Talað til útgerðar eins og glæpamanna/ þetta er ólþolandi að lyggja undir,það eru alltaf einkverjir sem eru skussar !!!

Talað til útgerðar eins og glæpamanna
Innlent | mbl.is | 9.2.2011 | 12:19

Af 20 stærstu sjávarútvegsfyrirtækjunum í aflamarki eru aðeins tvö yngri en 30 ára. „Þetta eru þau fyrirtæki sem lifðu af, sem keyptu hin sem hættu og þetta eru þau fyrirtæki sem fá á sig vöndinn,“ segir Pétur Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík. Nú sé talað til útgerðarmanna eins og glæpamanna.

Pétur fjallaði um mikilvægi stöðugleika í sjávarútvegi á fundi Samtaka atvinnulífsins um atvinnumál og stöðu kjaraviðræðna í dag.

Pétur sagði að umrædd 20 sjávarútvegsfyrirtæki gerðu út 126 skip, þau veiddu  85% kvótans og væru með 4. 355 manns í vinnu.  Langflest þessara grónu fyrirtækja væru 40-50 ára gömul og mörg þeirra væru 70-100 ára gömul. Þau hefðu haft höfuðstöðvarnar á sama stað í gegnum tíðina og haldist vel á starfsfólki. Síðustu áratugina hafi þau lifað af alla þá óáran sem yfir sjávarútveginn hefur dunið.

Pétur sagði að þrátt fyrir ótrúlega orðræðu, niðrandi umræðu, uppnefningar, stanslausar tilfærslur á aflaheimildum, sem næmi um þriðjungi þorskveiðiheimildanna, þá hefðu Íslendingar sigrað á keppnisvelli sjávarútvegsins. 

Nú væri hins vegar róið að því öllum árum að skapa óstöðugleika. Markmiðin væru óljós sem leiddi til ómarkvissrar umræðu og allar ákvarðanir væru teknar til skamms tíma. Umræðan snérist um að kerfið sé svo vont af því að það skapi hagnað. „Þeir sem gagnrýna kerfið hvað harðast vilja bæði veiða meira og skattleggja meira,“ sagði Pétur.

Pétur sagði að niðurstaða sáttanefndarinnar í sjávarútvegi sl. haust hefði verið ótrúleg, og mun betri en menn þorðu að vona um næstu skref við stjórnun veiðanna. En stjórnvöld ætli greinilega að fara aðra leið. Þrátt fyrir mikilvægi málsins væru samskipti forystumanna ríkisstjórnarflokkanna við sjávarútveginn mjög dapurleg og nánast engin.

„Þegar greinin veit hvorki hvernig tekjuhliðin né gjaldahliðin verður á næstu árum, hvernig í ósköpunum er þá hægt að ætlast til að menn geti samið um kaup og kjör? Það er óskiljanlegt með öllu,“ sagði hann. „Við höfum valið langtímahugsun, varkárni í nýtingu fiskistofna og samþættingu veiða og vinnslu, sem er ekki minna virði en kvótakerfið,“ sagði Pétur.

Sláum á úrtöluraddirnar

„Það sem er einkennilegt í allri þessari umræðu er að það sem einu sinni þótti dygð og útsjónarsemi og staðfesta, að fæðast inn í sjávarútveg og vera í honum, og lifa af, þetta er bara orðinn glæpur. Það er talað til okkar eins og glæpamanna. Menn byggja upp ákveðna grímu gagnvart þessu en nú á í alvöru að kippa fótunum undan þessum fyrirtækjum,“ sagði Pétur.

„Það var stolt okkar áður fyrr að vera í þessu. Það var stolt okkar að lifa þetta af en það er nánast eins og glæpur í dag. Það er kominn tími til að við sem eigum í þessum fyrirtækjum stöndum hrein og stolt og berjumst fyrir framgangi þeirra næstu  20-30 árin. Sláum á þær úrtöluraddir sem vilja okkur feg,” sagði Pétur. ,,Það er kominn tími til að við sýnum aðeins úr hverju við erum gerð.“

Síðustu áratugina hafa þau lifað af alla þá óáran sem yfir sjávarútveginn hefur dunið. Kvótasetningin var stærsta takmörkun sem fyrirtækin gengu í gegnum.///fyrr má nú vera aðalhæfa svona !!!, það er alltaf svo að það er einkver gikkur i hverri veiðistöð eina og sagt var hér áður,og er svo alstaðar,en að kalla menn þetta er ljót að ger yfir heildina eru þetta hinir bestu menn og engir glæpir framdir nema sem lög leifa!! hvað kemur mönnum  til sem þessu stjórna að ófræga undirstöðu atvinuveg okkar svona,það er fólkið sem vill bylta öllu og breyta jafnvel þá ekkert við sé i því,það hefur ekki staðið á útgerum að vilja breyta, til hins betra og um það var komin sátt ,en svo eru þarna fólk sem vill allt á hvolf einmitt þegar allt á reynir að þetta gangi upp!! það er svo að vera í útgerð er ekkert grín ,þegar þarf að halda við skipum og annað sem því fylgir,en samt skal því haldið fram að þessu skal öllu fórna fyrir hvað,það er svarið ekki til en bara tæta það er málið/Halli gamli


mbl.is Talað til útgerðar eins og glæpamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Halli minn, þetta er góður pistill hjá þér.

Þótt vinstri menn skilji það ekki, þá er það engu að síður staðreynd, að útgerðarmenn eru alveg eins og við hin.

Með kosti bæði og galla.

Jón Ríkharðsson, 9.2.2011 kl. 18:06

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

..og engir glæpir framdir nema sem lög leifa......

Árni Gunnarsson, 9.2.2011 kl. 19:15

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þakka innlitið Jón bloggvinur þú veist um hvað málið snýst enda unnið hjá þessum útgerðum í 30 ár ég hefi með minni vinnu kynnst fjölda þeirra og er fjöldi afbragðs manna !!! en eins og sagt er að svo að er misjafn sauður i mörgu fé!!!//// en Árni þetta veistu einnig að það haf verið brotin lög víðar en á sjónum,við vitum eftir allt sem við höfum lifað ,að glæpir eru sumstaðar lögvendaðir,allavega i EES eða urðumvi ekki varir við það með Icesave /Kveðja

Haraldur Haraldsson, 9.2.2011 kl. 19:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband