 samþykkja inngöngu i ESB þrátt fyrir stefnu syns flokks um annað,hvað er hægt að vera ósakvæmari sjalfum sér

 og öðrum,svo er bara kastað skít i allt sem heitir kapítalismi ,er hann nú ekki betur með i hófi samt !!!,nei þetta er

 allt svona,hvað hagfræðingur mundi skrifa uppá þetta ,það væri gaman að sjá það!!!/Halli gamli


mbl.is Skattkerfisbreytingar tekist vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband