23.3.2011 | 21:30
Valtýr svarar Jóhönnu/Jóhanna leyfir ser allt eins og við sjáum siglir hún framhjá Hæstarétti !!!!
Valtýr svarar Jóhönnu
Innlent | mbl.is | 23.3.2011 | 11:23
Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari segir að Jóhanna Sigurðardóttir hafi í júní 2009 staðið að árás á ríkissaksóknara og embætti hans og þessi árás hafi verið bæði óviðeigandi og tilefnislaus.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Valtýr birti á heimasíðu embættisins vegna orða sem forsætisráðherra lét falla um helgina í kjölfar ræðu sem Valtýr hélt á fundi um ákæruvaldið í síðustu viku.
Í þessu sambandi skal rifjað upp að með bréfi, dagsettu 18. maí 2009, vék ég sæti í öllum málum sem lutu að embætti sérstaks saksóknara. Forsætisráðherra tilkynnti engu að síður í sjónvarpi 10. júní 2009 að mér bæri að víkja alfarið úr starfi. Þennan dag var ég staddur erlendis á fundi ríkissaksóknara Norðurlandanna sem fylgdust agndofa með aðförunum. Ég tel að árás á ríkissaksóknara og embætti hans með þessum hætti hafi verið bæði óviðeigandi og tilefnislaus.
Hlutverk ákæruvaldsins í samvinnu við lögreglu er að skapa öruggt samfélag. Það var ábyrgðarhluti að grafa undan embætti ríkissaksóknara með því að skapa óþarfa tortryggni eftir að ríkissaksóknari hafði sjálfur tekið ákvörðun um að víkja sæti. Á þeim tíma sem þetta gerðist var loft lævi blandið. Ráðist var á heimili manna, málningu skvett á hús og bíla að næturlagi og fleiri skemmdarverk unnin. Fordæmingu stjórnvalda á því að menn tækju lögin í sínar hendur á þennan hátt skorti að mestu leyti. Í þjóðfélaginu ríkti ótti og tortryggni. Því var hætta því samfara að kalla yfir sig reiði stjórnvalda. Ég taldi hins vegar ekki rétt, eins og alkunna er, að verða við kröfu forsætisráðherra.
Í frétt sjónvarpsins 18. febrúar 2011 fagnaði forsætisráðherra niðurstöðu héraðsdóms í máli níumenninganna og taldi það mistök að ákært hefði verið með þeim hætti sem gert var. Að þessu fann ég í ræðu minni og benti á að gagnrýnin væri óheppileg vegna þrýstings sem hún skapaði á settan ríkissaksóknara áður en áfrýjunarfrestur í málinu væri liðinn. Eins og sjá má í ræðunni var ekki minnst á að forsætisráðherra hafi beitt sér fyrir því að ekki var áfrýjað í málinu eins og gefið var í skyn í fréttinni.
Að þessu virtu tel ég enga ástæðu til að draga til baka þau orð mín sem fram koma í ræðunni. Þvert á móti taldi ég nauðsynlegt að gera þessu skil í ræðu minni í tengslum við umræðu um sjálfstæði ákæruvaldsins. Sú nauðsyn hefur ekki minnkað, segir Valtýr í yfirlýsingu sinni.////aftur og aftur er Jóhanna að deila við rétttarfarið' i landinu þetta er að verða daglegt bauð!! þó svo Valtýr sé að verja sig og sína stendur það sem hann segir og og hún lýtisviðir hann og störf hans sem saksóknara!!! en það er orðið öllum ljóst að hún og hennar fólk virðir ekki einu sinni Hæstarétt heldu,siglir fram hjá hann ákvörtunum og ætlar að gera það áfram,er svo hægt af okkar forsætisráherra???/Halli gamli
Valtýr svarar Jóhönnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.